Gallerí: Tekist á um framtíð Grikklands á Evrópuþinginu

Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, var við­staddur fund Evr­ópu­þings­ins í Stras­burg í dag til að ræða stöð­una í heima­landi sínu og fram­hald við­ræðna um lán Evr­ópu­ríkja til Grikkja. Full­trúar evru­ríkj­anna lýstu mis­mun­andi sjón­ar­miðum sínum og voru ekki allir sam­mála um hver næstu skref eiga að vera, jafn­vel þó flestir virt­ust sam­mála um að Evr­ópu­sam­vinna væri leiðin framá við.

Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar ESB


„Í ljósi þeirra vand­ræða sem Grikk­land er í, má svarið alls ekki verið að snúa baki við nauð­syn þess að þróa hag­kerfið og pen­inga­kerfið áfram.“

Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands


Tsipras gagn­rýndi það að aðgerðir ESB handa Grikkjum snér­ust um að bjarga bönk­unum en almenn­ingur fékk aldrei þá hjálp sem þurfti. „Hin ein­falda stað­reynd er sú að við verðum að horfast í augu við að meiri­hluti grísku þjóð­ar­innar telur sig ekki eiga ann­arra kosta völ en að fara fram á leið út úr þessum botn­langa,“ sagði Tsipras.

Manfred Weber, Þýskaland


„Þú beitir ögrunum, við leitum sam­komu­lags. Við þér blasa rúst­irnar, við leitum að vel­megun. Þér líkar ekki við Evrópu, við elskum Evrópu. Þú ert að tala um virð­ingu, en þú segir fólk­inu þínu ítrekað ósatt og það er ekki virð­ing­ar­vert,“ sagði Weber og beindi orðum sínum til Tsipras. Hann benti jafn­framt á að fimm lönd í ESB búa við verri lífs­við­ur­væri en Grikk­land og spurði: „Hvernig ætlar að þú að segja þessu fólki að Grikk­land þoli ekki frek­ari nið­ur­skurð?“

Gianni Pittella, Ítalía


„Ég held að nú séu réttu aðstæð­urnar til að ná sam­komu­lagi og það er undir rík­is­stjórn Grikkja komið að ákveða hvaða end­ur­bætur þarf að ráð­ast í til að skapa aðstæður fyrir atvinnu­sköpun, berj­ast gegn spill­ingu og skattaund­anskotum. Þetta er allt nauð­syn­legt, ekki af því að ESB mun fara fram á það, heldur vegna þess að það hagn­ast Grikkjum.“

Ryszard Legutko, Pólland


„Það er eitt­hvað rotið í Grikk­landi en það er eitt­hvað rotið í ESB líka.“ Legutko bætti við að ef „leik­ritið“ héldi áfram yrði erfitt að kom­ast að því hvað ætti að fá mesta athygli. „Hverju erum við að reyna að bjarga? Er það mynt­sam­starfið? Er það grískt sam­fé­lag? Er það trú­verð­ug­leiki rík­is­stjórn­ar­innar eða lán­veit­enda? Er það arf­leið Angelu Merkel eða traust­ara og nán­ara Evr­ópu­sam­starf?“

Guy Verhofstadt, Belgía


„Í fimm ár höfum við flotið sof­andi að þeim feigðar­ósi sem er útganga Grikkja úr evru­sam­starf­inu, með hjálp öfga­hægri­fólks. Og síð­ustu mán­uði höfum við aukið hrað­ann að feigðar­ósnum. Það er ekki þú [Tsipras] eða við [ESB] sem borgum brús­ann, heldur er það gríska þjóðin sem mun borga fyrir útgöng­una úr evru­sam­starf­inu.“

Gabriele Zimmer, Þýskaland


„Finnum nú lausn sem er var­an­leg og heldur velli. Við skulum ekki skapa okkur til skamm­vinna frygð með því að biðja aðra um að gera hluti. Berum virð­ingu fyrir fólki og Evrópu og virðum nið­ur­stöð­una á sunnu­dag.“

Rebecca Harms, Þýskaland


Harms sagð­ist vænta þess að Tsipras bæri á borð traustar hug­myndir um end­ur­bætur og betri fram­tíð, en ekki bara hvatn­ing­ar­ræður um að nú ættum við að binda endi á spill­ingu og önnur vanda­mál. „Allt þarf að ákveða í þess­ari viku.“

Nigel Farage, Bretland


Farage gagn­rýndi inn­leið­ingu evr­unnar í ræðu sinni og sagði: „Ef þú neyðir þjóðir og ólík hag­kerfi til að kom­ast að sam­komu­lagi, án þess að leita sam­þykkis þjóð­anna, er ólík­legt að sam­starfið gangi upp og þessi áætlun hefur nú mis­tek­ist. Við erum ekki aðeins að ræða Grikk­land í dag, heldur öll ríkin við Mið­jarð­ar­hafið sem finn­ast þau föst með ranga mynt.“

Marine Le Pen, Frakkland


„Evran og aðhald eru síam­st­ví­burar. Fólkið þitt [Grikkir] sleppur ekki við aðhald án þess að ganga úr evru­sam­starf­inu.“

Eleftherios Synadinos, Grikkland


Syna­d­inos, óháður Evr­ópu­þing­maður Grikkja, vakti athygli á hörm­ungum seinni heim­styrj­aldar og her­setu Þjóð­verja í Grikk­landi. Þjóð­verjum var gert að borga Grikkjum him­in­háar skaða­bætur sem hafa ekki borist að öllu leyti. „Hvers vegna er þetta ekki tekið með í reikn­ing­inn þegar við ræðum skuldir Grikkja?“ spurði hann og bætti við Grikkjum væri full­fært að hætta í mynt­sam­starf­inu og lifa það af.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár