Uppgjör Páls: „Þetta er mál sem snýst um almannaheillina sjálfa“

Páll Matthíasson geðlæknir lét af störfum sem forstjóri Land­spítalans í október síðastliðinn eftir 8 ár í starfi. Í viðtali við Stundina ræðir Páll um tíma sinn á forstjóra­stóli, hvernig var að taka við eftir niður­skurðarárin eftir hrun, hvað hann telur sig hafa gert vel og síður vel í starfi og hvernig það var að stýra þessum stærsta vinnustað landsins.

Þarf víðtæka samstöðu
Þarf víð­tæka sam­stöðu Páll Matth­í­as­son segir að það þurfi víð­tæka sam­stöðu í sam­fé­lag­inu, og þverpóli­tískt sam­starf allra stjórn­mála­flokka, til að tryggja sem best vinnu­skil­yrði á Land­spít­al­anum til fram­tíðar. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Síðast en ekki síst, þá snýst þetta kannski um jafnvægi, að stíga þennan línudans og reyna að halda því jafnvægi og vinnu­friði að spítalinn geti einbeitt sér að sínu mikilvæga hlutverki,“ segir Páll Matthíasson, geðlæknir og fyrr­verandi forstjóri Land­spítalans, í viðtali við Stundina. Páll hætti sem forstjóri Land­spítalans síðastliðið haust eftir 8 ár í starfi.

„Ég óskaði þess aldrei að taka við starfi for­stjóra og er reyndar ekki viss um að nokkur sá sem dreymir um að taka að sér slíkt starf sé rétti aðil­inn í það."
Páll Matth­í­as­son

Í síðasta tölublaði Stundarinnar er viðtal við Pál þar sem hann ræðir um starf sitt sem forstjóri Land­spítalans og sérstak­lega baráttuna fyrir auknum fjár­framlögum til heilbrigðis­kerfisins. Viðtal Stundarinnar við Pál var hins vegar umtals­vert lengra og víðtækara en það sem birt var í blaðinu og á vefnum þá. Sá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár