Aðgerðahópurinn sem mun valda usla þar til stjórnvöld snúa baki við olíu og gasi

„Það kann að vera lím á ramma þessa mál­verks en það er blóð á höndum rík­is­stjórnar okkar,“ sagði einn af með­limum Just Stop Oil er hún hafði límt sig fasta við mál­verk eftir Vincent van Gogh. Hópurinn hefur truflað fót­bolta­leiki og Formúlu 1 kappakstur.

Aðgerðasinnar frá Just Stop Oil hafa meðal annars límt sig fasta við málverk víðs vegar um Bretland. Þessar myndir eru frá Royal Academy í London og Glasgow Art Gallery.
Aðgerða­sinnar frá Just Stop Oil hafa meðal ann­ars límt sig fasta við mál­verk víðs vegar um Bretland. Þessar myndir eru frá Royal Academy í London og Glasgow Art Gallery. Mynd: Just Stop Oil

Fimm með­limir aðgerða­hóps­ins Just Stop Oil rudd­ust inn á Sil­ver­stone kappakst­urs­braut­ina í Bret­landi um síð­ustu helgi þegar þar fór fram keppni í Formúlu 1 kappakstr­inum. Keppnin var skammt á veg komin en aðgerða­sinn­arnir komu sér yfir grind­verk við keppn­is­braut­ina fljót­lega eftir árekstur sem varð strax við upp­haf kappakst­urs­ins.

Í árekstr­inum valt bíll Zhou Guanyu og hann skall á miklum hraða á varn­ar­vegg sem skilur að keppn­is­braut­ina og áhorf­enda­palla. Braut­ar­verðir veif­uðu í kjöl­farið rauðum fánum sem gefa öku­mönnum það til kynna að keppni sé frestað og að öku­menn­irnir þurfi því að draga úr hraða sínum og koma sér aftur á hið svo­kall­aða þjón­ustu­svæði sem er ekki hluti af keppn­is­braut­inni sjálfri. [adspot]

Þrátt fyrir að rauðum flöggum hafi verið veifað voru bílar enn úti á braut­inni þegar mót­mæl­end­urnir létu til skarar skríða, líkt og sjá má í mynd­band­inu hér fyrir neðan. Eftir að hafa komið sér yfir girð­ingar og út á braut­inna sett­ust þeir á mal­bikið til að vekja athygli á mál­stað sínum. Skömmu eftir að mót­mæl­end­urnir komu sér fyrir á keppn­is­braut­inni voru þeir dregnir í burtu af starfs­fólki Sil­ver­stone.

Á heima­síðu sam­tak­anna segir að aðgerða­hóp­ur­inn krefj­ist þess að stjórn­völd í Bret­landi stöðvi frek­ari áform um ný verk­efni í olíu- og gasvinnslu. Hópurinn heitir því að halda áfram að trufla bæði íþrótta- og menn­ing­ar­við­burði þar til að bresk stjórn­völd mæti kröfum þeirra.

Fremstu ökuþórar heims tóku upp hanskann fyrir mótmælendur

Í umfjöllun Guardian kemur fram að upp­á­tækið hafi ekki farið fram hjá fremstu öku­þórum heims. Sebast­ian Vettel, sem er fjór­faldur heims­meist­ari í Formúlu 1, sagði eftir keppn­ina að hann sýndi mót­mæl­end­unum skiln­ing. Vettel sem sjálfur seg­ist vera bar­áttu­maður fyrir lofts­lags­málum sagði þó að það skipti máli hvernig að mót­mælum væri staðið, aðgerðir Just Stop Oil hóps­ins hefðu getað stefnt bæði mót­mæl­endum og kappakst­urs­mönnum í hættu.

Sjö­faldur heims­meist­ari Lewis Hamilton tók í sama streng. „Ég elska það að fólk sé að berj­ast fyrir plánet­unni. Við þurfum á fleira fólki eins og þeim að halda,“ sagði Hamilton að kappakstr­inum loknum. Í færslu á sam­fé­lags­miðl­inum Instagram gerði hann fylgj­endum sínum það aftur á móti ljóst síðar að hann væri ekki sam­þykkur aðferðum hóps­ins.

Líkt og segir á vef sam­tak­anna beina þau sjónum sínum ekki ein­vörð­ungu að íþróttum. Á allra síð­ustu dögum hafa þau farið mik­inn á mörgum af mest sóttu lista­söfnum Bret­lands. Þar hafa með­limir hóps­ins límt hendur sínar fastar við ramma margra heims­þekktra lista­verka.

Uppfærðu eitt þekktasta málverk enskrar listasögu

Á mánu­dag, degi eftir aðgerðir Just Stop Oil hóps­ins á Sil­ver­stone, límdu tveir með­limir sig fasta við ramma mál­verks­ins Hey­vagn­inn (e. The Hay Wain) eftir John Constable. Mál­verkið sem full­gert var árið 1821 má finna í National Gallery í London sem er eitt af mest sóttu söfnum Bret­lands. Áður en aðgerða­sinn­arnir límdu sig við ramma verks­ins var það þakið með útprent­aðri „nýrri útgáfu“ lista­verks­ins, þar sem búið var að skipta ánni í mynd Constable út fyrir mal­bik­aðan veg. Þar að auki hafði flug­vélum og meng­andi verk­smiðjum, svo eitt­hvað sé nefnt, verið bætt inn í áður róm­an­tíska sveita­mynd Constable.

„Við höfum þakið Hey­vagn­inn með end­ur­túlkun á lista­verk­inu sem sýnir sýnir hvaða áhrif fíkn okkar í jarð­efna­elds­neyti hefur á sveitir lands­ins. Mál­verkið er mik­il­vægur hluti af okkar arf­leifð, en það er ekki mik­il­væg­ara en líf þriggja og hálfs millj­arðs manna, kvenna og barna sem nú þegar eru í hættu vegna ham­fara­hlýn­unar,“ er haft eftir Eben Lazarus í til­kynn­ingu frá Just Stop Oil en hann sat fastur í National Gallery á mánu­dag eftir að hafa límt sig við téð mál­verk.

„Já, það kann að vera lím á ramma þessa mál­verks en það er blóð á höndum rík­is­stjórnar okkar,“ sagði Hannah Hunt um málið en hún sat við hlið Ebens í National Gallery.

Límdu sig föst við málverk eftir van Gogh

Fleiri lista­söfn hafa fengið með­limi Just Stop Oil í heim­sókn. Þannig límdu tvö úr hópnum sig föst við mál­verkið Ferskju­tré í blóma (e. Peach Trees in Blossom) eftir Vincent van Gogh í Courtauld Gallery í London í lok júní.

Myndina mál­aði van Gogh í grennd við Arles árið 1889. Arles er í Provence hér­aði í Frakk­landi en þar hefur nýlega verið varað við miklum þurrkum. Lítil úrkoma var á svæð­inu í vetur og í vor og nú í maí og júní gekk hita­bylgja yfir svæðið.

„Ég elskaði þetta mál­verk sem barn, faðir minn fór með mig hingað til að sjá það þegar við heim­sóttum London. Enn þann dag í dag elska ég þetta mál­verk, en ég elska vini mína og fjöl­skyldu meira, ég elska nátt­úr­una meira. Framtíð kyn­slóðar minnar skiptir mig meira máli heldur en hvaða skoðun almenn­ingur hefur á mér,“ var haft eftir hinum 21 árs Louis McKechnie í til­kynn­ingu frá Just Stop Oil en hann límdi sig fastan við ramma mál­verks­ins ásamt Emily Brocklebank.

Hafa einnig látið til sín taka á fótboltaleikjum

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem McKechnie tekur þátt í aðgerðum af hálfur hóps­ins. Í mars náði hóp­ur­inn augum heims­byggð­ar­innar þegar hann festi sig með bensli við stöng á fót­bolta­marki í leik Everton og Newcastle í ensku úrvals­deild­inni. Stöðva þurfti leik­inn í um átta mín­útur á meðan starfs­fólk los­aði McKechnie frá mark­inu. Benslið sem hann hafði notað til að festa háls sinn við stöng­ina var á end­anum klippt með vír­klippum.

Að leik loknum tísti sjón­varps­mað­ur­inn Gary Lineker um atvikið en hann var eitt sinn fyr­ir­liði lands­liðs Englands í knatt­spyrnu. „Hvort sem þú sam­þykkir aðferðir þessa unga manns eða ekki, þá hefur hann rétt fyrir sér, fram­tíð hans er víð­sjár­verð,“ sagði Lineker meðal ann­ars í tísti sínu.

Svo virð­ist sem hóp­ur­inn vinni að aðgerðum sínum í eins konar hrinum. Í vik­unni sem McKechnie tjóðr­aði sig við mark­stöng­ina í leik Everton og Newcastle trufl­uðu með­limir hóps­ins að minnsta kosti þrjá aðra knatt­spyrnu­leiki með svip­uðum aðgerðum. Þessa vik­una hefur hóp­ur­inn ákveðið að beina sjónum sínum að lista­söfnum, því til við­bótar við fyrr­nefndar upp­á­komur í London hafa með­limir hóps­ins límt sig fasta við ramma mál­verka í Manchester Art Gallery og í Glasgow Art Gallery. Nú á þriðju­dag límdu svo tveir með­limir hóps­ins sig fasta við eft­ir­mynd mál­verks Leon­ar­dos da Vinci, Síðasta kvöld­mál­tíðin, sem finna má í Royal Academy í London. Alls voru fimm sem límdu sig föst við ramma mál­verks­ins í Royal Academy.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár