Er þjóðin verri að velja Eurovision-lög?

RÚV á að velja fram­lag Íslands, án aðkomu þjóð­ar­innar. Þetta er nið­ur­staðan er stuðst er við sögu­legan árangur Íslands.

Jóhanna Guðrún náði öðru sæti í Eurovision árið 2009. Það var besti hlutfallsegi árangur Íslands í keppninni hingað til. Jóhanna hlaut að jafnaði 5,3 stig frá öllum mótherjum samanborið við 6,6 stig að jafnaði þegar Selma lenti í öðru sæti árið 1999.
Jóhanna Guðrún náði öðru sæti í Eurovision árið 2009. Það var besti hlut­fall­segi árangur Íslands í keppn­inni hingað til. Jóhanna hlaut að jafn­aði 5,3 stig frá öllum mótherjum sam­an­borið við 6,6 stig að jafn­aði þegar Selma lenti í öðru sæti árið 1999. Mynd: EPA

Þriðja árið í röð komst fram­lag Íslands ekki áfram í úrslita­keppni Eurovision. Svala Björg­vins­dóttir er þess vegna komin heim og fær ekki að flytja lag sitt Paper aftur á úrslita­kvöld­inu í kvöld í Kænu­garði.

Íslenska lagið var valið til þátt­töku í und­ankeppni Eurovision fyrr á þessu ári. Svala naut í þeirri keppni mestrar hylli íslensku þjóð­ar­innar. Sama fyr­ir­komu­lag hefur verið haft á vali Eurovision-laga Íslands und­an­farin ár. Síðustu þrjú árin hefur Ísland hins vegar ekki kom­ist áfram úr und­an­riðli sínum og íslensku kepp­end­urnir verið sendir snemma heim.

Samkvæmt úttekt Kjarnans á árangri Íslands í Eurovision árin 1986-2016 er ljóst að betri árangur fæst ef þjóðin kemur ekki nálægt val­inu á fram­lagi Íslands.

RÚV hefur haft ýmsan hátt á því hvernig Eurovision-lögin hafa verið valin síðan 1986, þegar Ísland tók fyrst þátt. Útfærsl­urnar hafa verið margs­konar, þjóðin hefur fengið að velja, dóm­nefndir hafa verið skip­aðar um valið og full­trúar RÚV hafa stundum ráðið öll um hvaða lag sent er í keppn­ina og hver flytur það.

Skarp­héð­inn Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri RÚV, sagði í sam­tali við RÚV eftir að ljóst var að Svala fengi ekki þátt­töku­rétt í loka­kvöld­inu í kvöld, að til greina kæmi að breyta und­ankeppn­inni hér heima.

Kjarninn ákvað að kanna hvaða aðferð er væn­leg­ust til vinn­ings fyrir Ísland í Eurovision. Til þess að kom­ast að nið­ur­stöðu var ákveðið að bera saman þær aðferðir sem not­aðar hafa verið við valið hér á landi og svo úrslit Íslands í loka­keppn­inni erlendis.

Ónákvæm vísindi

Rík­is­sjón­varpið hefur beitt fjórum aðferðum við val á Eurovision-lögum Íslands. Fyrsta lagið var valið árið 1986 þegar dóm­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að Gleði­bank­inn væri besta lagið til að senda út.

[links]Dóm­nefndir ákváðu svo hvaða lög yrðu valin næstu árin á eftir. Dóm­nefnd­irnar voru ýmist skip­aðar tón­list­ar­fólki, sér­fræð­ingum eða almenn­ingi, og þeim jafn­vel skipt eftir kjör­dæmum svo hvert land­svæði fengi sína full­trúa.

Árið 1995 ákvað Sjón­varpið svo að velja fram­lagið án utan­að­kom­andi álits eða dóm­nefnda. Sá háttur var hafður á þar til árið 2000. Þá höfðu full­trúar Sjón­varps­ins valið bæði Minn hinsti dans með Páli Óskari (1997) og All out of luck með Selmu Björns­dóttur (1999). Árang­ur­inn var mis­jafn. Páll Óskar end­aði í 20 sæti en Selma í öðru sæti, sem varð besti árangur Íslands í Eurovision.

Á nýrri öld hefur Rík­is­sjón­varpið breytt nokkuð oft um stefnu. Dóm­nefndir hafa komið til sög­unnar og full­trúar Sjón­varps­ins hafa valið sjálfir. Oftast hefur íslensku þjóð­inni þó verið gef­inn kostur á að velja lagið í síma­kosn­ingu.

Síðustu sjö árin hefur verið blandað kerfi síma­kosn­ingar og dóm­nefndar, þar sem dóm­nefnd hefur átt þátt í að velja lög til að taka þátt í ein­vígi tveggja efstu lag­anna í und­ankeppni Eurovision hér heima.

Jaðarsetning Íslands

Grein­ingin hér er aðeins til gam­ans gerð. Í keppn­inni úti hafa einnig verið gerðar breyt­ingar í gegnum tíð­ina. Þeim löndum sem hafa viljað taka þátt hefur fjölgað mikið síð­ustu 15 ár eða svo, og nú er öllum löndum gert að taka þátt í und­an­úr­slitum til þess að kom­ast í úrslit. Aðeins upp­runa­legar þátt­töku­þjóðir í fyrstu keppn­inni árið 1956 eiga fast sæti í úrslitum.

Vert er að taka fram að síðan Eur­vision-keppn­inni var breytt árið 2004 hefur Íslandi gengið ver að sækja stig. Áður en þátt­töku­þjóðum var fjölgað og sér­stök und­an­kvöld haldin til að ákvarða hvaða þjóðir fengju að taka þátt í loka­keppn­inni tókst Íslandi betur að sækja stig; fengu að jafn­aði 2,16 stig frá hverju mótherja. Frá og með 2004 hefur Ísland aðeins fengið 1,58 stig að jafn­aði frá hverjum mótherja.

Samkvæmt kort­inu hér að ofan má sjá hvernig Ísland hefur orðið jað­ar­sett­ara í Eurovision, land­fræði­lega séð. Nær allar þær þjóðir sem hafið hafa þátt­töku á þess­ari öld eru í því sem jafnan er kallað Austur-Evrópa.

Leyfum RÚV velja

Til þess að meta árangur mis­mun­andi kerfa þurfti að beita nokkrum ein­föld­unum. Það þarf að und­an­skilja sam­keppn­ina sem Ísland fær í loka­keppni Eurovision og horfa blákalt á það hversu vel aðrar Evr­ópu­þjóðir kunnu að meta fram­lag okkar.

Öll þátt­tök­u­lönd hafa aðeins tak­mark­aðan fjölda stiga til að deila á milli mótherja sinna í Eurovision. Stiga­gjöfin hefur alltaf verið eins: mest er hægt að fá 12 stig, næst mest 10, og svo 8 stig og niður í 0.

Með því að reikna út með­al­fjölda stiga sem Ísland hefur fengið frá hverjum mótherja í Eurovision, síðan Ísland tók fyrst þátt árið 1986, kemur í ljós að flest stig fást ef RÚV er leyft að velja hvaða atriði verður fram­lag Íslands.

Ef RÚV velur hefur Ísland fengið að jafn­aði 2,5 stig frá hverjum mótherja. Næst besta leiðin er að velja atriðið í beinni síma­kosn­ingu, þannig hefur Ísland fengið að jafn­aði 2,0 stig frá hverjum mótherja. Dóm­nefndir skila okkur að jafn­aði 1,9 stigi frá hverjum mótherja.

Versta aðferðin er að láta dóm­nefnd hafa vægi á móti síma­kosn­ingu í und­ankeppn­inni. Það hefur bein­línis gef­ist hræði­lega og skilað okkur að jafn­aði 1,1 stigi frá hverjum mótherja.

Miðað við miðju

Aðrar leiðir til sam­an­burðar á árangri Íslands voru kann­aðar, þó að stiga­gjöfin sé sú sem lagt er traust á hér.

Árangur Íslands var einnig mið­aður við miðju úrslita­töfl­unnar. Árið 1991 lenti Ísland í 15 sæti af 22 löndum sem tóku þátt. Við lentu þess vegna fjórum sætum fyrir neðan miðja stiga­töfl­una. Ísland hefur 14 sinnum lent fyrir miðri töflu eða ofan, miðað við 15 skipti fyrir neðan miðju. Að jafn­aði hefur Ísland lent 0,9 sæti fyrir neðan miðju.

Í þessum sam­an­burði gengur okkur að jafn­aði verst þegar Ísland velur lagið sitt í ein­vígi þar sem dóm­arar fá að koma að ákvörð­un­inni um hvaða lög keppa í ein­víg­inu. Okkur gengur hins vegar best að kom­ast yfir miðju ef lagið er valið í hreinni síma­kosn­ingu.

Hlutfallslegur árangur

Það má einnig taka mið af hlut­falls­legum árangri Íslands í loka­keppn­inni. Þetta er gert með því að bera saman fjölda kepp­enda við það sæti sem Ísland lenti í að lokum í Eurovision.

Þegar við lentum í síð­asta sæti árið 1989 var hlut­falls­legur árangur okkar 0%. Þegar við lentum í 12 sæti af 24 kepp­endum árið 2000 var hlut­falls­legur árangur okkar 50%. Og þegar við lentum í öðru sæti árið 2009 var hlut­falls­legur árangur okkar 95,24%. Sigur mundi þýða 100% árangur.

Íslandi gengur að jafn­aði hlut­falls­lega best ef valið er með hreinni síma­kosn­ingu; aðeins betur en ef full­trúum RÚV er leyft að velja. Það munar alls ekki miklu: 50,63% árangur gegn 49,71% árangri.

Dóm­nefndir ættu sam­kvæmt þessu ekki að fá að koma nálægt val­inu. Það er að segja ef að mark­miðið er að ná sem bestum hlut­falls­legum árangri. Hreinn úrskurður dóm­nefnda skilar að jafn­aði 40,15% árangri og blandað val síma­kosn­ingar og dóm­nefnda skilar 43,36% árangri.

Gögnin sem stuðst er við í þess­ari grein­ingu má öll finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

#12stig

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár