Ætla að fjöldaframleiða íslenskt skordýrastykki

Íslenska nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækið Crowbar Protein hygg­ist hefja fram­leiðslu á skor­dýra­prótein­stykki sínu Jungle Bar og hafa til þess opnað fyrir hóp­fjár­mögnun á Kickstarter. Þetta er fyrsta evr­ópska orku­stykkið sem fram­leitt verður úr skor­dýra­hrá­efni.

Þeir Búi Bjarmar Aðal­steins­son, vöru­hönn­uður, og Stefán Atli Thorodd­sen, við­skipta­fræð­ingur, hafa und­an­farið ár gert til­raunir og þróað vör­una með sér­fræð­ingum, meðal ann­ars með þátt­töku í StartUp Reykja­vík og Gul­legg­inu.

Útkoma vinnu Crowbar Protein síð­ast­liðið ár er Jungle Bar sem fram­leitt er úr krybbu­hveiti (skor­dýra­hrá­efni vör­unnar) döðlum, sesam-, graskers- og sól­blóma­fræjum og súkkulaði. Krybbu­hveitið er sér­stak­lega fram­leitt í Banda­ríkj­unum til mann­eldis úr krybbum sem hafa verið þurk­aðar og mal­aðar í fínt hveiti.

Þeir félagar segja kostir skor­dýra til mat­væla­fram­leiðslu vera marga. Helstu ástæð­urnar fyrir þeirra fram­leiðslu eru „að skor­dýr eru gríð­ar­lega nær­ing­ar­rík,“ eins og segir í kynn­ing­ar­efni á vef Crowbar Protein. Einnig má rækta skor­dýr á sjálf­bæran og umhverf­is­vænan hátt.

Opnað var fyrir fjár­mögnun 10. apríl og verður opið fyrir styrk­veit­ingar í mánuð. Þegar hafa safn­ast rúm­lega 6.000 doll­arar af 15.000 doll­ara mark­mið­inu sem Búi og Stefán settu sér. Þeir sem leggja til fjár­magn fá vör­una senda, þeim mun meira sem lagt er til því fleiri stykki fást send. Fyrstu stykkin eru áætluð í júní.

„Hún [hóp­fjár­mögn­unin] hefur gengið vonum framar,“ sagði Búi Bjarmar í sam­tali við Kjarnann. „40 pró­sent kom­inn á fyrstu dög­unum. Það er draumastart,“ Þegar hefur einn aðili styrkt verk­efnið um 1.000 doll­ara og fær fyrir vikið skor­dýra­skotna fimm rétta mál­tíð í boði Búa Bjarmars og Stefáns Atla.

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Jungle Bar er gert úr döðlum, sesam-, graskers- og sól­blóma­fræjum auk súkkulaði og krybbu­hveit­is­ins.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár