Gleðiganga farin í Úganda þrátt fyrir lífstíðardóma fyrir samkynhneigð

Hinsegin fólk í Úganda hafði hægt um sig í Gaypride-göngu þar í landi um helg­ina. Sam­kyn­hneigð er bönnuð með lögum í Úganda og refs­ing getur verið lífs­tíðar fang­elsi. Stjórn­völd í Úganda hafa meira að segja viljað láta dauða­dóm vera refs­ingu fyrir sam­kyn­hneigð.

Hinsegin fólk hafði því allan vara á þegar þau fóru í göng­una í bænum Entebbe við Vikt­or­íu­vatn, suð­vestan við höf­uð­borg­ina Kampala. Um það bil 400 manns báru grímur eða huldu and­lit sín til þess að þekkj­ast ekki.

Félags­leg and­staða gegn sam­fé­lagi hinsegin fólks hefur auk­ist í Afr­íku­land­inu und­an­farin ár og hefur Yoweri Museveni, for­seti lands­ins, hefur meira að segja hvatt fólk til að til­kynna „grun­sam­legar“ sam­kyn­hneigðar kenndir.

Lögregla hefur hins vegar minnkað árásir sínar á heim­ili sam­kyn­hneigðra og útburður sam­kyn­hneigðra íbúa á heim­ilum þar sem margir hinsegin haf­ast við hefur minnkað. „Við erum ánægð með að stjórn­völd átti sig á að það eru brýnni mál en kyn­hneigð fólks,“ sagði Kasha Jacqueline, ein þeirra sem tók þátt í göng­unni. „En bar­áttan heldur áfram.“

Fyrsti þáttur Stephen Fry um samkynhneigð í heiminum.


https://youtu.be/IMPl25oraVc

Fry heim­sækir meðal ann­ars Úganda þar sem hann ræðir við ráð­herra þar í landi og prest.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár