Lægstu húsnæðislánavextir komnir niður í 1,77 prósent

Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur haldið sig við það við­mið að láta verð­tryggð lána­kjör þró­ast í takt við ávöxt­un­ar­kröfu ákveð­ins skulda­bréfa­flokks. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hætti því í sumar. Í kjöl­farið hafa vextir Almenna lækkað enn frekar.

Allir þurfa að eiga heima einhversstaðar. Nú er ódýrara en nokkru sinni fyrr að taka húsnæðislán á Íslandi.
Allir þurfa að eiga heima ein­hvers­staðar. Nú er ódýr­ara en nokkru sinni fyrr að taka hús­næð­is­lán á Íslandi. Mynd: Pexels.com

Lægstu verð­tryggðu breyti­legu vextir sem hægt er að fá vegna töku hús­næð­is­lána eru nú 1,77 pró­sent, hjá Almenna líf­eyr­is­sjóðnum eftir að hann lækk­aði vexti sína nýverið.

Lægstu óverð­tryggðu vext­irnir sem í boði eru nú eru hjá Birtu líf­eyr­is­sjóði, þar sem þeir eru 4,6 pró­sent.

[links]Í báðum til­fellum er um lægstu vexti hvors lána­forms fyrir sig sem íslenskum lán­tak­endum hefur staðið til boða.

Því halda vextir sem standa lán­tak­endum á Íslandi til boða áfram að lækka.

Það hafa meg­in­vextir Seðla­banka Íslands, oft kall­aðir stýri­vextir, einnig gert en þeir eru nú 3,5 pró­sent og hafa aldrei verið lægri.

Annar fylgir skuldabréfaflokki, hinn ekki

Vaxta­breyt­ingar á breyti­legum verð­tryggðum lánum hjá Almenna líf­eyr­is­sjóðnum, sem býður sjóðs­fé­lögum sínum upp á lán fyrir allt að 70 pró­sent af kaup­verði á hús­næði, eru ákveðnar 15. hvers mán­aðar. Vext­irnir taka mið af með­al­á­vöxtun á skulda­bréfa­flokki Íbúð­ar­lána­sjóðs HFF150434 að við­bættu 0,75 pró­sent álagi.

[adspot]Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, næst stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins sem hefur verið leið­andi á meðal líf­eyr­is­sjóða í end­ur­komu þeirra á hús­næð­is­lána­markað, var með sama fyr­ir­komu­lag. Þ.e. vextir lána hans voru ákvarð­aðir í sam­ræmi við breyt­ingu á ávöxt­un­ar­kröfu sama skulda­bréfa­flokks og hjá Almenna, að við­bættu álagi. Á und­an­förnum árum hafa við­skipti með þau bréf dreg­ist veru­lega saman með þeim afleið­ingum að ávöxt­un­ar­krafan hefur dreg­ist mikið sam­an.

Afleið­ing þess var sú að vextir Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna lækk­uðu mjög mikið á skömmum tíma. Í lok maí voru þeir orðnir 2,06 pró­sent.

Þá ákvað stjórn sjóðs­ins að breyta því hvernig vextir yrðu ákvarð­aðir. Í stað­inn fyrir að ávöxt­un­ar­krafa skulda­bréfa­flokks­ins myndi stýra vaxta­stíg­inu var ákveðið að stjórn sjóðs­ins myndu ein­fald­lega ákveða þá. Þeir voru í kjöl­farið hækk­aðir í 2,26 pró­sent og þar eru þeir í dag.

Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur ekki breytt sinni aðferð­ar­fræði. Í dag eru verð­tryggði vextir sem sjóðs­fé­lagar í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna geta fengið tæp­lega 28 pró­sent hærri en vext­irnir sem sjóðs­fé­lögum Almenna bjóð­ast.

Ákvörðun stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna hafði áhrif. VR, sem skipar fjóra af átta stjórn­ar­mönnum í sjóðnum, ákvað að skipta þeim öllum út fyrir nýja og bar fyrir sig trún­að­ar­brest vegna vaxta­hækk­un­ar­innar.

Landsbankinn í sérflokki á meðal banka

Við­skipta­bank­arnir hafa lengi kvartað yfir því að vera ekki sam­keppn­is­hæfir við líf­eyr­is­sjóði þegar kemur að hús­næðis­út­lán. Þar bera þeir aðal­lega fyrir sig að bönkum sé gert að greiða sér­tæka skatta og gjöld sem líf­eyr­is­sjóðum er ekki gert að greiða. Sá sem bítur mest er hinn svo­kall­aði banka­skattur. Nú liggur hins vegar fyrir að fyrri áform um að lækka banka­skatt­inn á næsta ári hefur verið frestað til 2021 vegna sam­dráttar í efna­hags­líf­inu.

Sá við­skipta­banki sem kemst næst því að gera keppt við líf­eyr­is­sjóð­ina í boð­legum kjörum er Lands­bank­inn. Verð­tryggðir breyti­legir vextir hans vegna lána upp að 70 pró­sent af kaup­verði eru nú 3,25 pró­sent. Það eru 84 pró­sent hærri vextir en Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn býður upp á.

[adspot]Lands­bank­inn hefur hins vegar verið að bæta kjör á verð­tryggðum lánum með föstum vöxtum, en þá þarf við­kom­andi að binda sig í 60 mán­uði, eða fimm ár, við þá vexti óháð því hvernig aðrar aðstæður breyt­ast. Við síð­ustu vaxta­breyt­ingu hjá Lands­bank­anum, sem varð í síð­ustu viku, fóru slíkir vextir hjá bank­anum niður fyrir þrjú pró­sent í fyrsta skiptið, ef miðað er við 70 pró­sent lán­töku, og eru nú 2,96 pró­sent. Það eru skap­leg­ustu föstu verð­tryggðu vextir sem í boði eru á íslenska mark­aðnum.

Birta leiðir í óverðtryggðu

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna býður enn upp á skástu föstu óverð­tryggðu vext­ina, en þeir eru 5,14 pró­sent hjá sjóðnum ef lán­taki er til­bú­inn að festa sig í þrjú ár.

Þegar kemur að breyti­legum óverð­tryggðum lánum þá býður líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Birta upp á lang­bestu kjörin fyrir sína sjóðs­fé­laga. Þeir geta fengið óverð­tryggt lán á 4,6 pró­sent vöxtum en sá bögg­ull fylgir skamm­rifi að Birta lánar ein­ungis fyrir 65 pró­sent af kaup­verði að hámarki.

Lands­bank­inn kemur þar á eftir með 5,48 pró­sent breyti­lega óverð­tryggða vexti og Gildi þar skammt á eftir með 5,51 pró­sent (vext­irnir eru 5,4 pró­sent upp að 60 pró­sent láns­hlut­falli en síðan þarf að taka við­bót­ar­lán á 6,15 pró­sent vöxtum til að ná 70 pró­sent hlut­falli). Því eru óverð­tryggðir breyti­legir vextir Lands­bank­ans rúm­lega 19 pró­sent hærri en hjá Birtu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár