Microsoft spáir Ítölum sigri í Eurovison

Spennan magn­ast fyrir Eurovi­son í Úkraínu.

Svala Björgvins syngur lagið Paper í Eurovision fyrir Ísland.
Svala Björg­vins syngur lagið Paper í Eurovision fyrir Ísland. Mynd: EPA

Microsoft hefur spáð fyrir um nið­ur­stöðu í Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva, Eurovi­son. Spáin byggir á raun­tíma­upp­lýs­ingum af vefnum, sam­fé­lags­miðlum og leit­ar­vélum sem eru síðan pöruð við sögu­leg gögn til að fá hvað áreið­an­leg­ustu nið­ur­stöð­urnar.

Þessi aðferð leiðir það fram, að Ítalía standi uppi sem sig­ur­veg­ari að þessu sinni.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Microsoft á Íslandi.

„Fyr­ir­tæki geta nýtt sér sömu reikni­að­ferðir til að ná sam­keppn­is­for­skoti og auka skil­virkni. Samkvæmt spám reikni­að­ferð­innar er ansi mjótt er á munum á tveimur lík­leg­ustu sig­ur­veg­ur­unum en eins og staðan er í dag eru lík­urnar á að Ítalía beri sigur úr býtum í ár 18% en sænski flytj­and­inn fylgir fast á eftir með 16,8%,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Litlar líkur eru á að Svala Björg­vins­dóttir hreppi vinn­ing­inn þetta árið þar sem lag­inu er spáð 0,3% vinn­ings­líkum, í 30. til 33. sæti, ásamt Hvíta-Rúss­landi, Póllandi og San Marínó.

Neðst með 0,1% vinn­ings­líkur eru Tékkland, Georgía, Ung­verja­land, Írland og Slóvakía. Spáin verður upp­færð að lok­inni und­ankeppn­inni sem fer fram á morgun, þriðju­dag, og á fimmtu­dag­inn.

Nið­ur­stöð­urnar munu verða upp­færðar eftir að und­ankeppn­unum á þriðju­dag­inn og fimmtu­dag­inn lýkur og er hægt að nálg­ast þær á vefnum.

Til að sýna fram á notk­un­ar­mögu­leika nýrrar reikni­að­ferðar (e. algorithm) Microsoft, notar tækniris­inn söngvakeppn­ina sem dæmi og spáir til um úrslit og sig­ur­veg­ara keppn­innar með hjálp raun­tíma­upp­lýs­inga. „Reikni­að­ferðir Microsoft gegna mik­il­vægu hlut­verki í þeim staf­rænu breyt­ingum nú standa yfir þvert á atvinnu­vegi og heims­álfur. Fyr­ir­tæki af öllum stærðum og gerðum geta notað sömu aðferðir og not­aðar voru til að spá fyrir um nið­ur­stöður Eurovision. Til dæmis við að ákveða hvenær best sé að mark­að­setja nýja vöru eða að takast á við hin ýmsu vanda­mál áður en þau verða að veru­leika,“ segir Heimir Fannar Gunn­laugs­son, fram­kvæmda­stjóri Microsoft á Íslandi. „Getan til að nýta staf­ræn gögn gerir fyr­ir­tækjum kleift að vinna hefð­bundin verk hraðar og á skil­virk­ari hátt og geta þær for­spárað­ferðir sem Microsoft býður upp á verið mik­il­vægar til að sjá tæki­færin á undan sam­keppn­is­að­ilum,“ bætir hann við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár