Heimsmarkmið SÞ um vernd hafsvæða nást ekki á Íslandi fyrir 2020

Samkvæmt umhverfis- og auð­linda­ráð­herra verður heims­mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna um vernd haf­svæða ekki náð hér á landi fyrir lok árs 2020 og ekki heldur á heims­vísu.

Ljóst er að heims­mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna um vernd haf­svæða verður ekki náð hér á landi fyrir lok árs 2020. Þetta kemur fram í svari Guð­mundur Inga Guð­brands­sonar, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, við fyr­ir­spurn frá Birni Leví Gunn­ars­syni, þing­manni Pírata, um haf­vernd­ar­svæði.

Samkvæmt ráð­herra er jafn­framt ljóst að þeim mark­miðum verði ekki náð á heims­vísu, eða hjá mörgum nágranna­ríkjum Íslend­inga við Norður-Atl­ants­haf. „Ástæða þessa er að hluta til að vernd haf­svæða á sér styttri sögu en vernd svæða á landi, vís­inda­leg þekk­ing á líf­ríki og nátt­úru­minjum neð­an­sjávar er tak­mark­aðri og vernd­ar­við­mið síður þróuð. Mikil hreyf­ing er hins vegar á vinnu nú varð­andi vernd­ar­svæði í hafi almennt á heims­vísu.“

Eitt af heims­mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna er að 10 pró­sent strand­svæða og haf­svæða njóti verndar árið 2020. Í samn­ingnum um líf­fræði­lega fjöl­breytni eru mark­mið um að 17 pró­sent land­svæða og 10 pró­sent haf­svæða njóti verndar árið 2020. Samkvæmt ráð­herra þýðir þetta ekki endi­lega að hvert ríki þurfi að ná slíkri tölu innan sinnar lög­sögu, en þó sé ljóst að þarna séu sett við­mið sem taka þurfi til­lit til.

Mögulega má skilgreina fleiri svæði sem hafverndarsvæði

Samkvæmt ráð­herra hefur Ísland hefur 14 svæði alls sem haf­vernd­ar­svæði á skrá OSPAR-samn­ings­ins um vernd Norð­austur-Atl­ants­hafs­ins. Í svari ráð­herra segir að mögu­lega megi skil­greina fleiri svæði sem eru frið­lýst sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum sem haf­vernd­ar­svæði sem mætti setja inn í grunn OSPAR.

„Á meðal svæð­anna 14 eru kór­alla­svæði sem eru friðuð fyrir veiðum, auk nokk­urra svæða sem eru frið­lýst sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum. Sam­an­lagt flat­ar­mál þeirra er 556 fer­kíló­metrar eða innan við 0,1 pró­sent af efna­hags­lög­sög­unni. Alls eru tæp­lega 500 skráð haf­vernd­ar­svæði á OSPAR-svæð­inu, sem ná yfir um 6,2 pró­sent þess. Hlut­falls­leg stærð haf­vernd­ar­svæða er mjög mis­mun­andi hjá aðild­ar­ríkjum OSPAR; innan við 1 pró­sent hjá Danmörku, Portúgal og Írlandi, en yfir 30 pró­sent hjá Belgíu og Þýska­landi.“

Vinna við vernd hafsvæða á traustum vísindalegum grunni mun taka tíma

Í svar­inu kemur fram að ráðu­neytið muni á næst­unni skoða með Umhverf­is­stofnun hvort setja megi fleiri frið­lýst svæði sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum inn á skrá OSPAR um haf­vernd­ar­svæði. Aukin vernd haf­svæða verði einnig til skoð­unar í vinnu varð­andi nátt­úru­minja­skrá og frið­lýs­ingar innan nátt­úru­vernd­ar­laga í fram­tíð­inni. Skoðað verði í sam­vinnu við atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið hvort hægt sé að skil­greina fleiri svæði sem njóta frið­unar fyrir fisk­veiðum að hluta eða öllu leyti sem haf­vernd­ar­svæði en mikil umræða fari nú fram um slíkt á alþjóða­vett­vangi.

„Ljóst er að vinna við vernd haf­svæða á traustum vís­inda­legum grunni mun taka nokkurn tíma. Brýnt er að bæta þekk­ingu á hafs­botn­inum til að styðja við vís­inda­legan grunn verndar á haf­svæðum og hefur Haf­rann­sókna­stofn­unin fengið sér­stakar fjár­heim­ildir til að ljúka á tíu ára tíma­bili kort­lagn­ingu hafs­botns­ins kringum Ísland. Sú vinna mun veita stofn­un­inni betri grunn­upp­lýs­ingar til ráð­gjafar, m.a. um vernd við­kvæmra vist­kerfa á hafs­botni,“ segir í svar­inu.

Ekki til sérstök skilgreining á „hafverndarsvæði“

Björn Leví spurði einnig hversu hátt hlut­fall strand­lengja og haf­svæða við Ísland teld­ist til haf­vernd­ar­svæða. Í svari ráð­herra kemur fram að ekki sé til sér­stök skil­grein­ing á „haf­vernd­ar­svæði“ í íslenskum lögum, en mörg svæði í hafi og við strendur njóti verndar sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum, lögum um vernd Breiða­fjarðar og lögum um stjórn fisk­veiða. „Lög um vernd Breiða­fjarðar voru sett árið 1995. Ákvæði lag­anna taka til allra eyja, hólma og skerja á Breiða­firði ásamt fjörum í innri hluta fjarð­ar­ins frá Hrafna­nesi á Barða­strönd að Búlands­höfða á Snæ­fells­nesi.“

Þá kemur enn fremur fram hjá ráð­herra að frið­lýst svæði sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum sem taka til haf­svæða að öllu eða að hluta séu um 25 tals­ins, en engin þeirra nái aðeins til svæða í hafi utan tvö svæði í Eyja­firði, sem séu frið­lýst til að vernda hverastrýtur á hafs­botni. Hin svæðin nái til eyja og strand­lengju, en hvergi langt út frá strönd.

Nokkur svæði lokuð ótímabundið allt árið um kring

„Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra skal hafa sam­ráð við ráð­herra sjáv­ar­út­vegs­mála varð­andi frið­lýs­ingar í hafi sem geta haft áhrif á nýt­ingu fiski­stofna eða ann­arra lif­andi auð­linda hafs­ins eða hafs­botns­ins. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu njóta all­mörg svæði innan 200 mílna efna­hags­lög­sögu Íslands verndar fyrir veiðum með einu eða fleiri veið­ar­færum sam­kvæmt lögum um stjórn fisk­veiða.

Nokkur þess­ara svæða eru lokuð ótíma­bundið allt árið um kring, ann­að­hvort fyrir öllum veiðum eða til­teknum veiði­að­ferðum. Í þennan flokk falla tíu kór­alla­svæði fyrir sunnan Ísland sem eru friðuð. Í nóv­em­ber 2019 var nokkrum stærri haf­svæðum lokað ótíma­bundið fyrir veiðum með fiski­botn­vörpu og/eða línu allt árið,“ segir í svar­inu.

Þá kemur fram að bann sé við notkun ákveð­inna veið­ar­færa á mörgum svæðum. Einkum gildi það um tog­veiði innan 12 mílna land­helgi með tíma­bundnum und­an­þágum, einkum fyrir Suð­ur­landi. Í gildi séu einnig marg­vís­legar umfangs­minni svæð­a­lok­anir byggðar á reglu­gerð­ar­á­kvæðum, flestar ótíma­bundnar.

„Að síð­ustu má nefna heim­ildir í lögum um tíma­bundnar lok­anir, svo­kall­aðar skyndi­lok­anir, þar sem veiðar með til­teknum veið­ar­færum eru bann­aðar í allt að 14 daga til verndar smá­fiski. End­ur­teknar skyndi­lok­anir leiða hins vegar oft til ótíma­bund­inna lok­ana svæða.

Erfitt er því að segja til um hversu hátt hlut­fall haf­svæða nýtur ein­hvers konar verndar, þar sem sum vernd er tíma­bundin. Ekki er heldur fylli­lega ljóst hvert er heild­ar­flat­ar­mál svæða sem telj­ast falla undir lög um vernd Breiða­fjarðar. Hvað varðar strand­lengju Íslands hefur ekki verið tekið saman hversu hátt hlut­fall hennar nýtur verndar, en ljóst er að það er veru­legt. Í grein­ar­gerð með frum­varpi til laga um vernd Breiða­fjarðar segir að nær helm­ingur af öllum fjörum á Íslandi séu á svæð­inu sem ákvæði lag­anna ná yfir,“ segir í svar­inu.

10 prósent af efnahagslögsögu Íslands 76.000 ferkílómetrar

Björn Leví spurði að end­ingu að ef vernda ætti alla strand­lengju Íslands og haf­svæði til þess að ná heims­mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna, hversu langt þyrfti það svæði að ná frá landi ef land­helgi vernd­ar­svæðis nær frá strand­lengju.

Í svar­inu kemur fram að haf­svæði innan 200 sjó­mílna efna­hags­lög­sögu Íslands séu tæp­lega 760.000 fer­kíló­metrar. Ef 10 pró­sent af því svæði væru yfir­lýst haf­vernd­ar­svæði væri flat­ar­mál þeirra því 76.000 fer­kíló­metrar. Flat­ar­mál haf­svæða innan 12 sjó­mílna land­helgi Íslands muni vera tæp­lega 70.000 fer­kíló­metrar. Því myndi verndun alls haf­svæðis innan land­helg­innar fara langt með að ná tíu pró­senta mark­mið­inu ef efna­hags­lög­sagan væri höfð sem við­mið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár