Vinstri græn vilja bara stjórnarandstöðuflokkana í ríkisstjórn

Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður hafa haldið áfram í dag. Þær við­ræður sem mest alvara er í eru á milli núver­andi stjórn­ar­and­stöðu­flokka. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er sagður hafa viljað bæta Mið­flokknum inn í þær við­ræður í dag.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, er sem stendur líklegust í að setjast í forsætisráðuneytið.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, er sem stendur lík­leg­ust í að setj­ast í for­sæt­is­ráðu­neytið. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vinstri græn vilja að stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fjórir myndi næstu rík­is­stjórn. Við­mæl­endur Kjarnans segja að flokk­ur­inn telji ekki þörf á því að bæta fimmta, eða jafn­vel sjötta, flokknum við þá rík­is­stjórn. Nóg sé að vera með Vinstri græn, Sam­fylk­ingu, Fram­sókn­ar­flokk og Pírata í henni.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, gaf það í skyn í gær að mögu­lega yrði mynduð rík­is­stjórn með allt að sex flokkum. Þá snér­ust við­ræður að mestu um að bæta annað hvort Viðreisn eða Flokki fólks­ins, eða jafn­vel báðum, inn í rík­is­stjórn með núver­andi stjórn­ar­and­stöðu­flokkum. Þá myndi meiri­hluti stjórn­ar­innar fara úr 32, sem er eins manns meiri­hluti, í 36 eða 40. Ekki hefur náðst sátt um þetta. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er sagður vera frá­hverfur því að fá Viðreisn í rík­is­stjórn­ina og hinir flokk­arnir þrír ekki sér­stak­lega hrifnir af því að fá Flokk fólks­ins þangað.

Heim­ildir Kjarnans herma að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi lagt það til í dag að Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar væri tek­inn inn í við­ræður stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna um myndun nýrrar rík­is­stjórnar. Sú hug­mynd hlaut ekki mik­inn hljóm­grunn hjá hinum flokk­unum þremur.

Innan Sam­fylk­ing­ar­innar hefur verið vilji til að fá Viðreisn inn í fimm flokka stjórn og Píratar hafa sagt það opin­ber­lega að þeim finn­ist eins manns meiri­hluti „tæpur.“

Flokkarnir sammála um áherslur

Líkt og Kjarninn hefur áður greint frá þá eru stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir flestir sam­mála um breiðu mál­efna­lín­urnar í mögu­legu sam­starfi. Þ.e. aukin fjár­út­lát í heil­brigð­is- og mennta­mál og að ráð­ast í mjög öfl­uga sókn í fjár­fest­ingum í inn­við­um. Þá leggur Fram­sókn mikla áherslu á end­ur­skipu­lagn­ingu banka­kerf­is­ins og það að reynt verði að vinda ofan af sölu á hlutum í Arion banka til vog­un­ar­sjóða. Þá eru allir með­vit­aðir um að kom­andi kjara­samn­ingar verða mjög mik­il­vægir í bar­átt­unni fyrir því að við­halda því efna­hags­á­standi sem hér ríkir nú áfram.

Við­mæl­endur Kjarn­ans segja það skýrt frá bæði Fram­sókn­ar­flokknum og Vinstri grænum að ýta Evr­ópu­sam­bands­málum út af borð­inu. Lilja Alfreðs­dótt­ir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði það beint út í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í gær­morgun að flokk­ur­inn muni ein­fald­lega ekki sam­þykkja slíkt. Sam­fylk­ingin, sem er sá flokkur í stjórn­ar­and­stöð­unni sem hefur sterk­ustu Evr­ópu­stefn­una, hefur ekki gert málið að frá­gangs­sök og er talin sveigj­an­leg gagn­vart því að setja það til hliðar náist saman um önnur atriði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár