DV bannað að auglýsa frían iPad með áskrift, því hann er ekki frír

Neyt­enda­stofa hefur bannað DV að birta aug­lýs­ingar þar sem því er haldið fram að fólk fái iPad spjald­tölvur „frítt“ og „í kaup­bæti“ með áskrift að fjöl­miðl­inum. Lög voru brotin með þessum við­skipta­háttum og DV þarf að greiða stjórn­valds­sekt vegna máls­ins, að upp­hæð 300 þús­und krónur.

DV hefur und­an­farið aug­lýst áskriftir að blað­inu. Á Facebook síðu DV er til dæmis aug­lýs­ing þar sem segir að „ef þú ger­ist áskrif­andi að DV færðu glæ­nýjan iPad í kaup­bæti!“

Neyt­enda­stofa segir að ekki fáist annað séð en að kostn­að­ur­inn við spjald­tölv­una sé inni­fal­inn í verði áskriftar og því „hvorki frí né í kaup­bæti þar sem áskrift­ar­leiðin var 334,9% dýr­ari fyrstu þrjá mán­uð­ina og 167,5% að þeim tíma liðnum miðað við áskrift án iPad.

„Í aug­lýs­ing­unum var til að mynda að finna eft­ir­far­andi full­yrð­ingar: „Fáðu áskrift að DV og þú færð FRÍAN iPad með áskrift­inni“ og „Fáðu áskrift að DV og þú færð iPad í kaup­bæti með áskrift­inni“. Áskrift­ar­gjald var ekki tekið fram í aug­lýs­ing­unni. Á vef DV, dv.is, var að finna áskrift­ar­leiðir dag­blaðs­ins, þ.á.m. svo­nefnda iPad áskrift á 2.998. kr. á mán­uði með skuld­bind­ingu í 36 mán­uði og Vef­á­skrift 1 á 895. kr. á mán­uði fyrstu þrjá mán­uð­ina og 1.790 á mán­uði eftir það. Umræddar áskriftir voru eins að und­an­skildum iPad að eigin vali.“

Hér má sjá eina aug­lýs­ing­una þar sem iPad var aug­lýstur í kaup­bæti.

Ef þú ger­ist áskrif­andi að DV færðu glæ­nýjan iPad í kaup­bæti! Sjáðu meira hér: https://stage.dv.is/ipad/

Posted by DV.is on Wednesday, April 8, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár