Formlegar verklagsreglur um flutning mála til héraðssaksóknara settar í gær

Lög sem lögðu niður emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra og gerðu það að deild innan Skatts­ins voru sam­þykkt í apríl og tóku gildi nokkrum dögum síðar. Setja þurfti verk­lags­reglur svo hægt væri að færa rann­sóknir til hér­aðs­sak­sókn­ara. Þær voru settar í gær.

Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari.
Helgi Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­sak­sókn­ari. Mynd: Bára Huld Beck

Form­legar verk­lags­reglur um hvernig stærri rann­sóknir skatt­rann­sókn­ar­stjóra ættu að flytj­ast yfir til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara eftir að fyrr­nefnda emb­ættið var lagt niður með lögum í maí, voru settar í gær, mið­viku­dag.

Kjarninn greindi frá því í morgun að til­færsla stærri skatt­rann­sókna hafi setið föst, og ekki kom­ist yfir til hér­aðs­sak­sókn­ara frá því að lög um nið­ur­lagn­ingu skatt­rann­sókn­ar­stjóra tóku gildi. Ástæðan var sú að innan emb­ætt­anna var ótti við að rann­sókn mála gæti skemmst á tækni­legum for­sendum ef form­legar verk­lags­reglur lægju ekki fyrir.

Því ættu málin sem hafa verið á bið mán­uðum saman nú að geta færst yfir til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara til áfram­hald­andi rann­sóknar og eftir atvikum farið í ákæru­ferli ef til­efni þykir til.

Vissu ekki að það væri ekki verið að fara eftir fyrirmælum

Rík­is­sak­sókn­ara var falið það verk­efni að setja verk­lags­regl­urnar. Þær reglur lágu enn ekki fyrir í byrjun viku, rúmum fjórum mán­uðum eftir að lögin voru sam­þykkt.

Helgi Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­sak­sókn­ari stað­festir hins vegar í sam­tali við Kjarnann að form­legu verk­lags­regl­urnar hafi verið settar í gær og því geti málin loks færst yfir.

[adspot]Hann segir að bæði hér­aðs­sak­sókn­ari og skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafi fengið fyr­ir­mæli um það í sumar að styðj­ast við drög að verk­lags­reglum og hefja með því yfir­færslu mála. Embættið hafi ekki haft vit­neskju um að því hefði ekki verið hlýtt fyrr en í síð­ustu viku. „Þeir áttu að senda mál á milli á grund­velli þeirra draga að fyr­ir­mælum sem lágu fyrir. Það dróst hjá þeim að skila okkur upp­lýs­ingum svo við hefðum yfir­sýn yfir mála mengið og því var beðið með form­lega útgáfu þeirra. Allt tal um að það gæti skaðað með­ferð mála að hlíta fyr­ir­mælum rík­is­sak­sókn­ara er að okkar mati ekki rétt. Rík­is­sak­sókn­ari fer með þetta vald að gefa fyr­ir­mæli og skera úr ef ágrein­ingur kemur upp milli hér­aðs­sak­sókn­ara og skatts­ins.“

Samþykkt í lok apríl og tóku gildi í byrjun maí

Í nóv­em­ber í fyrra var lagt fram frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um að leggja niður emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra sem sjálf­stæða stjórn­sýslu­ein­ingu og færa verk­efni þess ann­ars vegar til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara og hins vegar til Skatts­ins.

[links]Rann­sóknir á stærri skattsvika­málum áttu með þessu að fær­ast yfir til hér­aðs­sak­sókn­ara en það emb­ætti sak­sótti áður slík mál sem rann­sökuð voru innan skatt­rann­sókn­ar­stjóra. Það sem eftir stóð af skatt­rann­sókn­ar­stjóra átti að verða ein­ing innan Skatts­ins. Samhliða átti að gera minni skatta­laga­brot refsi­laus og leysa þau með sektum.

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra gagn­rýndi frum­varpið í athuga­semd sem það skil­aði inn á meðan að það var til með­ferðar á Alþingi kom fram að það teldi frum­varpið ganga gegn til­gangi sínum, sem var að koma í veg fyrir tvö­falda refs­ingu og tvö­falda máls­með­ferð í skatta­málum.

Þá var bent á að hér­aðs­sak­sókn­ari hefði ekki aðgang að upp­lýs­inga­kerfum skatta­yf­ir­valda, sem væri ómissandi verk­færi við rann­sóknir á skatta­málum. Í umsögn­inni sagði: „Aðgangur að þessum kerfum er aðeins fyrir hendi hjá skatt­yf­ir­völdum. Eigi frum­rann­sókn mála að fara ann­ars staðar en hjá skatt­yf­ir­völdum er óheftur aðgangur að þeim kerfum lyk­il­for­senda þess að slíkar rann­sóknir reyn­ist mögu­legar.“

Aðgengi að þessum gagna­bönkum er bundið heim­ild í tekju­skattslögum. Þeim þarf að breyta til að veita öðrum en Skatt­inum og skatt­rann­sókn­ar­stjóra aðgang. Í lög­unum sem lögðu niður skatt­rann­sókn­ar­stjóra er aðgengi hér­aðs­sak­sókn­ara að gagna­bönkum ekki tryggt.

Lögin tóku gildi nokkrum dögum eftir samþykkt

Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar tók ekki til­lit til þess­ara athuga­semda og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið sagði þær byggðar á mis­skiln­ingi. Þann 20. apríl síð­ast­lið­inn varð frum­varpið sam­þykkt. Lögin tóku svo nokkrum dögum síðar, eða 1. maí 2021. Því gafst ekki langur tími til að skipta þeim verk­efnum sem emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra var með á sinni könnu milli þeirra aðila sem áttu að taka við þeim.

Fyrir lá að stærri rann­sóknir sem voru í gangi ættu að flytj­ast yfir til hér­aðs­sak­sókn­ara. Til þess að það yrði hægt, án þess að rann­sókn­irnar yrðu fyrir skaða, þá þurfti að setja verk­lags­reglur um hvaða skil væru á milli emb­ætt­anna tveggja. Í ljósi þess að ell­efu dagar liðu frá því að lögin voru sam­þykkt og þangað til að þau tóku gildi blasti við að ekki var mik­ill tími til aðlög­unar.

Og það var, líkt og áður sagði, fyrst í gær sem form­legar verk­lags­reglur voru settar um hvernig sá flutn­ingur á málum ætti að eiga sér stað þótt drög að þeim hafi legið fyrir frá því í júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár