Almenningur hvattur í stefnumótun

Vísinda- og tækni­ráð Íslands efnir til opins sam­ráðs við almenn­ing og hags­muna­að­ila um skil­grein­ingu þeirra fram­tíð­ar­á­skor­ana sem vís­indi og rann­sóknir ættu mark­visst að takast á við.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Vísinda- og tækni­ráð Íslands efnir til opins sam­ráðs við almenn­ing og hags­muna­að­ila um skil­grein­ingu þeirra fram­tíð­ar­á­skor­ana sem vís­indi og rann­sóknir ættu mark­visst að takast á við. Þetta kemur fram í frétt á vef­síðu Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Samkvæmt henni er mark­mið þess að fá fram fjöl­breytt sjón­ar­mið og ábend­ingar sem geta eflt for­gangs­röðun fjár­fest­inga í rann­sóknum og nýsköpun hér á landi. Á grund­velli gagna úr sam­ráð­inu verða skil­greind þrjú til fimm áherslu­svið og þver­fag­legt sam­starf innan þeirra eflt með þátt­töku háskóla, rann­sókn­ar­stofn­ana og fyr­ir­tækja.

Í frétt­inni segir að vís­inda- og tækni­ráð móti opin­bera stefnu í vís­indum og tækni á Íslandi og hafi það hlut­verk að efla vís­inda­rann­sóknir, vís­inda­menntun og tækni­þróun í því skyni að treysta stoðir íslensks sam­fé­lags.

Í stefnu Vísinda- og tækni­ráðs fyrir 2017 til 2019 er kveðið á um að efna til víð­tæks sam­ráðs við skil­grein­ingu sam­fé­lags­legra áskor­ana sem Ísland stendur frammi fyrir á kom­andi árum og ára­tugum og sem vís­indin ættu for­gangs­raða. Fyrri stefnu­mót­anir hafa byggt á sam­ráði við hags­muna­að­ila á borð við vís­inda- og nýsköp­un­ar­sam­fé­lagið og atvinnu­lífið en í þetta sinn er sam­ráðið mun víð­tækara og er almenn­ingur sér­stak­lega hvattur til að setja sig mark á stefn­una.

Hægt er að taka þátt með því að svara stuttri net­könnun á síð­unni www.sam­felags­leg­ara­skor­anir.is fyrir 7. októ­ber næst­kom­andi.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir Íslend­inga standa frammi fyrir ýmsum hnatt­rænum áskor­unum þegar kemur að umhverfis- og lofts­lags­málum og heilsu-, orku- og örygg­is­málum svo dæmi séu tekin. „Sömu­leiðis hlýt ég að nefna þá tækni­bylt­ingu sem við stöndum frammi fyrir. Þátttaka alls almenn­ings er lyk­il­at­riði til að sam­fé­lag­inu farn­ist sem best í að mæta þessum áskor­unum,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár