Hefur lánað 18,4 milljarða til félaga sem eiga ekki að vera rekin í hagnaðarskyni

Íbúða­lána­sjóður hefur lánað 25 félögum vel á annað tug millj­arða á grund­velli reglu­gerðar sem heim­ilar bara lán til aðila sem ekki eru reknir í hagn­að­ar­skyni. Þorri þeirra lána fór til Heima­valla, sem var skráð á markað í maí og ætlar sér að greiða arð.

Guðbrandur Sigurðsson hringir kauphallarbjöllunni þegar viðskipti hófust með bréf í Heimavöllum í síðasta mánuði.
Guð­brandur Sig­urðs­son hringir kaup­hall­ar­bjöll­unni þegar við­skipti hófust með bréf í Heima­völlum í síð­asta mán­uði. Mynd: Nasdaq Iceland

Íbúða­lána­sjóður hefur sam­tals lánað 18,4 millj­arða króna til kaupa eða bygg­inga á 1.325 íbúðum á grund­velli reglu­gerðar sem ætlað er að tryggja að lán­veit­ing­arnar fari ein­ungis til aðila sem ekki eru reknir í hagn­að­ar­skyni.

[links]Þar af eru um tólf millj­arðar króna lán til hluta­fé­laga eða einka­hluta­fé­laga. Um átta millj­arðar króna af þeirri upp­hæð eru lán til Heima­valla, stærsta leigu­fé­lags lands­ins sem starfar á almennum mark­aði. Því eru 43,4 pró­sent allra útistand­andi lána Íbúða­lána­sjóðs sem veitt hafa verið í sam­ræmi við skil­yrði reglu­gerð­ar­innar til Heima­valla. Alls skuldar félagið Íbúða­lána­sjóði 18,6 millj­arða króna, en hluti þeirra lána eru svokölluð almenn leigu­í­búð­ar­lán sem um gilda mun rýmri reglur.

Heima­vellir voru skráðir á markað í síð­asta mán­uði og stefna að því að end­ur­fjár­magna lánin frá Íbúða­lána­sjóði svo félagið geti losnað undan þeim kvöðum sem þau setja um að þiggj­endur lán­anna megi ekki greiða út arð.

Mega ekki greiða arð

Reglu­gerð 1042/2013 snýst um að Íbúða­lána­sjóður, sem er í eigu rík­is­ins, veiti lán til sveit­ar­fé­laga, félaga og félaga­sam­taka sem ætl­aðar eru til bygg­ingar eða kaupa á leigu­í­búðum. Markmið reglu­gerð­ar­innar var að „stuðla að fram­boði á leigu­í­búðum fyrir almenn­ing á við­ráð­an­legum kjörum“.

[adspot]Reglu­gerðin setur þau skil­yrði að allir sem fái lán undir hatti hennar megi ekki vera reknir í hagn­að­ar­skyni „og úr þeim má hvorki greiða arð né arðs­gildi“.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Íbúða­lána­sjóði hefur hann lánað til alls 25 félaga og félaga­sam­taka á grund­velli heim­ild­ar­innar. Þar af er eitt hluta­fé­lag, 17 einka­hluta­fé­lög, þrjár sjálfs­eign­ar­stofn­anir, tvö hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög, eitt byggða­sam­lag og ein félaga­sam­tök.

[box]Lánin eru tvenns konar. Annars svokölluð leigu­í­búð­ar­lán sem eru ekki félags­leg. Umfang þeirra er sam­tals 12,2 millj­arðar króna og lán­tak­end­urnir 20 tals­ins. Kjarninn hefur kallað eftir upp­lýs­ingum um hverjir þeir séu og er unnið að því innan Íbúða­lána­sjóðs að kanna hvort hægt sé að veita þær upp­lýs­ingar án þess að brjóta gegn trún­að­ar­á­kvæðum sem eru í lána­samn­ing­unum.

Til við­bótar hafa verið veitt svokölluð félags­leg íbúð­ar­lán að fjár­hæð 6,1 millj­arður króa til alls sex félaga. Kjarninn hefur einnig kallað eftir upp­lýs­ingum um hvaða félög er þar um að ræða. Félags­legu íbúð­ar­lánin eru bundin sömu skil­yrðum og almennu leigu­í­búð­ar­lánin auk þess sem að við­bót­ar­skil­yrði eru um að íbúð­irnar sem lánað er til má ein­göngu leigja til þeirra ein­stak­lingar og fjöl­skyldna sem eru undir ákveðnum tekju- og eign­ar­mörkum. Þau lán eru auk þess veitt á nið­ur­greiddum vöxtum. Heimild til að veita slík lán féll úr gildi um síð­ustu ára­mót.

Ríkið selur og ríkið lánar

Kjarninn greindi frá því 25. maí síð­ast­lið­inn að ein stærsti ein­staki lán­tak­andi Íbúða­lána­sjóðs sé Heima­vellir, stærsta almenna leigu­fé­lag lands­ins sem á um tvö þús­und leigu­í­búðir, sem skuldar sjóðnum 18,6 millj­arða króna. Það eru rúm­lega helm­ingur af öllum vaxta­ber­andi skuldum Heima­valla. Á meðal ann­arra lán­veit­enda Heima­valla eru rík­is­bank­inn Lands­bank­inn.

Í frétta­skýr­ingu Kjarnans kom líka fram að langstærsti selj­andi þeirra íbúða sem Heima­vellir hafa viðað að sér frá því að félagið var stofnað í febr­úar 2015 er íslenska ríkið, ann­ars vegar í gegnum Íbúða­lána­sjóð og hins vegar í gegnum félagið Kadeco.

Heima­vellir hafa aldrei borgað út arð, enda væri það í and­stöðu við skil­yrði hluta þeirra lána sem félagið hefur fengið hjá Íbúða­lána­sjóði. Félagið stefnir þó á, sam­kvæmt skrán­ing­ar­lýs­ingu þess, að gera það „þegar rekstur félags­ins er kom­inn í jafn­vægi“. Því jafn­vægi verður náð þegar að Heima­vellir hafa náð því yfir­lýstu mark­miði sínu að „end­ur­fjár­magna þessi lán á næstu miss­erum enda telja stjórn­endur að félag­inu muni bjóð­ast betri kjör og skil­málar á mark­aði. Ekki er á þessu stigi hægt að segja til um hvenær slíkri end­ur­fjár­mögnun mun ljúka né á hvaða kjörum hún mun bjóð­ast. Sú hætta er fyrir hendi að félag­inu tak­ist ekki að end­ur­fjár­magna lánin á kjörum sem það telur ásætt­an­leg. Komi til þess, og félagið ákveður að eiga eign­irnar áfram, munu við­kom­andi dótt­ur­fé­lög áfram þurfa að lúta skil­yrðum Reglu­gerð­ar­innar, þ.m.t. banni við greiðslu arðs eða arðsí­gildis.“

Greiddu eigendum og stjórnendum þóknanir fyrir umsýslu

Annað skil­yrði sem er sett í reglu­gerð­inni er að greiðslur til eig­enda megi „aðeins fela í sér eðli­legt end­ur­gjald fyrir þá vinnu eða þjón­ustu sem þeir hafa veitt félag­inu“.

Í til­felli Heima­valla kom þetta skil­yrði ekki í veg fyrir að Eign­ar­halds­fé­lag­inu Heima­vellir GP, sem sá um umsýslu eigna fyrir Heima­velli, hafði fengið sam­tals 480 millj­ónir króna í þóknana­greiðslur. Samkvæmt umfjöllun Frétta­blaðs­ins um málið í mars fékk félagið greitt 270 millj­ónir króna á árinu 2017 einu saman vegna þókn­ana fyrir grein­ingu og fram­kvæmdar fjár­fest­inga. Þar kom fram að helstu hlut­hafar Heima­valla GP í byrjun árs 2017 hafi verið félög í eigu Magnúsar Pálma Örn­ólfs­sonar, fjár­festis og fyrr­ver­andi starfs­manns Glitnis, Magnúsar Magn­ús­sonar, fjár­festis og stjórn­ar­for­manns Heima­valla, Halldórs Krist­jáns­sonar, stjórn­ar­manns í Heima­völlum, og Sturlu Sig­hvats­sonar, athafna­manns og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Heima­valla. Auk þess áttu Ari Edwald, for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar og stjórn­ar­maður í Heima­völlum, og Arnar Gauti Reyn­is­son, fjár­mála­stjóri Heima­valla, báðir 2,5 pró­senta hlut í félag­inu.

Þessar greiðslur voru mögu­legar vegna þess að lán Íbúða­lána­sjóðs eru til dótt­ur­fé­laga Heima­valla hf., félags­ins sem skráð var á markað. Það félag var nán­ast að öllu leyti í eigu fag­fjár­festa­sjóðs­ins Heima­valla leigu­fé­lags slhf. um síð­ustu ára­mót. Sá sjóður greiddi þóknana­greiðsl­urnar.

Leiguverð hækkar þrátt fyrir lægri vexti

Leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað um 96 pró­sent á átta árum. Á síð­ustu tveimur árum hefur það hækkað um 30 pró­sent. Í nýlegri könnun sem gerð var fyrir Íbúða­lána­sjóð kom fram að þriðji hver leigj­andi borgi meira en helm­ing af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu og fáir þeirra geta safnað sér sparifé vegna hás leigu­kostn­aðar. Ein­ungis 14 pró­sent þeirra sem eru á leigu­mark­aði vilja vera þar.

Í morgun var greint frá því, í mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs, að leigu­verð hafi hækkað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þrátt fyrir að vextir á íbúða­lánum hafi haldið áfram að lækka.

Í lok maí sendi Íbúða­lána­sjóður 20 leigu­fé­lögum sem eru með lán hjá sjóðnum bréf þar sem kallað var eftir upp­lýs­ingum um verð­lagn­ingu leigu­í­búða í þeirra eigu, og eftir atvikum um hækk­anir á húsa­leigu þeirra til leigu­taka.

Skömmu áður sagði Una Jóns­dóttir, deild­ar­stjóri leigu­mark­aðs­deildar Íbúða­lána­sjóðs, að hann hefði áhyggjur af því að „ við­skipta­vinir hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga séu að hluta til ein­stak­lingar og fjöl­skyldur sem ráða ekki við aðstæð­urnar á mark­aðnum eins og hann er í dag. Stór hópur fólks ræður ekki við að greiða svo háa leigu en á ekki í önnur hús að venda og því má segja að mark­að­ur­inn sé að bregð­ast þessum hópum. Við slíkar aðstæður er æski­legt að ríki og sveit­ar­fé­lög grípi inn í.“ Þessi ummæli félli í til­efni þess að sjóð­ur­inn afhenti Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, inn­legg sjóðs­ins þar sem fjallað var um erf­iðar aðstæður leigj­enda hér­lendis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár