Viljum við í raun vinna Eurovision?

Með­al­kostn­aður við Eurovision-keppnir síð­ustu 10 ára er 4,1 millj­arðar íslenskra króna.

Svala Björgvins syngur lagið Paper í Eurovision fyrir Ísland.
Svala Björg­vins syngur lagið Paper í Eurovision fyrir Ísland. Mynd: EPA

Þátttaka í Eurovision er ekki ókeypis. Áætlað er að heild­ar­kostn­að­ur­inn við þátt­töku Rík­is­sjón­varps­ins í ár sé um 90 millj­ónir króna, þar af kostar 30 millj­ónir að senda atriðið til Kænu­garðs í Úkraínu.

Það er hins vegar marg­falt dýr­ara að vinna og þurfa að halda keppn­ina að ári. Grein­ing­ar­deild Arion banka lagð­ist yfir kostn­að­inn við Eurovision í Mark­aðs­punktum sínum í dag, í til­efni af fyrra und­an­úr­slita­kvöldi Eurovision-keppn­innar í kvöld. Þar mun Svala Björg­vins­dóttir flytja lagið Paper fyrir Íslands hönd.

Það er regla að sig­ur­land í Eurovision haldi keppn­ina að ári. Í fyrra vann Úkraína og þess vegna fer keppnin fram í höf­uð­borg lands­ins í ár. Áætlaður kostn­aður við fram­kvæmd keppn­innar er um 3,4 millj­arðar íslenskra króna, mun meira en gert var ráð fyrir í upp­hafi. Það hefur jafn­framt valdið fjaðrafoki.

Til þess hefur komið að lönd hafa dregið sig úr keppni ein­fald­lega vegna of mik­ils kostn­aðar. Bosnía og Her­segóvína verður til dæmis ekki með í ár vegna fjár­hags­erf­ið­leika. Þá segir í Mark­aðs­punkt­unum að Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hafi talið Ung­verja­land á að draga sig úr keppn­inni árið 2010 sökum kostn­aðar.

Svíar líka bestir í að halda keppnina

Svíþjóð hefur ótrú­legt nef fyrir smellnum Eurovision-hitt­urum. Svíar hafa unnið keppn­ina sex sinnum. Það er einu skipti færra en Írland, sem hefur reyndar ekki unnið síðan 1996.

[links]Og Svíar eru líka góðir í að halda keppn­ina ef tekið er mið af kostn­aði og umstangi. Keppnin var síð­ast haldin í Stokk­hólmi árið 2016 og var kostn­að­ur­inn við þá keppni sá minnsti í tíu ár, sam­kvæmt gögn­unum sem Grein­ing­ar­deild Arion Banka hefur tekið saman. Svíar héldu keppn­ina einnig í Malmö árið 2013 þar sem kostn­að­ur­inn var einnig með lægra móti.

Svíþjóð býr auð­vitað að því að eiga þá inn­viði sem til þarf til þess að halda svo stóran sjón­varps­við­burð. Kostn­að­ur­inn við það þurfa að byggja risa­stórar tón­leika­hallir getur nefni­lega kostað mikið.

[adspot]

Fórnarkostnaður

Sé kostn­að­ur­inn sem RÚV þyrfti að standa straum af settur í sam­hengi við aðra íslenska fram­leiðslu afþrey­ingar má sjá að fórn­ar­kostn­að­ur­inn við að halda Eurovision er nokkuð mik­ill.

Grein­ing­ar­deildin stillir dæm­inu upp þannig að ef Ísland neyð­ist til þess að halda keppn­ina verði hún að fá eitt­hvað af því fjár­magni sem myndi ann­ars fara í aðra dag­skrár­gerð eða afþr­ey­ingu.

Sé miðað við með­al­kostnað við fram­leiðslu Eurovision-keppn­innar síð­ustu tíu ár þá verður kostn­aður Íslands um 4,1 millj­arður króna. Fyrir þann pen­ing væri hægt að:

  • fram­leiða 4 þátt­araðir af Ófærð
  • fram­leiða 21 íslenska kvik­mynd
  • Reka Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands þrisvar á einu ári
  • Reka RÚV í 263 daga
  • Halda 460 jólatón­leika
  • Kaupa 2.590.484 ein­tök af Waterloo-plöt­unni með ABBA á vínyl. Það gera sjö plötur á hvern Íslend­ing.
  • Senda íslenska karla­lands­liðið á 3 Evr­ópu­meist­ara­mót í knatt­spyrnu
  • Reka 51 lið í Pepsí-deild karla í eitt ár

Í færslu grein­ing­ar­deild­ar­innar segir jafn­framt: „Ef við lítum út fyrir ramma lista, menn­ingar og íþrótta þá er ýmis­legt annað sem hægt væri að fjár­festa í. Til að mynda væri hægt að byggja 143 með­al­stórar íbúðir, sem væri kær­komin við­bót inn á hús­næð­is­mark­að­inn í dag, rekið Land­spít­al­ann í tæpan mánuð, borgað rekstr­ar­kostnað í eitt ár fyrir 2.300 grunn­skóla­nem­endur eða gefið öllum lands­mönnum 12 miða í Hval­fjarð­ar­göngin.“

  • Byggja 143 80 fer­metra íbúðir
  • Kaupa 106 80 fer­metra íbúðir í öllum hverfum nema 101 og 107
  • Reka Land­spít­al­ann í 25 daga
  • Borga 777 grunn­skóla­kenn­urum árs­laun
  • Borga rekstr­ar­kostnað í eitt ár fyrir 2.296 grunn­skóla­nem­endur
  • Kaupa 4.118.869 miða í Hval­fjarð­ar­göngin
  • Kaupa 1.847 nýja Toyota Yaris-bíla
  • Kaupa 54.926 Samsung Galaxy S7 og 39.231 iPhone 7

Tekjurnar eru líka miklar

Ekki má hins vegar gleyma að það fylgja því einnig tekjur að halda Eurovision. Að mestum hluta renna þær ekki beint til keppn­is­hald­ara (sem yrði að öllum lík­indum RÚV) heldur í alla geira þjóð­fé­lags­ins.

Eurovision yrði stór mark­aðs­setn­ing fyrir Ísland sem mundi hugs­an­lega skila sér í auknum áhuga og ferða­lögum til Íslands. Þá leggja margir land undir fót og ferð­ast langar leiðir til þess að vera við­staddir keppn­ina. Þar koma inn beinar tekjur í miða­sölu og fyrir ferða­þjón­ust­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

#12stig

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár