Frumvarp um afnám hafta rætt í þinginu í kvöld

Boðað hefur verið til þing­fundar klukkan 17:15 í dag. Á dag­skránni er nýtt frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­unum, sem sagt útboð á aflandskrónum. Það er stórt skref í átt að afnámi hafta hér á landi og hafði verið boðað að slíkt útboð færi fram á næstu vikum.

Boðað var til fund­ar­ins með skömmum fyr­ir­vara og greinir RÚV frá því að leið­togar stjórn­ar­and­stöð­unnar hafi fengið kynn­ingu á mál­inu á fundi fyrir klukku­stund síðan.


Stefnt er á að klára málið fyrir opnun mark­aða á mánu­dag­inn.


„Markmið laga þess­ara er að stuðla að losun fjár­magns­hafta og skapa grund­völl fyrir frjáls milli­ríkja­við­skipti með íslenskar krónur með efna­hags­legan stöð­ug­leika og almanna­hag að leið­ar­ljósi. Í því skyni er mælt fyrir um með­ferð til­tek­inna krónu­eigna, svo­nefndra aflandskrónu­eigna. Þær verða áfram háðar sér­stökum tak­mörk­unum sem er ætlað að draga úr áhættu við að ná því mark­miði lag­anna sem lýst er í 1. málsl,“ segir í frum­varp­inu, sem er nýkomið inn á vef Alþingis. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár