Mögulega er fólk að bíða eftir útspili stjórnvalda í húsnæðismálum

Vísitala sem mælir vænt­ingar neyt­enda til hús­næð­is­kaupa hefur hækkað veru­lega að und­an­förnu. En það hefur ekki skilað sér út á fast­eigna­mark­að­inn.

Vísitala fyr­ir­hug­aðra hús­næð­is­kaupa, sem Gallup mælir á þriggja mán­aða fresti út frá könnun sem fyr­ir­tækið gerir um vænt­ingar neyt­enda, hækk­aði veru­lega á milli mars og júní mæl­inga í ár. Hún hefur ekki mælst hærri frá því í sept­em­ber 2007, að því er fram kemur í umfjöllun Lands­bank­ans.

Í umfjöllun bank­ans segir að þessar vænt­ingar hafi ekki raun­gerst í við­skiptum á fast­eigna­mark­aði, og að mögu­lega sé ástæðan sú að margir sem hafa hug á fast­eigna­við­skiptum séu að bíða eftir útspili stjórn­valda í hús­næð­is­málum, sem voru hluti af Lífs­kjara­samn­ing­unum svoköll­uðu. „Nýjustu tölur af fast­eigna­mark­aði benda til þess að enn sé nokkuð í land með að þessar vænt­ingar raun­ger­ist. Mögulega eru margir að bíða eftir nán­ari útfærslum á þeim aðgerðum sem stjórn­völd boð­uðu í tengslum við und­ir­ritun kjara­samn­inga í vetur,“ segir í umfjöllun Lands­bank­ans.

Nokkur kólnun hefur verið á fast­eigna­mark­aði að und­an­förnu, eftir miklar hækk­anir á árunum 2011 til 2018. Mest var hækk­unin á vor­mán­uðum 2017, en þá mæld­ist árs­hækkun 23,5 pró­sent. Hún mælist nú 2,9 pró­sent að nafn­virði. Að teknu til­liti til verð­bólgu, sem mælist nú 3,1 pró­sent, þá er fast­eigna­verð því tekið að lækka, sam­kvæmt nýjustum tölum Þjóð­skrár.

Samkvæmt Lífs­kjara­samn­ing­unum svo­nefndu, var útspil stjórn­valda á hús­næð­is­markað, meðal ann­ars falið í tveggja millj­arða fram­lagi í stofn­fram­lög við hús­næð­is­upp­bygg­ingu, sem kemur til fram­kvæmda 2020 til 2022. Þá er gert ráð fyrir upp­bygg­ingu á 1.800 íbúðum og síðan að unnið verði aðilum vinnu­mark­að­ar­ins að leiðum til að auð­velda ungu fólki kaup á íbúðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár