FME veitir bönkunum fresti til að stunda óskyldan rekstur

Bank­arnir stunda umfangs­mik­inn rekstur sem er óskyldur skil­greindri banka­starf­semi í grunn­inn, á grund­velli und­an­þága frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu (FME). Frestir sem FME hefur veitt bönk­unum tengj­ast flestir end­ur­skipu­lagn­ing­ar­ferli félaga og fyr­ir­tækja sem bank­arnir hafa eign­ast hlut í. Und­an­þág­urnar, sem enn er verið að veita rúm­lega sex árum eftir að bank­arnir voru end­ur­reistir á grunni föllnu bank­anna þriggja, heim­ila bönk­unum að eiga tíma­bundið eign­ar­hluti í fyr­ir­tækjum, með það fyrir augum að hámarka end­ur­heimtur lána sem hinir föllnu bankar veittu í flestum til­vikum.

„Góður árangur“


Í sam­an­tekt FME á þessum málum, sem hefur verið birt á vef FME, kemur fram að bankar, spari­sjóðir og lána­fyr­ir­tæki hafi náð „góðum árangri“ í að fækka eign­ar­hlutum í fyr­ir­tækjum með starf­semi sem fellur ekki undir almennar starfs­heim­ildir þeirra og sem þeim er ein­ungis heim­ilt að stunda tíma­bundið. Frá miðju ári 2011 hefur starf­semi af þessu tagi verið lokið í 185 málum, að því er segir í skýrslu FME.

FME veitir fresti


Í júní 2010 kom inn í lög ákvæði sem gerði það að verkum að fjár­mála­fyr­ir­tæki mættu ekki stundan óskyldan rekstur í tíma­bund­inni starf­semi, t.d. með yfir­töku á eign­ar­hlut í fyr­ir­tæki, lengur en tólf mán­uði. FME getur fram­lengt tíma­frest í grund­velli umsóknar um slíkt, og hefur FME verið óspart á það að veita fresti sem þessa. Um það eru mörg dæmi, og má þar nefna eign­ar­hald Arion banka á sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­inu HB Granda, en Arion banki eign­að­ist um þriðj­ungs hlut í félag­inu sem áður var í eigu Ólafs Ólafs­sonar, og átti hlut­inn í á þriðja ár, þar til félagið var skráð á aðal­markað Kaup­hallar Íslands. Bankinn á nú 6,16 pró­sent hlut í sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­inu.

Miðað við stöð­una 1. mars síð­ast­lið­inn, eiga fjár­mála­fyr­ir­tæki hluti í 41 félagi í tíma­bund­inni starf­semi. Félög sem fjár­mála­fyr­ir­tæki eiga minna en tíu pró­sent eign­ar­hlut í eru ekki með­talin í sam­an­tekt FME, en þau eru þónokkur. „Þá er vert að geta þess að mörg félög, sem eru að fullu í eigu fjár­mála­fyr­ir­tækja, eru aðeins eign­ar­hald utanum minni eign­ar­hluti í öðrum félögum, bæði inn­lendum sem og erlendum. Af umræddum fjölda félaga eru 21 félag í yfir fjöru­tíu pró­sent eign­ar­haldi fjár­mála­fyr­ir­tækis, í fimmtán félögum er eign­ar­haldið á bil­inu tutt­ugu til fjöru­tíu pró­sent og í fimm félögum er eign­ar­haldið tíu til tutt­ugu pró­sent,“ segir í sam­an­tekt FME.


Viðkvæmt samkeppnismál


Umsvif end­ur­reistu bank­anna í rekstri sem er í grunn­inn óskyldur banka­rekstri, og háður und­an­þágu frá FME, er við­kvæmt sam­keppn­is­mál, enda erfitt að keppa við fyr­ir­tæki sem hafa djúpa vasa bank­anna á bak við sig eða meiri slaka að hálfu bank­anna en eðli­legt getur talist. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur stað­fest að fjöl­margar kvart­anir hafi borist eft­ir­lit­inu vegna þessa inn­gripa bank­anna í sam­keppn­is­rekstur sem er alls óskyldur banka­starf­semi, en reynt hefur verið að leysa úr þeirri stöðu með því að þrýsta á um að bank­arnir hraði end­ur­skipu­lagn­ingu eins og kostur er, og selji eign­ar­hluti sína.

taflafme
taflafme
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár