Meðvituð um að Ísland sé ekki eina landið sem ætli að reyna að sækja fjarvinnufólk

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ráð­herra segir að unnið sé hratt að því þessa dag­ana að gera erlendum sér­fræð­ingum sem vinna fyrir erlend fyr­ir­tæki auð­veld­ara um vik við að setj­ast að hér á landi og vinna í fjar­vinnu. Ýmis ljón séu þó í veg­inum.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra segir unnið hratt að því að gera erlendum sérfræðingum auðveldara um vik að flytjast til Íslands.
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ráð­herra segir unnið hratt að því að gera erlendum sér­fræð­ingum auð­veld­ara um vik að flytj­ast til Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra segir að áhuga­verð tæki­færi hafi skap­ast fyrir Íslands veg COVID-19 far­ald­urs­ins og allrar fjar­vinn­unnar sem far­aldr­inum fylgir. Nú er unnið að því að gera erlendum rík­is­borg­urum sem starfa fyrir fyr­ir­tæki erlendis auð­veld­ara að setj­ast hér að og vinna fjar­vinnu, en að ýmsu er að huga við það verk­efni.

Þórdís Kolbrún segir vel koma til greina af hennar hálfu að verja fé til þess að kynna Ísland sér­stak­lega sem fjar­vinnu­land á erlendum vett­vangi.[links]

Kjarninn fjall­aði um þetta í maí­mán­uði og ræddi þá við Kristinn Árna L. Hró­bjarts­son, rit­stjóra nýsköp­un­ar­vefs­ins Northstack, sem hvatti íslensk stjórn­völd til þess að leggja áherslu á að reyna að lokka hingað starfs­fólk hátækni­fyr­ir­tækja, sem gæti unnið vinnu sína við skrif­borð hvar sem er í heim­inum.

Tækni­fyr­ir­tæki á borð við Twitter, Facebook og fleiri hafa gefið það út að fjar­vinnan hafi gefið svo góða raun í far­aldr­inum að héðan í frá verði starfs­mönnum algjör­lega frjálst að vinna að heiman. Sem opnar nýja mögu­leika.

[adspot]

Þórdís Kolbrún hefur lýst því yfir að vinna sé komin af stað hjá stjórn­völdum, en blaða­manni lék for­vitni á að vita hversu langt sú vinna væri komin, í hverju hún fælist og hversu langan tíma áætlað væri að hún myndi taka.

Ráðherra segir í skrif­legu svari sínu að að kerfið eins og það er í dag geri „ekki nægi­lega mikið ráð fyrir því að ein­hver vilji vinna hér ein­göngu í fjar­vinnu erlendis“ og nú sé unnið að því að greina þarfir mark­að­ar­ins ann­ars vegar og hins vegar stöð­una á reglu­verk­inu.

„Til að greina þarfir mark­að­ar­ins skiptir miklu að við fáum að heyra frá fólki og fyr­ir­tækjum hvernig þetta yrði sem ein­fald­ast og skil­virkast. Það er svo okkar í ráðu­neyt­inu og innan kerf­is­ins að greina hvað við þurfum að laga til að geta mætt þeim kröfum. Til þess þarf að yfir­fara þá laga­legu hluti sem þarf að breyta til að auð­velt verði fyrir erlenda sér­fræð­inga að vinna frá Íslandi, t.d. tengt land­vist­ar­leyfum, skatt­lagn­ingu, o.fl. og leggja svo til þær reglu­breyt­ingar sem þarf. Þá þarf að kort­leggja alla ferla og þá hluti sem ein­stak­lingar þurfa að fara í gegnum til að geta starfað frá Íslandi,“ segir Þórdís Kolbrún.

Víða ljón í veginum

Blaða­maður spurði hvaða ljón væru fyr­ir­sjá­an­lega í veg­inum, svo þessar áætl­anir gætu orðið að veru­leika. Þórdís svarar því til að ljónin séu „auð­vitað víða þegar um er að ræða þungt, flókið og um margt ein­streng­ings­legt kerfi.“

„Við erum að glíma við allt frá löngum afgreiðslu­tíma dvalar- og atvinnu­leyfa til flók­ins sam­spils skatts­ins og papp­írs­vinnu vegna stofn­unar fyr­ir­tækja fyrir aðila utan EES. Svo eru þarna praktísk atriði eins og það að hafa gögnin aðgengi­leg og á ensku svo dæmi sé tekið,“ segir Þórdís Kolbrún.

Kemur til greina að verja fé í að kynna Ísland með þessum hætti erlendis?

„Mér finnst það koma vel til greina. Eftir að búið er að kort­leggja ferlið og sjá hvaða breyt­ingar þarf að gera til að hafa það sem ein­fald­ast og skil­virkast þurfum við að koma því til skila og búa til ein­hvers konar leið­ar­vísi þar sem við­kom­andi er leiddur í gegnum ferlið. Ekki síst að huga að mark­aðs­setn­ingu á Íslandi sem fjar­vinnu­landi. Þar þyrfti að ein­blína á hvað er ein­stakt og spenn­andi við að koma hingað og hvað við höfum fram að færa. Að búa á Íslandi er lottó­vinn­ingur og fyrir sér­fræð­inga í alþjóð­legum tækni­fyr­ir­tækjum getum við boðið upp á mikil lífs­gæði. Þar mætti auð­vitað nefna nátt­úr­una en einnig líka til dæmis gott aðgengi að leik- og grunn­skólum sem er oft meiri risa bónus fyrir barna­fólk en við kannski áttum okkur á fyrir utan frá­bært heil­brigð­is­kerfi, virkt menn­ing­ar­líf, frið og ró,“ segir Þórdís Kolbrún.

Blaða­maður spurði einnig hversu fljótt Þórdís Kolbrún teldi að þetta gæti orðið að veru­leika, nú þegar vinnan væri hafin.

„Við vinnum þetta hratt en þessi atriði eru víða í kerf­inu og óljóst hvað ein­staka þættir kalla á mikla vinnu eða sam­tal. Það er mik­il­vægt að vera fljót til þegar svona tæki­færi gera vart við sig eins og við erum að sjá núna. Ég er með­vituð um að við erum ekki eina ríkið sem er að hugsa á þessum nótum. Þetta er vin­sælt starfs­afl og við þurfum bæði að hreyfa okkur hratt og passa að við séum aðgengi­leg til að vera sam­keppn­is­hæf um þetta fólk sem getur svo vel auðgað bæði byggðir lands­ins og þekk­ing­ar­grein­arnar okkar,“ segir Þórdís Kolbrún í svari sínu.

Hún bætir við að íslenskt sam­fé­lag og þá nýsköp­un­ar­um­hverfið sér­stak­lega hefði mjög gott af því að fleiri erlendir sér­fræð­ingar með sína reynslu, teng­ingar og þekk­ingu, komi og starfi héðan.

„Ef við gerum þeim auð­velt fyrir að setj­ast hér að græðum við öll,“ segir Þórdís Kolbrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár