Mikið blásýrusalt í vatninu umhverfis Tianjin eftir sprengingar

Mörg þús­und dauðum fiskum hefur skolað á land í Tianjin í Kína, átta dögum eftir að öfl­ugar spreng­ingar urðu á hafn­ar­svæði borg­ar­innar. Spreng­ing­arnar og eld­hafið sem læsti sig í vörur á hafn­ar­bakk­anum varð að minnsta kosti 114 manns að bana. Fjöl­margra slökkvi­liðs­manna er enn saknað.

Fjöl­margir hafa deilt myndum af dauðu fisk­unum á sam­fé­lags­miðlum. Þeim hefur skolað á land rúmum sex kíló­metrum frá sprengju­svæð­inu, á bakka Haihe-ár sem rennur í gegnum borg­ina. Frá þessu er greint á vef Time-tíma­rits­ins.

Íbúar í borg­inni ótt­uð­ust að vatnið hafi meng­ast af eit­ur­efnum í spreng­ing­unum en þar er tíunda stærsta höfn heims og gríð­ar­legt magn vara fer þar um dag hvern. Kínversk yfir­völd hafa stað­fest að spreng­ing­arnar hafi orðið í vöru­geymslu sem hýsti 40 mis­mun­andi spilli­efni. Þar á meðal voru 700 tonn af blá­sýrusalti (natr­íum­sý­a­níði). Það er helst notað til gull­greftrar og getur ein­ungis smá­vægi­legt magn eitrað fyrir mann­eskjum.

42 vatna­mæl­inga­stöðvar hafa verið settar upp umhverfis hafn­ar­svæðið þar sem spreng­ing­arnar urðu. Þegar hafa ein­hverjar stöðvar merkt blá­sýrusalt í vatn­inu og á einum stað hefur magn eit­urs­ins farið 356 sinnum umfram eðli­legt magn. Hreins­un­ar­starf er þegar hafið og búið að loka af stór svæði frá fólks­um­ferð.

Þó finnst ekk­ert blá­sýrusalt í vatn­inu þar sem fisk­arnir drápust og því er rann­sóknin á því hvers vegna fisk­arnir drápust enn í gangi. Den Xiaowen, stjórn­andi hjá Umhverf­is­eft­ir­lits­stofnun Tianjin, segir ekki óvana­legt að mikið magn fiska drep­ist á sumrin. „Þegar hita­stigið hækkar hverfur súr­efnið úr vatn­inu og fisk­arnir drep­ast af súr­efn­is­skorti,“ sagði hann á blaða­manna­fundi í gær.


I got up close to the massive fish die-off in #Tianjin, and now plan to never do anyt­hing like that again. #China pic.twitter.com/N1iQWoFHNp


— Dan Levin (@globaldan) August 20, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár