Flugstjóranum fagnað sem hetju í Taívan

Flug­stjóri flug­vélar TransAsia sem hrap­aði í Keelung-fljót í gær­morgun er nú fagnað sem hetju á sam­fé­lags­miðlum í Taívan og Kína. Liao Chien-tsung, flug­stjóri, er sagður hafa með snar­ræði forðað stór­slysi þegar flug­vélin missti skyndi­lega vél­ar­afl stuttu eftir flug­tak frá Songsjan-flug­velli í Taípei. Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef Quartz.

Áætluð flug­leið flugs GE235 frá Taípei til Kinmen-eyju undan ströndum Kína liggur yfir þétta byggð borg­ar­innar. Stuttu eftir flug­tak kvikn­aði í hreyfli vél­ar­innar með þeim afleið­ingum að hún tók að missa hæð. Liao náði að stýra vél­inni hættu­lega nálægt þökum hús­anna yfir Keelung-fljót sem hlykkj­ast í gegnum borg­ina. Litið hefur verið á flug­leið­ina sem vís­bend­ingu um að Liao hafi reynt að forð­ast flug­slys í íbúða­byggð.

[caption id="attachment_19215" align="alignnone" width="800"] Flugleið þot­unnar er merk með rauðu frá því að hún tók á loft 10:53 að stað­ar­tíma í Taípei. Tveimur mín­útum seinna hafði hún hrapað í Keelung-fljót. App­el­sínugula línan sýnir áætl­aða flug­leið.[/caption]

Svo fór að flug­vélin hrap­aði í ána eftir að hafa rekið annan væng­inn í brú sem liggur yfir fljótið. Liao og flug­maður hans fór­ust báðir í slys­inu. Á fimmtu­dags­morgni höfðu 15 af far­þeg­unum 58 fund­ist á lífi. Tólf eru enn týndir en 31 eru látnir. Tala þeirra sem hefðu farist hefði að öllum lík­indum verið mun hærri ef vélin hefði hrapað í borg­ar­þyrp­ing­unni. Ökumaður og far­þegi gula leigu­bíls­ins sem varð fyrir væng þot­unnar sök­uðu ekki.

„Snör við­brögð flug­mann­anna björg­uðu mörgum manns­lífum,“ sagði Chris Lin, bróðir eins far­þeg­anna sem komust lífs af. „Ég var flug­maður sjálfur og hef nokkra þekk­ingu á því hversu snör hand­tökin þurfa að vera í svona aðstæðum.“

https://www.youtube.com/watch?v=eg1c_6fLETk

Íbúar í Taípei lof­uðu flug­stjór­ann á Facebook og öðrum sam­fé­lags­miðlum í gær og sögðu meðal ann­ars að „mynd­bandið sýni að flug­vélin taki skyndi­lega krappa beygju yfir brúnni, þegar hann reyndi að forð­ast bygg­ingar og íbúða­blokkir. Flug­menn­irnir fá kærar þakkir fyrir að bjarga Nankang-hverf­inu“.

Flug­grein­endur segja enn of snemmt að segja með vissu að flug­menn­irnir hafi vís­vit­andi haldið þot­unni á lofti yfir húsa­þyrp­ing­unni. Þeir benda þó á að áhöfnin hafi hugs­an­lega stefnt á fljótið til að lág­marka mann­skaða.

Rannsókn á slys­inu er hafin og flug­riti vél­ar­innar hefur fund­ist svo hægt er að greina nákvæm­lega hvað fór fram í stjórn­klefa vél­ar­innar áður en hún fórst.

[caption id="attachment_19226" align="alignnone" width="800"] Aðstæður eru erf­iðar á slystað. Fljótið er nokkuð straum­þungt þar sem flak vél­ar­innar marar í hálfu kafi.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár