Áfrýjunarnefnd staðfesti ákvörðun Neytendastofu í iPad-máli DV

Áfrýj­un­ar­nefnd neyt­enda­mála hefur stað­fest ákvörðun Neyt­enda­stofu um að banna við­skipta­hætti DV þegar dag­blaðið aug­lýsti „frían“ iPad með áskrift að blað­inu. Aðeins stjórn­valds­sekt að upp­hæð 300.000 krónur var felld niður í með­förum áfrýj­un­ar­nefnd­ar­innar.

Áskrift að DV var 334,9 pró­sent dýr­ari en rað­greiðslur af iPad fyrstu þrjá mán­uð­ina en 167,5 pró­sent rest­ina af 36 mán­aða bindi­tím­anum. Í úrskurði Neyt­enda­stofu sagði að „á grund­velli fyrril­ggj­andi gagna verði ekki annað ályktað en að kostn­aður vegna iPad spjald­tölv­unnar í áskrift­ar­leið DV sé inni­fal­inn í verði áskriftar.“

DV ehf. kærði ákvörðun Neyt­enda­stofu frá því í lok apríl um að banna aug­lýs­ing­arnar. Neyt­enda­stofa taldi aug­lýs­ing­arnar klárt brot gegn lögum um við­skipta­hætti og mark­aðs­setn­ingu þar sem kveðið er á um að full­yrð­ingar aug­lýs­inga þurfi að vera rétt­mætar undir öllum kring­um­stæðum. Aug­lýs­ingar um að iPad fylgi „frítt“ með áskrift og „í kaup­bæti“ þóttu ekki upp­fylla skil­yrði lag­ana. Í kærunni fór DV fram á að ákvörðun Neyt­enda­stofu yrði felld úr gildi eða til vara að stjórn­vald­sektin yrði lækkuð veru­lega. Hér að neðan má sjá eina af fjöl­mörgum aug­lýs­ingum DV þar sem iPad var aug­lýstur „í kaup­bæti“ eða „frítt“.





Ef þú ger­ist áskrif­andi að DV færðu glæ­nýjan iPad í kaup­bæti! Sjáðu meira hér: https://stage.dv.is/ipad/

Posted by DV.is on 8. apríl 2015

Áfrýj­un­ar­nefnd neyt­enda­mála bendir á það í úrskurði sínum að ástæða banns­ins hafi verið vegna þess að áskrift­ar­verð sé eins hvort maður velji sér iPad eða ekki. Nefndin vísar svo í

lög um eft­ir­lit með við­skipta­háttum og mark­aðs­setn­ingu

og

reglu­egerð um við­skipta­hætti

til að sýna fram á að vöru­lýs­ingar með orð­unum „ókeypis“, „frítt“, „án end­ur­gjalds“ eða ámóta orða­lagi séu órétt­mætar þurfi neyt­and­inn að greiða eitt­hvað annað en óhjá­kvæmi­legan kostnað.

Lesa má úrskurð áfrýj­un­ar­nefnd­ar­innar í heild sinni á vef Neyt­enda­stofu. Þar kemur fram að DV hafi ekki nýtt tíu daga frest til að svara athuga­semdum Neyt­enda­stofu. Annað bréf var sent DV 14. apríl og þar farið fram á skýr­ingar á því hvers vegna aug­lýs­ingum á vef DV hefði verið breytt þannig að í stað orðs­ins „frítt“ stæði nú „í kaup­bæti“. Samkvæmt skiln­ingi Neyt­enda­stofu félli breytt orða­lag undir sama hatt. Enn barst ekk­ert svar frá DV svo ákvörðun var tekin 20. apríl að banna við­skipta­hætti blaðs­ins.

Í kæru DV á bann­inu og stjórn­vald­sekt­inni ber blaðið því við að Neyt­enda­stofa sé að bera saman tvær mis­mun­andi áskrift­ar­leiðir. DV hafi fall­ist á að orða­notk­unin „frítt“ kunni að stang­ast á við lög en er ósam­mála því að „í kaup­bæti“ sé ekki heldur í sam­ræmi við lög. Þeir útreikn­ingar sem Neyt­enda­stofa hafi lagt fram séu marklausir enda sé verið að bera saman verð á DV í prent­uðu formi við verð fyrir aðgengi að DV á vefnum.

Úrskurður áfrýj­un­ar­nefnd­ar­innar er hins vegar sá að DV hafi brotið gegn lögum um við­skipta­hætti með því að aug­lýsa frían iPad. Stjórn­valds­sektin er felld úr gildi með vísan til rök­stuðn­ings DV um að tvær mis­mun­andi áskrift­ar­leiðir hafi verið bornar saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár