Óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum tæplega fjórfaldast

Það sem af er ári hafa óverð­tryggð íbúða­lána bank­anna með breyti­legum vöxtum tæp­lega fjór­fald­ast. Í júní og júlí voru öll hrein óverð­tryggð lán hjá bönk­unum á slíkum kjörum.

Frá því í vor hafa lán­tak­endur frekar tekið lán, bæði verð­tryggð og óverð­tryggð, með breyti­legum vöxtum hjá bönk­unum. Aukin aðsókn var í fasta vexti á íbúða­lánum í efna­hag­sóviss­unni í apríl síð­ast­liðnum en breyti­legir vextir hafa sótt í sig veðrið síðan þá. Flest lán­anna hjá bönk­unum á síð­ustu þremur mán­uðum voru tekin á breyti­legum vöxtum og alls 100 pró­sent allra hreinna óverð­tryggða lána. Íbúða­lána­sjóður segir þetta gefa til kynna að lán­tak­endur vænti vaxta­lækk­unar á kom­andi miss­erum.

Aukning í óverðtryggðum lánum

Í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúa­lána­sjóðs kemur fram eftir að hafa minnkað sam­fellt fyrstu fjóra mán­uði árs­ins juk­ust íbúða­lán í maí, júní og júlí. 

Í júlí síð­ast­liðnum námu hrein ný íbúða­lán alls um 14,3 millj­örðum króna, þar af voru hrein óverð­tryggð lán 9,5 millj­arðar og verð­tryggð 4,8 millj­arðar. Frá sama tíma­bili í fyrra hafa heild­ar­fjár­hæðir nýrra íbúða­lána heim­il­anna, að frá­dregnum umfram- og upp­greiðslum eldri lána, dreg­ist saman af nafn­virði um 0,9 pró­sent. [adspot]

Þá hafa Íslend­ingar tekið óverð­tryggð lán í meira mæli en verð­tryggð á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins en alls námu hrein ný óverð­tryggð íbúða­lán heim­il­anna alls 71 millj­arð króna og verð­tryggð 21 millj­arða. Vöxtur óverð­tryggðra lána mælist um tæp 45 pró­sent á milli ára en á móti vegur að hrein ný verð­tryggð lán dróg­ust saman um 52 pró­sent á verð­lagi hvors árs.

Efnahagsóvissa í kjölfar falls WOW air

Bæði innan líf­eyr­is­sjóð­anna og banka­kerf­is­ins stendur val lán­tak­enda á milli þess að taka ný íbúða­lán á vöxtum sem eru breyti­legir eða á föstum kjörum til ákveð­ins tíma. 

Í skýrslu Íbúða­lána­sjóðs segir að almennt hafi verið meira um að lán­tak­endur kjósi verð­tryggð lán hjá bönkum á breyti­legum vöxtum fremur en að festa sér vaxta­kjör fimm ár fram í tím­ann á und­an­förnum árum. Sú þróun sner­ist aftur á móti við á þessu ári. Á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins nam heild­ar­fjár­hæð hreinna nýrra lána á föstum vöxtum til fimm ára 11,2 millj­örðum króna en lán á breyti­legum vöxtum 9,4 millj­örðum.

Þessi aukn­ing á vali á föstum vaxta­kjörum skýrist fyrst og fremst af aukn­ingu slíkra lána í apríl síð­ast­liðnum. Samkvæmt Íbúða­lána­sjóði er ekki ólík­legt að þá aukn­ingu megi rekja til þeirrar efna­hags­legu óvissu sem skap­að­ist í kjöl­far gjald­þrots WOW Air í lok mars­mán­aðar.

Meirihluti lána í júní og júlí tekin með breytilegum vöxtum

Lán­tak­endur virð­ast þó vera vænta vaxta­lækk­unar á kom­andi miss­erum en í júní og júlí voru að minnsta kosti 65 pró­sent verð­tryggðra lána tekin með breyti­legum vöxtum.

Ef horft er til óverð­tryggðra lána er þró­unin enn skýr­ari. Óverð­tryggð lán á breyti­legum vöxtum hjá bönkum hafa tæp­lega fjór­fald­ast það sem af er ári, en 100 pró­sent hreinna óverð­tryggðra íbúða­lána bank­anna í júní og júlí voru á slíkum kjörum.

Frá því í maí síð­ast­liðnum hefur Seðla­banki Íslands lækkað sína meg­in­vexti í þremur atrennum úr 4,5 pró­sent niður í 3,5 pró­sent. Samhliða þessu hafa lægstu verð­tryggðu breyti­legu vextir innan banka­kerf­is­ins lækkað um 0,15 pró­sentu­stig en fastir vextir til 5 ára á sama tíma lækkað um 0,55 pró­sentu­stig.

Landsbankinn lægstur

Af við­skipta­bönk­unum býður Lands­bank­inn bestu kjörin í dag. Bankinn býður nú upp á 3,25 pró­sent verð­tryggða breyti­lega vexti, upp að 70 pró­sent af kaup­verði.

Þá hefur Lands­bank­inn verið að bæta kjör á verð­tryggðum lánum með föstum vöxt­um. Við síð­ustu vaxta­breyt­ingu hjá Lands­bank­an­um, sem varð í síð­ustu viku, fóru slíkir vextir hjá bank­anum niður fyrir þrjú pró­sent í fyrsta skipt­ið, ef miðað er við 70 pró­sent lán­töku, og eru nú 2,96 pró­sent. Það eru lægstu föstu verð­tryggðu vextir sem í boði eru á íslenska mark­aðn­um um þessar mundir.

Auk þess býður Lands­bank­inn upp á 5,48 pró­sent breyti­lega óverð­tryggða vexti, ef miðað er við 85 pró­senta lán­töku. Fastir óverð­tryggðir vextir bank­ans til þriggja ára eru 6,06 pró­sent, ef miðað er við 85 pró­senta lán­töku.

Bjóða nú 1,77 prósent vexti

[links]Við­skipta­bank­arnir eru þó eftir sem áður eft­ir­bátar líf­eyr­is­sjóð­anna þegar kemur að vaxta­kjörum. Ný útlán, að frá­dregnum upp - og umfram­greiðslum, hjá líf­eyr­is­sjóðum lands­ins voru í júlí 7,2 millj­arðar króna. Þar af rúm­lega 4,9 millj­arðar verð­tryggt og tæp­lega 2,3 millj­arðar óverð­tryggt.

Upp­lýs­ingar um hvort ný lán hafi verið tekin á breyti­legum eða föstum vöxtum eru hins vegar ekki aðgengi­legar hjá líf­eyr­is­sjóð­unum.

Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna býður upp á lægstu föstu óverð­tryggðu vext­ina, en þeir eru 5,14 pró­sent hjá sjóðnum ef lán­taki er til­bú­inn að festa sig í þrjú ár.

Þegar kemur að breyti­legum óverð­tryggðum lánum þá býður líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Birta upp á lang­bestu kjörin fyrir sína sjóð­fé­laga. Þeir geta fengið óverð­tryggt lán á 4,6 pró­sent vöxtum en Birta lánar ein­ungis fyrir 65 pró­sent af kaup­verði að hámarki.

Lægstu verð­tryggðu breyti­legu vextir sem hægt er að fá vegna töku hús­næð­is­lána eru nú 1,77 pró­sent, hjá Almenna líf­eyr­is­sjóðnum eftir að hann lækk­aði vexti sína nýver­ið. Almenni lánar fyrir 70 pró­sent af kaup­verði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár