Plútó rannsökuð í fyrsta sinn í návígi klukkan 11:50

Banda­ríska geim­farið New Horizons mun, klukkan 11:50, fljúga fram hjá Plútó, ystu reiki­stjörn­unni í Sól­kerf­inu. Þetta er í fyrsta sinn sem geim­far flýgur fram hjá Plútó en það ferð­ast á 50.000 km hraða á klukku­stund. Á þeim hraða kæm­umst við frá Reykja­vík til Akur­eyrar á 20 sek­úndum.

Geim­farið var sent frá Canaveral-höfða í Flórída fyrir níu og hálfu ári og hefur síðan þá ferð­ast tæp­lega fimm millj­arða kíló­metra í ystu víddir Sól­kerf­is­ins. New Horizons mun fljúga í um það bil 12.500 kíló­metra hæð yfir yfir­borði þess­arar minnstu plánetu Sól­kerf­is­ins og senda myndir til Jarðar.

Plútó hefur fimm fylgi­hnetti sem ganga yfir og undir reiki­stjörn­una og mynda þannig eins­konar skot­skífu í átt að sól­inni. Fylgi­hnöttur Jarð­ar­innar, Tunglið, gengur eins og við vitum, umhverfis hnött­inn okkar nokk­urn­veg­inn yfir honum miðjum.

New Horizions mun fljúga á milli Plútó og fylgitungls­ins Charon, sem er innsta tunglið. Vegna skorts á elds­neyti kemst geim­farið ekki á spor­braut um Plútó og hefur því aðeins eitt tæki­færi til að taka myndir og rann­saka yfir­borð plánet­unnar.

Bein útsending úr stjórnstöð NASA


Jafnvel þó geim­farið fljúgi fram hjá Plútó í dag verður það ekki fyrr en í nótt sem við fáum stað­fest­ingu á því að New Horizons hafi kom­ist klakk­laust fram hjá Plútó. Vegna fjar­lægðar frá Jörðu tekur það skila­boðin fjóra og hálfan tíma að ber­ast til Jarðar.

Plútó fannst síðust


Árið 1930 þegar banda­ríkja­mað­ur­inn Clyde Tombaugh fylgd­ist með næt­ur­himn­inum í Arizona með það að mark­miði að finna plánetu handan Nept­únusar. Með því að bera saman tvær myndir, teknar með stuttu tíma­bili, af næt­ur­himn­inum gat Tombaugh greint mis­ræmi, því á meðan fjar­lægar stjörnur virð­ast fasta á himn­inum er þar lít­ill hnöttur sem virð­ist á ógnar hraða.

Þessi nýuppgvötaða pláneta fékk svo nafnið Plútó 1. maí 1930. Það var til­laga níu ára enskrar stelpu sem lagði til að Plútó, róm­verskur guð und­ir­heimanna, fengi að ríkja yst í sól­kerf­inu. Unga stúlkan Venatia Burney lést árið 2009.

Síðan hefur Plútó verið rann­sókn­ar­efni stjörnu­fræð­inga sem með hverju árinu hafa tekið betri og betri myndir af plánet­unni. New Horizons hefur þegar tekið þónokkrar myndir af Plútó úr návígi, þá nýj­ustu birti NASA í dag á Instagram.




SNEAK PEEK of gorgeous Pluto! The dwarf planet has sent a love note back to Earth via our New Horizons spacecraft, which has tra­veled more than 9 years and 3+ billion miles. This is the last and most detailed image of Pluto sent to Earth before the moment of closest approach - 7:49 a.m. EDT today. This same image will be rel­e­a­sed and discussed at 8 a.m. EDT today. Watch our brief­ing live on NASA Tel­evision at: http://www.nasa.gov/nasatv The high res pic will be posted on the web at: http://www.nasa.gov. This stunn­ing image of the dwarf planet was captured from New Horizons at about 4 p.m. EDT on July 13, about 16 hours before the moment of closest approach. The spacecraft was 476,000 miles (766,000 kilomet­ers) from the surface. Image Credit: NASA #nasa #pluto #plu­tof­lyby #newhorizons #sol­ar­sy­stem #nasa­beyond #science


A photo posted by NASA (@nasa) on Jul 14, 2015 at 4:00am PDT

Á morgun má svo gera ráð fyrir að fleiri myndir verði birtar af Plútó auk frumtil­gáta vís­inda­manna um hvers­konar hnött um er að ræða. Nánar má lesa um ferð New Horizons til Plútó á Stjörnu­fræði­vefnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár