Freyr Eyjólfs: Mun Charlie Hebdo árásin breyta Frakklandi?

Árásin á skrif­stofur skop­mynda­blaðs­ins Charlie Hebdo er nú skil­greind sem hryðju­verk; árás sem af ásetn­ingi er beint gegn almennum borg­urum til ógn­unar - sem framin er í þeim til­gangi að ná fram stjórn­mála­legum eða öðrum hug­mynda­fræði­legum mark­miðum.

[caption id="attachment_16218" align="align­right" width="150"] Freyr Eyj­ólfs­son.[/caption]

Freyr Eyjólfsson.
Freyr Eyj­ólfs­son.

Hryðju­verka­árásin í París er skil­greind sem árás á mál­frelsið; árás á blaða­menn og tján­inga­frelsið. Skilaboð hryðju­verka­mann­anna virð­ast vera að ekki sé hægt að segja hvað sem er – það megi ekki gera grín að öllu! Grunn­gildi franska lýð­veld­is­ins eru hins vegar: Frelsi, jafn­rétti og bræðra­lag. Það er löng hefð fyrir beittu ádeilu­gríni og skop­myndum í Frakk­landi sem má rekja aftur til Voltaire, François Rabelais og Moliére.

Þekkt­ustu skop­mynda­teikn­arar Frakk­lands: Cabu, Charb, Tignous, og Wolinski létu líf sitt fyrir verk sín og störf; ádeilu­grín og flug­beitta blaða­mennsku.

Mun árásin marka frönsk stjórnmál?


Þetta er mann­skæð­asta hryðju­verka­áras í tvo ára­tugi og margir ótt­ast að hún muni jafn­vel breyta frönsku sam­fé­lagi. Frakkar hafa tekið þátt í hern­að­ar­að­gerðum í Írak, Afganistan, Líbíu, Malí, Sýrlandi og víðar og lengi hefur hryðju­verka­árás legið í loft­inu og margar hót­anir borist. Francois Hollande sagði þegar hann mætti á vett­vang í dag að franska leyni­þjón­ustan hefði ítrekað komið í veg fyrir til­raunir til hryðju­verka und­an­farið. Nýlega til­kynnti franska lög­reglan frá viða­miklum hand­tökum á grun­uðum hryðju­verka­mönnum.

[quote font="0" align="right"]Strax í dag verður maður áþreif­an­lega var við aukna lög­gæslu og búist er við því að öll örygg­is­gæsla verða aukin til muna á næstu dögum, vikum og jafn­vel árum.[/quote]

Nú er spurt: Mun árásin breyta frönsku sam­fé­lagi? Það stytt­ist í þing­kosn­ingar. Mun Þjóð­fylk­ingin, for­mað­ur­inn Marine Le Pen og hægri öfga­menn nýta sér þennan hryll­ing? Þjóð­fylk­ingin hefur löngum haft horn í síðu múslima og beint spjótum sínum að þeim og inn­flytj­endum. Margir ótt­ast að árásin eigi eftir að efla Þjóð­fylk­ing­una og jafn­vel fleyta Marine Le Pen í for­seta­emb­ættið. Auðvitað er of snemmt að spá fyrir um allt slíkt – en þetta er engu að síður umræðan þessa klukku­tíma eftir árás­ina.

Mun árásin draga kjark úr blaðamönnum?


Mun árásin á ein­hvern hátt hræða blaða­menn? Draga úr beittu gríni? Það er hefð fyrir skörpum rök­ræðum í Frakk­landi, háði og hvers konar gagn­rýni. Fyrstu við­brögð í dag eru þau að fylla verði skarð tíma­rits­ins Charlie Hebdo; halda áfram skörpu ádeilu­gríni og skop­myndum. Nú sé brýnt að frelsi blaða­manna og lista­manna sé virt sem aldrei fyrr.

Árásin er túlkuð af Francois Hollande sem árás á Frakk­land og árás á frönsk gildi. Strax í dag verður maður áþreif­an­lega var við aukna lög­gæslu og búist er við því að öll örygg­is­gæsla verða aukin til muna á næstu dögum, vikum og jafn­vel árum. Afleið­ingar gætu sömu­leiðis verið aukið eft­ir­lit, fleiri örygg­is­mynda­vélar, njósnir, hler­arnir og fleira í þeim dúr.

Þessa stund­ina eru frönsk yfir­völd á nálum – ALLT verður gert til þess að finna og hand­sama ódæð­is­menn­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár