Átta smit greindust innanlands

Allir sem greindust inn­an­lands í gær voru í sótt­kví við grein­ingu, en alls voru rúm­lega 2.000 sýni tekin. Fimm smit greindust í landamæra­skimun.

Stöðugur straumur fólks var í sýnatöku við Suðurlandsbraut 34 er Kjarninn leit þar við í morgun.
Stöðugur straumur fólks var í sýna­töku við Suð­ur­lands­braut 34 er Kjarninn leit þar við í morgun. Mynd: Arnar Þór Ingólfsson

Átta ein­stak­lingar greindust með COVID-19 inn­an­lands í gær, sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is. Allir sem greindust inn­an­lands í gær voru í sótt­kví við grein­ingu. Alls voru tekin rúm­lega tvö­þús­und sýni inn­an­lands.

Þetta eru færri smit en greindust í gær – en þá voru þau 17 og þar af tvö hjá ein­stak­lingum sem voru utan sótt­kvíar. Mörg smit­anna eru hjá nem­endum í grunn­skólum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Fimm smit greindust í landamæra­skimun í gær, öll í fyrri skimun ein­stak­linga sem komu hingað til lands.

Harðar aðgerðir tóku gildi á miðnætti

Á mið­nætti tók gildi reglu­gerð um sam­fé­lags­legar tak­mark­anir í nafni sótt­varna, sem eru þær hörð­ustu frá því að far­ald­ur­inn fór af stað hér inn­an­lands fyrir rúmu ári síðan.

Leið­togar rík­is­stjórn­ar­innar sögðu að með því að stíga mjög fast til jarðar væri von­ast til þess að sótt­varn­ar­að­gerðir myndu kveða þá útbreiðslu smita sem virð­ist í fæð­ingu niður á skemmri tíma.

Tíu manna fjölda­tak­mark­anir eru nú meg­in­reglan, en 30 manns mega reyndar sækja athafnir á vegum trú­fé­laga. Ein­ungis börn fædd 2014 og síðar eru und­an­þegin þessum tak­mörk­un­um.

Sund­laugar og lík­ams­rækt­ar­stöðvar eru lok­að­ar. Sviðs­listum og kvik­mynda­húsum hefur verið gert að hætta starf­semi á ný. Íþrótta­starf er sömu­leiðis óheim­ilt, bæði hjá börnum og full­orðn­um.

Barir og skemmti­staðir eru nú lok­aðir, en veit­inga­staðir mega vera opnir til kl. 22 á kvöld­in, með tak­mörk­un­um.

[adspot]

Marg­vís­leg starf­semi í sam­fé­lag­inu hefur verið gert að stöðva, en þó reyndar ekki starf­semi hár­greiðslu­stofa og snyrti­stofa og önnur álíka þjón­usta.

Grunn­skól­um, fram­halds­skólum og háskólum er lokað fram að páska­fríi og unnið er að því að útfæra starf­semi þeirra í fram­hald­inu. Leik­skólar eru áfram opn­ir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár