Konur 32 prósent stjórnarmanna en karlar 68 prósent - Dæmigerður stjórnarmaður er karl á sextugsaldri

Þrátt fyrir að lög­fest hafi verið að 40 pró­sent stjórn­ar­manna hluta­fé­laga skuli vera konur er nokkuð í að það náist í íslensku atvinnu­lífi.

Af 982 stjórn­ar­mönnum í 270 stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins, eru 665 karlar og 317 konur. Með­al­aldur karl­anna í stjórn er tæp­lega 55 ár en kvenn­anna um 50 ár. Þetta þýðir að konur eru 32 pró­sent stjórn­manna í stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins, en karlar 68 pró­sent.

Þetta sýna upp­lýs­ingar sem Kjarninn tók saman úr gagna­grunni upp­lýs­inga um íslenskt atvinnu­líf, sem Keldan er með á vef sínum.

Dæmi­gerður íslenskur stjórn­ar­maður í íslensku atvinnu­lífi er karl­maður á sex­tugs­aldri, en staða kvenna hefur þó batnað hratt frá fyrri árum, einkum og sér í lagi eftir að lög­fest var að konur þyrftu að vera að lág­marki 40 pró­sent stjórn­ar­manna. Nokkuð er í að það hlut­fall náist, sé mið tekið af fram­an­greindum upp­lýs­ingum, sem koma úr nýj­ustu árs­reikn­ingum fyr­ir­tækj­anna.

Samkvæmt list­anum sem er á vef Keld­unnar er Icelandair Group stærsta fyr­ir­tæki lands­ins, sé miðað við rekstr­ar­tekjur, og stöðu mála í fyrra. Samtals námu rekstr­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins ríf­lega 141 millj­arði króna. Þar á eftir koma Marel með 110 millj­arða í rekstr­ar­tekjur og Alcoa Fjarðaál með tæp­lega 95 millj­arða.

Hæsti með­al­aldur stjórn­ar­manna hjá skráðu fyr­ir­tæki á Ísland er hjá HB Granda en þar er með­al­ald­ur­inn 62,4 ár, en kynja­hlut­fall í stjórn er 40 pró­sent konur og 60 pró­sent karlar, sem er í sam­ræmi við fyrr­nefnd lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár