Stjörnustríð Frakka og Japana í algleymingi - Ísland enn án stjörnu

Michelin hand­bókin 2015 í Frakk­landi var kynnt með mik­illi við­höfn á mánu­dag­inn í franska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Það er mikið kapps­mál hjá franska rík­inu að landið sé í for­ystu í mat­ar­menn­ingu heims­ins og þess vegna er jafnan mikið gert úr þessum við­burði.

Tveir nýir veit­inga­staðir voru sæmdir þremur Michelin-stjörnum, sem er ein­hver æðsta við­ur­kenn­ing sem hægt er að hljóta í mat­ar­gerð­ar­list. Annars vegar stað­ur­inn Pavillon Leoyen við Champs-Élysées í París, undir for­ystu mat­reiðslu­meist­ar­ans Yannick Alléno, sem raunar áður hefur unnið til þriggja stjarna og er frægur fyrir að gera ein­hverjar bestu sósur Frakk­lands. Hins vegar er það stað­ur­inn La Bouitte í Saint-Martin-de Belleville, sem er lítið skíða­hótel sem feðgarnir Réne og Maxime Meilleur reka. Það er í litlu þorpi í í frönsku Ölpunum og þrátt fyrir að vera stað­sett í 2500 metrum yfir sjáv­ar­máli eru feðgarnir einkum þekktir fyrir ferska sjáv­ar­rétti.

[caption id="attachment_19127" align="aligncenter" width="401"] (Frá vinstri) Frönsku kokk­arnir Maxime Meilleur, faðir hans Rene Meilleur, Michael Ellis full­trúi Michelin og mat­reiðslu­mað­ur­inn Yannick Alleno, við kynn­ingu á á nýju Michelin hand­bók­inni.[/caption]

(Frá vinstri) Frönsku kokkarnir Maxime Meilleur, faðir hans Rene Meilleur, Michael Ellis fulltrúi Michelin og matreiðslumaðurinn Yannick Alleno, við kynningu á á nýju Michelin handbókinni.
(Frá vinstri) Frönsku kokk­arnir Maxime Meilleur, faðir hans Rene Meilleur, Michael Ellis full­trúi Michelin og mat­reiðslu­mað­ur­inn Yannick Alleno, við kynn­ingu á á nýju Michelin hand­bók­inni.

Það er stór og mik­il­væg og ekki síst dramat­ísk stund í frönsku matar- og menn­ing­ar­lífi þegar Michelin hand­bókin kemur út. Á meðan sumir fá stjörnu missa aðrir sínar. Alls 609 veit­inga­staðir í Frakk­landi eru Michelin-stjörnum prýddir, þar af hafa 27 staðir nú þrjár stjörnur og níu þeirra eru í París.

Michelin-stjörnur


Michelin hand­bókin er fræg­asta og virtasta við­ur­kenn­ing heims í veit­inga­húsa­brans­anum. Hún kom fyrst út alda­móta­árið 1900 þegar bræð­urnir og dekkja­fram­leið­end­urnir André og Édouard Michelin gáfu út leið­ar­vísi um girni­lega veit­inga­staði fyrir öku­þóra sem geyst­ust um landið í leit að ævin­týrum og góðum mat. Þá voru um þrjú þús­und bílar í Frakk­landi en bræð­urnir ákváðu engu síður að gefa hana út í 35.000 ein­tökum og gefa hana frítt. Það var gert til þess að hvetja fólk til þess að kaupa sér bíl og ferð­ast um á eigin vegum, en innan um veit­inga­húsa­gagn­rýni voru enn fremur ýmis konar holl­ráð og leið­bein­ingar um dekkja­við­gerðir, bíla, mót­or­hjól, bens­ín­stöðvar og veg­vísar. Síðar komu út Michelin bækur fyrir önnur lönd og með tím­anum hefur þetta verið mik­il­væg­asti og vin­sæl­asti leið­ar­vísir um veit­inga­hús heims.

Stjörnu­kerfi Michelin frá 1936


Ein stjarna – Afar gott veit­inga­hús. Býður upp á mat í fyrsta flokki.


Tvær stjörnur – Frábær elda­menska. Gæða­staður.


Þrjár stjörnur - Algjör­lega fram­úr­skar­andi elda­mennska sem þess virði að gera sér sér­staka ferð fyrir


Mat­ar­gagn­rýnendur Michelin fara um huldu höfði og þefa upp bestu stað­ina. Stað­al­kerfi og ein­kunna­gjöf þeirra er flókin og marg­slungin; dæmt er eftir fram­setn­ingu, útliti og bragði mat­ar­ins, þjón­ustu, and­rúms­lofti og stemn­ingu. Hér geta minnstu smá­at­riði skipti máli; áferðin á matnum, hnífa­pör, dúkar, tón­list, lyktin í hús­inu og svo mætti lengi telja. Ferð á veit­inga­hús á að vera upp­lifun og ævin­týri; allt frá upp­hafi til enda.

Þriggja stjörnu Michelin-staðir í París


Pierre Gagnaire – 8. hverfi
Epicure au Bristol – 8. hverfi
Le Pré Catelan – 16. hverfi
Guy Savoy – 17. hverfi
Ledoyen – 8. hverfi
L'Ambroisie – 4. hverfi
Le Meurice Alain Ducasse – 1. hverfi
Astrance – 16. hverfi
Arpège – 7. hverfi

[caption id="attachment_19128" align="aligncenter" width="635"] Eitt helsta kenni­leiti Parísar, hinn sögu­frægi Eiffel-turn sem byggður var árið 1889 fyrir heims­sýn­ing­una þar í borg.[/caption]

Frakkar að tapa forystunni?


Alls eru 609 Michelin-stjörnu­staðir í Frakk­landi. Hvergi í heim­inum eru þeir fleiri. Frakkar löngum státað sig af mat­reiðslu­hefð sinni sem er meira að segja á heimsminja­skrá UNESCO. Þó eru ýmis teikn á lofti um að Frakkar séu að tapa for­yst­unni. Michelin stjörn­unum hefur fækkað jafnt og þétt hin síð­ari ár, eða að með­al­tali um eina á ári.

Eiffel
Eiffel

Japanir eiga flesta þriggja stjörnu staði eða alls 32 á meðan Frakkar eiga 27 - en um heim allan eru 111 þriggja stjörnu staðir. Japönsk mat­ar­menn­ing hefur verið á flugi síð­ast­liðin ár – nú eru um 516 Michelin-stjörnu­staðir í Japan. Jap­anskir mat­reiðslu­meist­arar hafa verið dug­legir að taka það besta úr franska, spænska og jafn­vel nor­ræna eld­hús­inu og blanda því við hina alda­gömlu, stíl­hreinu og fal­legu japönsku mat­reiðslu­hefð. Japanir hafa sömu­leiðis sjúk­legan áhuga á mat; vin­sæl­ustu sjón­varps­þætt­irnir, bækur og blöð fjalla um mat.

[caption id="attachment_19129" align="aligncenter" width="537"] Ljúf­fengur jap­anskur krabb­aréttur. Flestir þriggja stjörnu veitnga­stað­irnir eru í Japan.[/caption]

Ljúffengur japanskur krabbaréttur. Flestir þriggja stjörnu veitngastaðirnir eru í Japan.
Ljúf­fengur jap­anskur krabb­aréttur. Flestir þriggja stjörnu veitnga­stað­irnir eru í Japan.

Tokyo er því orðin ein helsta höf­uð­borg kræs­inga en á eftir fylgja París, Lyon, San Sebastien, Berlín, New York og London. Alla vega ef miðað er við staðla Michelin.

Margir hafa hins vegar áhyggjur af stöðu franska eld­húss­ins; segja það staðnað og lítið hafa breyst síðan „nýja eld­húsið“ kom fram á sjón­ar­sviðið fyrir um 40 árum. Á meðan hafa undra­verðir hlutir átt sér stað á Spáni, í Banda­ríkj­unum og Breta­landi þar sem menn hafa tekið það besta frá mörgum löndum og blandað saman. Nýnor­ræna, skand­in­av­íska eld­húsið hefur líka komið sterkt inn. Gagn­rýnendur segja Frakka of stolta og íhalds­sama til þess að leggja í frek­ari til­raunir með sínar mat­reiðslu­hefðir. Þessar alhæf­ingar eiga kannski ekki alltaf við rök að styðj­ast því ýmis­konar nýir straumar og áhrif hafa rutt sér til rúms í franska eld­hús­inu upp á síðkastið.

Stjarnan segir ekki allt


En eru Michelin endi­lega bestu veit­inga­stað­irnir? Það er alls ekki gefið. Á meðan sumir elt­ast við stjörn­u­rnar og leggja mikið á sig og borga mikið fé fyrir að borða á stjörnu­stöð­unum, finnst öðrum slíkt vera hégómi og pen­inga­eyðsla. Michelin-stað­irnir hafa orð á sér fyrir að vera allt of dýrir, snobb­aðir, fyr­ir­sjá­an­legir og leið­in­legir með til­gerð­ar­legan og óspenn­andi mat; froðu­sull og stæla. Michelin-hand­bókin hafi leitt af sér sið­lausa verð­lagn­ingu þar sem stundum er rukk­aðar 150 þús­und krónur fyrir hádeg­is­mat! Bestu stað­irnir séu frekar skemmti­leg, frum­leg og sniðug veit­inga­hús, upp­full af sköp­un­ar­gleði eða þá bara heim­il­is­legir staðir sem bjóða upp á ferskan og ein­faldan mat.

Hverjir eru bestir?


Japanir eiga flesta þriggja stjörnu­staði heims, á eftir fylgja Frakkar (sem eiga svo flestar stjörnur sam­tals) síðan koma Þjóð­verjar (en margir hafa veðjað á að þýsk mat­reiðsla verði jafn­vel næsta æði í mat­ar­heim­inum), svo Banda­ríkja­menn og Ítalir. Meira að segja Bretar, sem voru þekktir fyrir versta mat í heimi, hafa tekið sig á og rakað til sín stjörnum und­an­farin ár.

Athygli vekur að bæði Svíar og Danir eiga þrettán Michelin stjörnu­staði hvor. Ísland er eina landið á Norð­ur­löndum sem ekki hefur fengið Michelin-stjörnu. Hvenær skyldi koma að því?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár