Þegar meirihlutinn þegir er voðinn vís

Nafn bæj­ar­ins Tröglitz, í sam­bands­land­inu Sachsen-Anhalt í Þýska­landi, hefur á nokkrum vikum orðið sam­nefni fyrir þær áskor­anir sem Þýska­land stendur frammi fyrir vegna komu sífellt fleiri flótta­manna til lands­ins.

Fréttin sem kom Tröglitz á kortið barst í byrjun mars. Bæj­ar­stjór­inn, Marcus Nierth, hafði fengið sig fullsaddan af hót­unum og sví­virð­ingum hægri öfga­sinna í bænum og ákvað að segja af sér. Nierth hafði unnið að því að und­ir­búa komu 40 flótta­manna til bæj­ar­ins og hvatti bæj­ar­bú­ana, 2800 tals­ins, til að taka vel á móti þeim, - við dræmar und­ir­tektir. Á hverju sunnu­dags­kvöldi frá því í jan­úar höfðu um 150 íbúar bæj­ar­ins tekið þátt í mót­mæla­göngum gegn komu flótta­fólks­ins og nú stóð til að gengið yrði að heim­ili bæj­ar­stjór­ans. Nierth sá ekki annan kost í stöð­unni en að segja af sér, til að vernda fjöl­skyldu sína, og lýsti því yfir að honum þættu yfir­völd og meiri­hluti íbúa bæj­ar­ins hafa brugð­ist sér. Um pásk­ana dró aftur til tíð­inda í Tröglitz þegar eldur kom upp í hús­næði sem til stóð að myndi hýsa flótta­fólkið. Staðfest hefur verið að um íkveikju var að ræða en ekki hefur tek­ist að upp­lýsa hver stóð að henni. Eðlilega liggja þeir undir grun sem barist hafa gegn komu flótta­fólks­ins til bæj­ar­ins.

Velkomnir


Það er óhætt að segja að frétt­irnar frá Tröglitz hafi komið við kaunin á þýskum stjórn­mála­mönnum. Hver eftir annan hafa þeir lýst því yfir að flótta­menn og hæl­is­leit­endur séu vel­komnir í Þýska­landi og að ekki verði látið undan kröfum þeirra sem ala á hatri á útlend­ingum. Í kjöl­farið hafa þýskir fjöl­miðlar varpað kast­ljós­inu á mál­efni flótta­manna og hæl­is­leit­enda og reynt að svara því hvað fái fólk í litlum bæ úti á landi til að standa upp frá sófa­borð­inu á sunnu­dags­kvöldum til að sýna í verki and­stöðu sína við komu hæl­is­leit­enda til bæj­ar­ins.

Aðspurðir segja margir mót­mæl­end­anna að þeir hafi ekk­ert á móti útlend­ingum en þeir séu hræddir. Hræddir um að glæpum muni fjölga, inn­brotum og þjófn­uðum; hræddir um að þurfa að bíða enn lengur en nú þegar eftir tíma hjá heim­il­is­lækn­inum; hræddir við að fá meiri sam­keppni um þau fáu störf sem séu í boði; en líka hræddir um að ef „þetta fólk“ hangi atvinnu­laust allan dag­inn sé ómögu­legt að vita upp á hverju það taki. Margir eru líka reiðir. Reiðir yfir því að hafa ekki fengið betri upp­lýs­ingar frá bæj­ar­yf­ir­völdum, til dæmis um hvaðan flótta­menn­irnir koma, hvað þeir ætli að vera lengi, hvað þeir vilji og hver eigi að borga brús­ann.


"Geht die Scheisse weiter, gibts kein DSL" #Troeglitz pic.twitter.com/GkwobjQxLN


— fuer_die_teil­ung (@fuerdieteilung) May 1, 2015

Flótta­fólki sem kemur til Þýska­lands er dreift á þýsku sam­bands­löndin í hlut­falli við íbúa­fjölda og skatt­tekjur. Það er á ábyrgð sam­bands­land­anna að sjá fyrir fólk­inu, skaffa því hús­næði og tryggja öryggi þess, en flest löndin hafa fært þessi verk­efni yfir til hér­aða og sveit­ar­fé­laga. Á meðan Tröglitz hefur orðið að dæmi um allt sem miður getur farið, þegar koma flótta­fólks er und­ir­búin, hafa margir bent á nágranna­bæ­inn Hohen­möl­sen, þar sem búa um 10.000 manns, sem dæmi um hvernig vel geti tek­ist til. Bærinn tók nýverið á móti 58 flótta­mönnum og hafði und­ir­búið komu þeirra vel. Mikil áhersla var lögð á að upp­lýsa bæj­ar­búa, hlusta á áhyggjur þeirra og ræða þær. Meðal ann­ars var íbú­unum boðið að koma og skoða hús­næði flótta­mann­anna til að sjá með eigin augum hve fábrotin aðstaða þeirra væri. Í stuttu máli gekk áætl­unin upp, bæj­ar­búar hafa sam­ein­ast um að taka vel á móti fólk­inu og hafa aðstoðað það eftir megni. Bæj­ar­stjór­inn, Andy Haugk, vill þó gera sem minnst úr mun­inum á Tröglitz og Hohen­möl­sen. Þar í bæ sé líka hópur fólks sem hafi allt á hornum sér vegna flótta­fólks­ins og að í grunn­inn hafi sami ótt­inn verið til staðar hjá íbú­unum þar. „Við vorum heppin að hjá okkur skyldi eng­inn fáviti kveikja í“ sagði hann í nýlegu við­tali.

 

Ræturnar í hinu óþekkta


Í aust­ur­hluta Þýska­lands, sér­stak­lega í minni bæjum, eru útlend­ingar sjald­séðir. Fordómar gagn­vart flótta­fólki eiga því að ein­hverju leyti rætur sínar í ótt­anum við hið óþekkta. Ýmsir hafa líka bent á það til útskýr­ingar að þetta sé fólk sem fædd­ist í Þýska Alþýðu­lýð­veld­inu, þar hafi ekk­ert upp­gjör við nas­ista­tím­ann átt sér stað til dags­ins í dag, engin upp­reisn 68 kyn­slóð­ar­innar og engin upp­ræt­ing úreltra við­horfa, meðal ann­ars til útlend­inga. Í dag líti þetta fólk að stórum hluta á sig sem afskipt fórn­ar­lömb sam­ein­ingar Þýska­lands, sem í ald­ar­fjórð­ung hafi búið við atvinnu­leysi, fólks­flótta og brostna drauma af hennar völdum. Frá þeirra sjón­ar­hóli eigi nú að hygla flótta­fólk­inu á þeirra kostnað.

Mótmæli, móðg­anir og árásir sem bein­ast gegn hæl­is­leit­endum og flótta­fólki og bústöðum þeirra eiga sér þó ekki bara stað í gamla Austur-Þýska­landi heldur í öllu Þýska­landi og raunar víðs vegar í löndum Evrópu. Tröglitz er langt frá því að vera eins­dæmi. Samkvæmt tölum frá Amadeu Antonio stofn­un­inni og Pro Asyl voru gerðar 153 ofbeld­is­árásir á dval­ar­staði flótta­manna og hæl­is­leit­enda í Þýska­landi árið 2014, þar af 35 íkveikjur. Þetta eru nær þrisvar sinnum fleiri ofbeld­is­árásir en árið áður (2012: 24; 2013: 58). Á sama tíma hefur flótta­mönnum og hæl­is­leit­endum í Þýska­landi fjölgað mjög ört. 202 þús­und mann­eskjur sóttu um hæli í Þýska­landi árið 2014, nær fjórum sinnum fleiri en árið 2011 (2011: 53.000; 2012: 78.000; 2013: 127.000). Lang­flestir hæl­is­leit­endur komu frá Sýrlandi en því næst frá Serbíu, Erítreu og Afganistan. Útlit er fyrir að þeim muni halda áfram að fjölga hratt en á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2015 höfðu 85.000 ein­stak­lingar sótt um hæli.

Samkvæmt Dyfl­in­ar­reglum Evr­ópu­sam­bands­ins verða flótta­menn að sækja um hæli í því landi sam­bands­ins sem þeir koma fyrst til. Eins og fréttir af björg­un­ar­að­gerðum Týs við Mið­jarð­ar­haf sýna eru það oft­ast Ítalía, Grikk­land eða Malta. Þrátt fyrir það sótt­ist um þriðj­ungur allra hæl­is­um­sækj­enda í Evrópu árið 2014 eftir hæli í Þýska­landi, og það þótt landið liggi ekki að sjó nema til norð­urs og eigi ella landa­mæri að öðrum ESB-ríkjum auk Sviss. Margir umsækj­endur eiga því á hættu að vera vísað aftur til baka þangað sem þeir stigu fyrst á land. Tafir á afgreiðslu hæl­is­um­sókna hafa mikið til unn­ist upp eftir að 300 nýir starfs­menn voru ráðnir til afgreiðsl­unnar. Að með­al­tali er bið­tími afgreiðslu nú um 6 mán­uðir en rík­is­stjórnin hefur sett sér það mark­mið að þeir verði ekki fleiri en þrír. Á meðan er fólkið á fram­færi þýsku sam­bands­land­anna og því þarf að finna sama­stað. Hin öra fjölgun hæl­is­leit­enda hefur valdið því að sífellt erf­iðar reyn­ist að koma fólk­inu í almenni­legt hús­næði. Á lands­vísu búa ein­ungis um 55% hæl­is­leit­enda í íbúðum. Tæpur helm­ingur fólks­ins dvelur í stórum hópum í bráða­birgða­hús­næði; neyð­ar­skýlum, íþrótta­húsum, gáma­þyrp­ingum, tjöldum, loft­bornum/upp­blásnum húsum eða aflögðum her­skálum.

Bæj­ar­yf­ir­völd í Tröglitz ætla ekki að láta undan kröfum þeirra sem vilja ekki fá flótta­fólkið til bæj­ar­ins. Það væru röng skila­boð til hægri öfga­sinna. Fyrstu flótta­menn­irnir eru vænt­an­legir í maí og hefur þeim verið fundið nýtt hús­næði. Í nýj­ustu útgáfu viku­blaðs­ins Zeit er sagt frá því að þétt­setið hafi verið í kirkj­unni í Tröglitz síð­ast­lið­inn sunnu­dag. Tveir sýr­lenskir flótta­menn úr nágranna­bænum Hohen­möl­sen sögðu sögu sína og beðið var fyrir þeim flótta­mönnum sem eru vænt­an­legir til Tröglitz. Á göngu um bæinn síðar sama kvöld hitti blaða­maður Zeit nokkra bæj­ar­búa, krúnurak­aða í jogg­in­göllum, ekki langt frá hús­inu sem kveikt var í. „Vonandi kviknar bráðum aftur í“ segir einn í hópnum. Blaða­maður spyr hvort hann hafi heyrt rétt. „Vonandi kviknar bráðum aftur í“ end­ur­tekur hann, „svo að þeir komi örugg­lega ekki“.

Lær­dóm­ur­inn af atburð­unum í Tröglitz, og umræð­unum sem hafa farið fram í kjöl­farið, er að það þarf atbeina bæði stjórn­mála­manna og almenn­ings til þess að koma mál­efnum flótta­manna og hæl­is­leit­enda í far­sælan far­veg. Stjórn­mála­menn og stjórn­sýslan á öllum stigum þurfa að vanda sig í sam­skiptum við heima­menn; hlusta á áhyggjur þeirra og taka þær alvar­lega, svara spurn­ingum heið­ar­lega en standa um leið fast á sínu. Eftir því sem um er að ræða fátæk­ari svæði, eins og á við um Tröglitz og mörg önnur sveit­ar­fé­lög einkum í aust­ur­hluta Þýska­lands, þar sem stjórn­mála­menn hafa lengi þurft að skera niður þjón­ustu við íbú­ana, verður vand­virkni í vinnu­brögðum og rök­stuðn­ingi mik­il­væg­ari.

Yfirvöld þurfa líka að styðja vel við þá heima­menn sem vilja leggja sitt af mörkum til að aðstoða flótta­fólkið við að koma sér fyrir í nýjum heim­kynnum. Alls staðar er til fólk sem er reiðu­búið að hjálpa, hvort heldur sem er með því að leggja til gamlan hús­búnað, notuð föt eða leik­föng eða með því að fylgja fólki til læknis og túlka. Líka í Tröglitz. En á stöðum þar sem hópur hjálp­fúsra er lít­ill og raddir and­stæð­inga háværar ríður á að hinn þögli meiri­hluti láti til sín heyra, and­mæli þeim sem breiða út hat­urs­boð­skap, hlusti á þá sem eru hræddir og grípi til aðgerða ef ekki dugir annað til; upp­reisn hinna sóma­kæru.

Höfundur er stjórn­mála­fræð­ingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár