Ríkisstofnanir greiddu Múlakaffi sjö milljónir fyrir veitingar í desember

Fjöldi rík­is­stofn­ana versl­aði veit­ingar af Múla­kaffi í des­em­ber í fyrra eða fyrir sam­an­lagt rúmar sjö millj­ónir. Múla­kaffi hefur nú verið starf­rækt í yfir 50 ár en tekjur Múla­kaffi námu 2,4 millj­örðum árið 2017.

Veitingastaðurinn Múlakaffi
Veit­inga­stað­ur­inn Múla­kaffi Mynd: Já.is

Allmargar ríkisstofnanir virðast hrifnar af veitingastaðnum Múlakaffi en um sautján ríkisstofnanir keyptu veitingar af Múlakaffi fyrir samanlagt 7 milljónir í desember á síðasta ári. Þetta má sjá á vefnum Opnir reikningar. Á vefnum eru birtir reikningar frá 132 ríkisstofnunum í þeim tilgangi að veita einfalda og skýra mynd af viðskiptum stofnana með því að birta yfirlit yfir greidda reikninga.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu verslaði fyrir 2,6 milljónir í desember

Á vefnum Opnir reikningar má sjá að í síðasta mánuði versluðu sautján ríkisstofnanir við Múlakaffi fyrir samanlagt 7.030.261 krónur. Þar á meðal voru Barnaverndarstofa, Fangelsismálastofnun ríkisins, Landspítalinn, Héraðssaksóknari og Lögreglan.

Alls greiddi Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu Múlakaffi 2.649.982 krónur fyrir veitingar í desember. Tollstjóri keypti veitingar fyrir rúma milljón og Þjóðskrá fyrir tæpar 800 þúsund krónur í desember.

Múlakaffi hagnaðist um 81,4 milljónir

Múla­kaffi hefur verið starf­rækt frá árinu 1962 og var stofnað af Stefáni Ólafs­syni. Sonur hans, Jóhannes Stef­áns­son, tók síðar við fyr­ir­tæk­inu af föður sínum árið 1989. Veit­inga­stað­ur­inn Múla­kaffi er stað­settur í Hall­ar­múla en þar fer öll fram­leiðslan fram og starfa þar um 30 manns. Múla­kaffi rekur einnig veislu­þjón­ustu og fyr­ir­tækja­þjón­ustu.

Hagnaður Múla­kaffis nam 81,4 millj­ónum króna árið 2017, sam­an­borið við 138,2 millj­ónir árið áður, sam­kvæmt frétt Við­skipta­blaðs­ins. Tekjur félags­ins námu rúmum 2,4 millj­örðum króna og juk­ust um tæp 13 pró­sent milli ára, en rekstr­ar­gjöld 2,3 millj­örðum. 

Laun og launa­tengd gjöld námu 875 millj­ónum og árs­verk voru um 110. Heild­ar­eignir voru tæpur 1,1 millj­arður í lok árs 2017 og eigið fé tæpar 420 millj­ónir, 7 pró­sent meira en árið áður.

Opnir reikningar

Vefurinn Opnir reikn­ingar var hleypt af stokk­unum fyrir rúmu ári en þar er hægt að nálg­ast greidda reikn­inga ráðu­neyta og 132 rík­is­stofn­ana. Í til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­ráð­inu segir að gera megi ráð fyrir að heild­ar­um­fang upp­lýs­inga á vefnum nemi árlega um 45 millj­örðum króna. Und­an­farna mán­uði hafa upp­lýs­ingar stórra stofn­ana, svo sem Land­spít­ala, verið birtar á vefnum.

Vefnum var komið á fót í sam­ræmi við stefnu stjórn­valda um bætt við­mót og aðgengi að stjórn­sýslu. Samkvæmt Stjórn­ar­ráð­inu er þeim ætlað að veita ein­falda og skýra mynd af við­skiptum stofn­ana með því að birta yfir­lit yfir greidda reikn­inga. Mark­miðið er að hægt sé að skoða greidda reikn­inga nálægt raun­tíma, en vef­ur­inn er upp­færður mán­að­ar­lega en hægt er að skoða við­skiptin út frá stofn­unum, birgjum, teg­und kostn­aðar og tíma­setn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár