Segir jafn mikilvægt að aðstoða sauðfjárbændur og að koma börnum í skjól

Þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins segir það ekki mik­il­væg­asta þing­málið að koma börnum hæl­is­leit­enda í skjól. Jafn mik­il­vægt sé að koma til móts og bjarga fjöl­skyldum sauð­fjár­bænda og það sé að koma börnum hæl­is­leit­enda í skjól.

Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist ekki geta tekið undir það að mik­il­væg­asta þing­málið sem þurfi að ræða fyrir þing­lok sé að koma börnum úr hópi hæl­is­leit­enda í skjól. Jafn mik­il­vægt sé að koma til móts við fjöl­skyldur og bú sauð­fjár­bænda vegna þess þess vanda sem sú grein standi frammi fyrir. Þetta sagði Gunnar Bragi í ræðu á Alþingi í dag.

Sam­komu­lag náð­ist í gær um að þing­lok yrðu að loknum þing­fundi í dag. Málin sem verða afgreidd fyrir þing­lok snúa meðal ann­ars að brott­­­falli ákvæðis um upp­­­reist æru, og frum­varp um bráða­birgða­á­­kvæði í kosn­­­inga­lög­um, og frum­varp um breyt­ing­ar á út­­­lend­inga­lög­um, sem flutt verður af for­­­mönn­um flokka sem það styðja.

Gunnar Bragi sagði í ræðu sinni að þetta væru allt mik­il­væg mál. „En ég spyr herra for­seti, hvernig stendur á því að við erum ekki hér með á þess­ari dag­skrá eitt brýn­asta málið sem leysa þarf úr í dag. Og ég tek ekki undir með hátt­virtum þing­flokks­for­manni Vinstri grænna að mik­il­væg­asta málið sé að koma börnum í skjól.[...]Það er mik­il­vægt mál. En það er jafn mik­il­vægt að koma til móts og bjarga fjöl­skyldum og búum sauð­fjár­bænda sem eng­inn hefur nefnt hér í þessum sal.“

Gunnar Bragi kall­aði í kjöl­farið eftir því að fá að vita hverjir hefðu staðið í vegi fyrir því að leysa mál sauð­fjár­bænda. Um þau hefði verið rætt á fundi for­manna stjórn­mála­flokka þegar verið var að reyna að kom­ast að sam­komu­lagi um þing­lok en málið ekki feng­ist á dag­skrá.

Tapið metið á 1,9 milljarða króna

Afurða­stöðvar til­kynntu bændum í sumar að verð fyrir lamba­kjöt myndi lækka um 5 pró­sent í haust. Sú lækkun kemur ofan á tíu pró­sent lækkun sem átti sér stað í fyrra. Ástæðan er offram­leiðsla. Mun meira væri fram­leitt en eft­ir­spurn er eft­ir. Umfangið var talið vera um 1.200 tonn. Þetta leiðir til þess að laun sauð­fjár­bænda stefna í að verða 56 pró­sent lægri á þessu ári en í fyrra og nán­ast öll sauð­fjárbú verða rekin með tapi. Sömu sögu er að segja með afurð­ar­stöðv­ar.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, starf­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hafði lagt til að settar yrðu 650 millj­ónir króna í aðgerðir sem eiga að mæta bráða­vand­anum og vinna að lausnum sem eiga að tryggja að þessi staða komi ekki upp aft­ur. Til­lög­urnar þurfti hins vegar að sam­þykkja á auka­að­al­fundi Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda þar sem skil­yrði stjórn­valda fyrir fjár­út­lát­unum köll­uðu á breyt­ingar á búvöru­samn­ingi.

Þau útgjöld sem sam­þykkt hafði verið að ráð­ast í í rík­is­stjórn voru þó ekki nálægt þeim 1,9 millj­­arði króna sem Lands­­sam­tök sauð­fjár­­bænda hafa sagt að þurfti til að bæta sauð­fjár­­bændum upp tap þeirra vegna fram­­leiðslu árs­ins 2017. Samkvæmt búvöru­samn­ingi greiðir ríkið nú þegar fimm millj­arða króna á ári vegna sauð­fjár­ræktar.

Nú þegar rík­is­stjórnin er sprungin og kosn­ingar eru framundan er ljóst að ekk­ert verður af því að þessum til­lögum, eða öðrum til að mæta bráða­vanda sauð­fjár­bænda, verður hrint í fram­kvæmd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár