Óverðtryggð lán aldrei verið eins stór hluti af heildarskuldum heimilanna

Óverð­tryggð skuld­setn­ing heim­ila hefur aldrei verið meiri hér á landi eða um 27 pró­sent af heild­ar­skuld­setn­ingu heim­il­anna. Verð­tryggð skuld­setn­ing er hins vegar oft eini raun­hæfi val­kost­ur­inn fyrir lán­tak­endur.

Óverð­tryggð lán hafa aldrei verið eins stór hluti af heild­ar­skuldum heim­il­anna eins og nú eða alls 27 pró­sent af skuldum heim­il­anna. Á fyrstu átta mánuðum ársins 2019 hafa hrein ný óverð­tryggð íbúða­lán heim­il­anna numið alls um 80 millj­örðum króna og verð­tryggð 26 millj­örðum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Íslands­banka um íbúða­mark­að­inn og nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs.

Kerfisbundinn hvati til að taka verðtryggð lán

[links]Langstærstur hluti heild­ar­skulda heim­il­anna er þó enn verð­tryggður eða 72 pró­sent. Verð­tryggð lán bera lægri greiðslu­byrði framan af láns­tím­anum en óverð­tryggð og því er auð­veld­ara fyrir marga að stand­ast greiðslu­mat sé lánið verð­tryggt. Í skýrslu Íslands­banka segir að í því felist kerf­is­bund­inn hvati til verð­tryggðrar skuld­setn­ingar. Oft sé verð­tryggð lán því eini raun­hæfi val­kost­ur­inn fyrir lán­tak­endur vilji þeir eign­ast hús­næði.

Óverð­tryggð lán fara þó vax­andi hér á landi og eru nú 27 pró­sent af heild­ar­skuldum heim­il­anna. Íslands­banki telur að þessi aukn­ing sé vegna auk­innar greiðslu­getu heim­il­anna og nei­kvæðri upp­lifun þeirra af verð­tryggðum lánum í efna­hags­á­fall­inu fyrir ára­tug.

Óverðtryggðar skuldir aukist hraðar en verðtryggð frá árinu 2009

Á hverju ári á tíma­bil­inu 2009 til 2019, að und­an­skildu árinu 2017, juk­ust óverð­tryggðar skuldir hlut­falls­lega hraðar en verð­tryggðar.

Á síð­ustu tveimur árum hefur ásókn í óverð­tryggð lán auk­ist hratt. Á árunum 2017 og 2018 bættu heim­ilin við sig um 114 millj­örðum af óverð­tryggðum húsnæð­is­skuldum og um 231 millj­arða af verð­tryggðum húsnæð­is­skuldum, að teknu til­liti til upp­greiðslna.

Á fyrstu átta mán­uðum þessa árs bættu íslensk heim­ili við sig um 80 millj­örðum af hreinum nýjum óverð­tryggðum íbúða­lánum og um 26 millj­örðum af hreinum nýjum verð­tryggðum íbúða­lánum, að því er fram kemur í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs.

Ef fyrstu átta mán­uðir 2019 eru bornir saman við sama tíma­bili í fyrra má sjá heild­ar­fjár­hæðir nýrra íbúða­lána heim­il­anna, að frá­dregnum umfram- og upp­greiðslum eldri lána, dreg­ist saman á nafn­virði um 3,6 pró­sent. Þó mælist vöxtur óverð­tryggðra lána tæp 41 pró­sent á milli ára en á móti vegur að hrein ný verð­tryggð lán dróg­ust saman um 51 pró­sent á verð­lagi hvors árs.

Vextir lækkað um allt að 1,7 prósent

Frá því að stýri­vextir Seðla­bank­ans hófu að lækka í maí síð­ast­liðnum hafa vextir á fast­eigna­lánum einnig almennt farið lækk­andi. Í skýrslu Íbúða­lána­sjóðs kemur fram að innan líf­eyr­is­sjóð­anna hafa vextir á óverð­tryggðum lánum lækkað að með­al­tali um 0,92 pró­sentu­stig. Minnst hafa þau kjör lækkað frá maí­mán­uði um 0,5 pró­sentu­stig á föstum vöxtum til þriggja ára hjá Frjálsa líf­eyr­is­sjóðnum og mest um 1,7 á sams­konar lánum hjá Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna.

Innan banka­kerf­is­ins hafa óverð­tryggðir vextir hús­næð­is­lána lækkað að með­al­tali um eitt pró­sentu­stig frá því í maí, eða frá 0,75 pró­sentu­stigum á föstum vöxtum til þriggja ára hjá Lands­bank­anum og upp í 1,3 pró­sentu­stig á föstum vöxtum til fimm ára hjá Íslands­banka.

Lægstu kjör á verð­tryggðum fast­eigna­lánum hafa lækkað bæði innan líf­eyr­is­sjóð­anna og bank­anna um 0,5 pró­sentu­stig frá því í byrjun maí. Hag­stæð­ustu vaxta­kjör sem bjóð­ast á verð­tryggðum fast­eigna­lánum innan lána­kerf­is­ins eru líkt og áður innan líf­eyr­is­sjóð­anna. Þar eru lægstu breyti­legu verð­tryggðu vextir komnir niður í 1,64 pró­sent og hag­stæð­ustu kjör á óverð­tryggðum lánum standa nú í 4,6 pró­sent vöxtum. 

Heildarskuldir heimilanna jukust um fjögur prósent í fyrra

Í skýrslu Íslands­banka kemur fram að skuldir heim­il­anna hófu að vaxa að raun­gildi á árinu 2017 eftir mikla lækkun árin þar á undan. Á árinu 2017 juk­ust heild­ar­skuldir heim­il­anna um 3 pró­sent árið 2017 og tæp 4 pró­sent á síðast­liðnu ári.

Samkvæmt Íslands­banka er vöxtur skulda heim­il­anna er alfarið drif­inn áfram af húsnæð­is­skuldum en aðrar skuldir heim­il­anna hafa haldið áfram að drag­ast saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lán

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár