Líkur á fasteignakaupum hjá leigjendum ekki mælst lægri í tvö ár

Um 92 pró­sent leigj­enda telja það öruggt eða að minnsta kosti lík­legt að þau muni ekki kaupa fast­eign á næstu sex mán­uðum. Það er hæsta hlut­fall sem mælst hefur í könnun Íbúða­lána­sjóðs frá sept­em­ber 2017.

Alls eru um 17,5 pró­sent full­orð­inna ein­stak­linga 18 ára og eldri á leigu­mark­aði hér á landi. Aðeins um 3 pró­sent þeirra telja það lík­legt að þeir kaupi fast­eign á næstu sex mán­uðum en það hlut­fall hefur ekki mælst lægra í könn­unum Zenter og Íbúða­lána­sjóðs á síð­ustu tveimur árum.

Nokkur kólnun á fasteignamarkaði

[links]Í nýj­ustu tölum Þjóð­skrár má sjá að vísi­tala leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var 198 stig í ágúst 2019 og hækk­aði um 1 pró­sent á milli mán­aða. Þá hefur vísi­tala leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 3,7 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum.

Til sam­an­burðar hefur vísi­tala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 3,6 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum. Sé tekið til­lit til verð­bólgu, sem nú mælist 3,2 pró­sent, þá hefur fast­eigna­verð og leigu­verð hækkað lít­il­lega á síð­ast­liðnu ári.

Óhætt er að segja að horfur á fast­eigna­mark­aði hafi breyst nokkuð að und­an­förnu. Fast­eigna­verðs­hækkun á ári mæld­ist 23,5 pró­sent vorið 2017, en síðan þá hefur veru­leg kólnun átt sér stað á mark­aðn­um, og mælist raun­verðs­hækkun nú lítil sem eng­in. Spár gera ráð fyrir að fast­eigna­verð muni ekki hækka mikið á næstu miss­erum, en verði þó ein­hver, á bil­inu 2 til 3 pró­sent, á næstu árum.

Tæplega fimmtungur íbúa á höfuðborgarsvæðinu á leigumarkaði

Í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs er greint frá nið­ur­stöðum könn­unar Íbúða­lána­sjóðs og Zenter sem gerð var í júlí og ágúst síð­ast­liðnum. Þar kemur fram að 92 pró­sent leigj­enda telja öruggt eða að minnsta kosti lík­legt að þeir muni ekki kaupa fast­eign ef horft er hálft ár fram í tím­ann. Þetta hlut­fall hefur ekki áður mælst svo hátt í könnun Íbúða­lán­sjóðs eða síðan kann­anir hófust í sept­em­ber 2017.

Alls eru um 17,5 pró­sent full­orð­inna ein­stak­linga 18 ára og eldri á leigu­mark­aði, sam­kvæmt mæl­ingum Íbúða­lána­sjóðs. All eru um 19 pró­sent íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á leigu­mark­aði sam­an­borið við 16 pró­sent þeirra sem búa utan þess. [adspot]

Í könnun Íbúða­lána­sjóðs kemur hins vegar fram að ein­stak­lingar sem enn búa í for­eldra­húsum séu lík­legri til að vera í fast­eigna­kaupa­hug­leið­ingum en leigj­endur. Um 13 pró­sent þeirra telja það lík­legt að þeir kaupi fast­eign á næstu sex mán­uðum.

Meirihluti þjóðarinnar telur það óhagstætt að leigja

Í við­horfskönnun Íbúða­lána­sjóðs frá því í júní á þessu ári kemur fram að meiri­hluti þjóð­ar­innar telji að óhag­stætt sé leigja um þessar mundir eða alls 92 pró­sent. Þá kemur enn fremur fram í sömu könnun að ein­ungis 51 pró­sent leigj­enda telji sig búa við hús­næð­is­ör­ygg­i. Al­geng­asta á­stæða þess að fólk telur sig ekki búa við hús­næð­is­ör­yggi er vegna þess að fólk hefur ekki efni á leigu eða verð of hátt.

Í könn­unni kom jafn­framt fram að um 29 pró­sent leigj­enda töldu að núver­andi hús­næð­i ­upp­fyllt­i ekki þarfir sam­an­borið við 8 pró­sent þeirra sem búa í eigin hús­næði.

Enn ­fremur er fjár­hags­staða heim­il­is­ins ­mark­tækt verri hjá leigj­endum en hjá þeim sem búa í eigin hús­næði. Yfir 20 pró­sent þeirra sem eru á leigu­mark­aði segj­ast safna skuldum eða nota sparifé til þess að ná endum saman sam­an­borið við ein­ungis 7 pró­sent þeirra sem búa í eigin hús­næði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár