Mögulegur skipaþjónustuklasi og kolefnisförgun í Reykjanesbæ

Reykja­nes­bær stefnir að upp­bygg­ingu skipa­þjón­ustuklasa í Njarðvík sem gæti skapað yfir hund­rað störf, auk þess sem hann hefur sam­þykkt að heim­ila rann­sókn­ar­vinnu á kolefn­is­förgun í Helguvík.

Skipaþjónustuklasinn gæti skapað fjölda starfa í bæjarfélaginu.
Skipa­þjón­ustuklas­inn gæti skapað fjölda starfa í bæj­ar­fé­lag­inu. Mynd: Aðsend

Yfir hund­rað störf gætu skap­ast í Reykja­nesbæ ef af verður af fyr­ir­hug­aðri upp­bygg­ingu skipa­þjón­ustuklasa í Njarðvík. Einnig hefur bær­inn sam­þykkt að heim­ila rann­sókn­ar­vinnu á kolefn­is­förgun á vegum Carbfix í nágrenni Helgu­vík­ur­hafnar, en hún telur slíka aðferð geta orðið áhrifa­ríkt verk­færi í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum í fram­tíð­inni. 

Bækistöð fyrir skipaviðgerðir í Norður-Íshafi

Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu Reykja­nes­hafnar sem kom út fyrr í dag hefur Reykja­nes­bær skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu, auk Reykja­nes­hafnar og Skipa­smíða­stöð Njarð­víkur um upp­bygg­ingu hafnar- og upp­töku­mann­virkja í Njarðvík. Mark­miðið með upp­bygg­ing­unni sé að mynda sterkan grunn að upp­bygg­ingu skipa­þjón­ustuklasa.

Halldór Karl Her­manns­son, hafn­ar­stjóri Reykja­nes­hafnar, segir starfs­stöð sem þessa koma til með að mynda yfir hund­rað störf á svæð­inu. „ Allt að 80 bein heils­árs­störf myndu skap­ast auk fjölda óbeinna starfa. Það er okkar von að höfnin verði að bæki­stöð fyrir skipa­við­gerðir í Norður-Íshafi,“ segir Halldór í frétta­til­kynn­ing­unni.

Verkfæri gegn loftslagsbreytingum

Til við­bótar við upp­bygg­ingu skipa­þjón­ustuklasa hafa Reykja­nes­höfn og Reykja­nes­bær heim­ilað fram­kvæmd rann­sókna og þró­unar á kolefn­is­förgun á vegum fyr­ir­tæk­is­ins Carbfix. Verk­efnið verður á hafn­ar­svæði Helga­vík­ur­hafnar og mun rann­sókn­ar­tími þess standa til árs­ins 2024.

Samkvæmt bókun stjórnar Reykja­nes­hafnar telur hún aðferð­irnar geta orðið áhrifa­ríkt verk­færi í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum í fram­tíð­inni. Bæjarráð Reykja­nes­bæjar sam­þykkti svo bók­un­ina í fundi fyrr í dag.

Starf­semi Carbfix verður til umfjöll­unar í næsta tölu­blaði Vís­bend­ingar sem kemur út á morgun, en þar halda sér­fræð­ingar á vegum fyr­ir­tæk­is­ins því fram að Ísland gæti orðið mið­stöð fyrir kolefn­is­förgun á heims­vísu í fram­tíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár