Grænt ljós á hóptíma í ræktinni og íþróttakeppni frá 13. janúar

Tuttugu manns mega koma saman 13. jan­úar, að öllu óbreyttu. Rík­is­stjórnin sam­þykkti í morgun nýja reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra um tak­mark­anir í sam­fé­lag­inu vegna sótt­varna­ráð­staf­ana.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Frá 13. jan­úar munu 20 manns mega koma saman í stað 10 nú, opnað verður fyrir hópa­tíma í lík­ams­rækt­ar­stöðvum með miklum smit­vörnum og skíða­svæði fá að opna. Einnig verða bæði íþrótta­æf­ingar og -keppni heim­il­aðar, en engir áhorf­endur verða leyfðir á leikjum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins, en rík­is­stjórnin sam­þykkti í morgun nýja reglu­gerð Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra um sótt­varna­ráð­staf­anir, sem byggja á til­lögum Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis.

Fjölda­mörk í sviðs­listum verða aukin þannig að 50 manns mega vera á sviði og í sal 100 full­orðnir og 100 börn. Áform­aðar breyt­ingar taka gildi 13. jan­úar og gilda til 17. febr­úar næst­kom­andi.

„Réttlætanlegt að slaka á“

„Þar sem að vel hefur gengið að halda far­aldr­inum í skefjum inn­an­lands þá tel ég á þess­ari stundu rétt­læt­an­legt að slaka á nokkrum tak­mörk­unum,“ segir Þórólfur sótt­varna­læknir í minn­is­blaði sínu til ráð­herra.

Hann bendir þó á að hafa beri í huga að far­ald­ur­inn er í mik­illi upp­sveiflu erlendis, m.a. vegna til­komu nýs afbrigðis SARS-CoV-2 veirunnar sem kallað er „breska afbrigðið“. Það er talið tölu­vert meira smit­andi.[links]

Breytingar á landamærum til skoðunar

Heil­brigð­is­ráð­herra sagði í hádeg­is­fréttum RÚV að verið væri að skoða breytt fyr­ir­komu­lag á landa­mærum, vegna þeirrar hættu sem talin er stafa af hinu svo­kall­aða „breska afbrigði“ veirunnar.

Hún nefndi að sér­stak­lega væri verið að skoða hvort skylda ætti alla sem kjósa að fara í 14 daga sótt­kví fremur en skimun til þess að dvelja þessa 14 daga í far­sótt­ar­húsum.

Einungis tvö inn­an­lands­smit greindust í gær og voru báðir ein­stak­lingar í sótt­kví við grein­ingu.

Helstu breytingar eru þessar:

  • Almennar fjölda­tak­mark­anir verða 20 manns.
  • Heilsu- og lík­ams­rækt­ar­stöðvar: Starf­semi verður heimil með ströngum skil­yrðum. Fjöldi gesta má að hámarki vera helm­ingur þess sem kveðið er á um í starfs­leyfi, eða helm­ingur þess sem bún­ings­að­staða gerir ráð fyrir ef gesta­fjölda er ekki getið í starfs­leyfi. Einungis er leyfi­legt að halda skipu­lagða hóp­tíma þar sem hámarks­fjöldi í hverjum hópi eru 20 manns og gestir í hvern tíma skráðir. Bún­ings­klefar skulu vera lok­aðir. Börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með í gesta­fjölda. Sótt­varna­læknir mun setja fram ýtar­legar leið­bein­ingar um sótt­varnir á heilsu- og lík­ams­rækt­ar­stöðvum.
  • Íþrótta­æf­ingar: Íþrótta­æf­ingar barna og full­orð­inna verða heim­ilar með og án snert­ingar innan- og utandyra. Ekki mega vera fleiri en 50 manns í rými.
  • Íþrótta­keppnir: Íþrótta­keppnir barna og full­orð­inna verða heim­ilar en án áhorf­enda.
  • Skíða­svæði: Skíða­svæðum verður heim­ilt að hafa opið með tak­mörk­unum sam­kvæmt reglu 4 í útgefnum reglum skíða­svæð­anna í land­inu. Í skíða­lyftum skal tryggt að þeir sem eru einir á ferð þurfi ekki að deila lyftu­stól með öðrum, halda skal tveggja metra nálægð­ar­mörk og sömu reglur gilda um grímunotkun og ann­ars staðar.
  • Sviðs­listir, bíó­sýn­ingar og aðrir menn­ing­ar­við­burðir: Á sviði mega vera allt að 50 manns á æfingum og sýn­ingum. And­lits­grímur skulu not­aðar eins og kostur er og tveggja metra nálægð­ar­tak­mörkun virt eftir föngum. Sitjandi gestir í sal mega vera allt að 100 full­orðnir og 100 börn fædd 2005 og síðar. Gestir skulu sitja í sætum sem skráð eru á nafn og full­orðnir eiga að bera grímu.

Fréttin hefur verið upp­færð. Áður kom fram í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins að breyt­ing yrði á tak­mörk­unum í versl­unum, en svo er ekki. Reglur hvað versl­anir varðar óbreyttar og mega þær áfram taka við 5 við­skipta­vini á hverjum 10 fer­metrum, en þó 100 manns að hámarki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár