Fjarvinnan eftir faraldurinn gæti orðið þáttur í að byggja upp hagkerfi Íslands til framtíðar

Fjöl­margir sér­fræð­ingar í alþjóð­legum tækni­fyr­ir­tækjum fá núna leyfi til þess að vinna fjar­vinnu til fram­búðar. Þetta fólk ætti Ísland að reyna að sækja til búsetu í skemmri eða lengri tíma, segir Kristinn Árni L. Hró­bjarts­son, rit­stjóri Northstack.

Þegar for­rit­arar og aðrir sér­fræð­ingar sem starfa fyrir Twitter, Facebook og fleiri tækni­fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum og víðar fá þau skila­boð að þeir þurfi aldrei að mæta aftur á skrif­stof­una, heldur geti unnið í fjar­vinnu til fram­tíðar, verður skyndi­lega mögu­legt fyrir þetta fólk að búa hvar sem er.

Þetta hefur verið að ger­ast í auknum mæli sökum þess hve fjar­vinna hefur orðið útbreidd, og gengið vel, í yfir­stand­andi heims­far­aldri. Þróunina ætti Ísland að nýta sér án tafar og reyna að fá hingað sér­fræð­inga sem starfa fyrir erlend fyr­ir­tæki til bæði skamm­tíma- og lang­tíma­bú­setu með öfl­ugu mark­aðsátaki, segir Kristinn Árni L. Hró­bjarts­son, rit­stjóri nýsköp­un­ar­vefs­ins Northstack, í sam­tali við Kjarnann.

Hann birti rit­stjórn­ar­grein fyrr í vik­unni þar sem hann fór yfir af hverju þetta ætti að hans mati að vera áherslu­at­riði hjá stjórn­völdum, sem huga nú að því að hvernig byggja megi undir hag­kerfið út úr COVID-19 krepp­unni.

Vinna sem miðar í þessa átt er reyndar þegar farin af stað, sam­kvæmt því sem Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ferða­mála-, nýsköp­unar og iðn­að­ar­ráð­herra rit­aði í pistli í Sunnu­dags­mogg­anum síð­ustu helgi.

Þar sagði hún að búseta á Íslandi væri „lottó­vinn­ingur“ og hér á landi gætum við boðið sér­fræð­ingum í alþjóð­legum tækni­fyr­ir­tækjum sem hafa kost á fjar­vinnu upp á mikil lífs­gæði og fjöl­skyldum þeirra líka. „Ef við gerum þeim auð­velt fyrir að setj­ast hér að græðum við öll. Vinna sem hefur það að mark­miði er hafin,“ rit­aði Þórdís Kolbrún.

Búinn að tuða yfir þessu lengi

„Við mark­aðs­settum hérna á ein­hverjum tíma­punkti grænt og ódýrt raf­magn fyrir álver og við höfum verið að mark­aðs­setja Ísland sem áfanga­stað fyrir túrista. En af hverju höfum við ekki pælt í að mark­aðs­setja Ísland sem bæði skamm­tíma- og lang­tíma­stað fyrir sér­fræð­inga að vinna frá?“ spyr Kristinn í sam­tali við blaða­mann.

Núna, segir hann, er tæki­færi til þess að ráð­ast í verkið.

„Þetta er þannig séð ekk­ert ný hug­mynd eða nýtt áherslu­mál, ég hef bæði skrifað lengi um það og tuðað lengi yfir því að það er lítil áhersla á það á Íslandi að byggja upp inn­flytj­enda­sam­fé­lag og gera það auð­velt að flytja hingað með sér­fræði­þekk­ingu,“ segir Kristinn og bendir á að til þessa hafi yfir­völd safnað mjög litlum gögnum um það hversu margir erlendir sér­fræð­ingar séu að flytja til lands­ins til vinnu.

Þau gögn sem þó séu til gefi slæma mynd, þar sem fjöldi sér­fræð­inga sé ein­ungis tal­inn í tugum á ári af hópi þeirra þús­unda erlendu rík­is­borg­ara sem flutt hafa árlega til Íslands und­an­farin ár. Kristinn segir að þetta mál snerti það hvernig við munum búa til hag­kerfi fram­tíð­ar­innar á Íslandi.

„Eitt stærsta vanda­mál okkar er að það búa mjög fáir á land­inu og til þess að búa til hag­kerfi fram­tíð­ar­innar þarftu fólk, með rétta þekk­ingu og rétta reynslu. Það eru tvær leiðir til þess að búa það til, annað hvort að senda það í gegnum háskóla eða flytja það inn. Háskóla­kerfið annar bara ákveðið miklu á ári og fljót­leg­asta leiðin væri að flytja inn fullt af fólki. Það er stóra pæl­ingin,“ segir Kristinn, sem hefur látið að sér kveða í íslensku frum­kvöðla­sen­unni árum saman og þekkir þar hvern krók og kima.

Þyrfti ekki mikinn fjölda til að það hefði áhrif

Hann sér fyrir sér að með komu fleiri erlendra sér­fræð­inga hingað myndi frum­kvöðla­sam­fé­lagið efl­ast og fjöldi aðfluttra fjar­vinn­andi sér­fræð­inga þyrfti ekki að verða neitt gríð­ar­lega mik­ill til þess að svo yrði.

„Við vitum að þegar við horfum á svæði þar sem eru mikil hátækni­um­svif, þá snýst þetta allt um fólkið og ein­hverja hring­iðu sem skap­ast þar, tengslin sem verða til og þekk­ing­una og reynsl­una sem mynd­ast. Upp úr því spretta ný fyr­ir­tæki. Ef að eftir eitt ár væru hérna 1.000 manns að vinna fyrir 500 mis­mun­andi alþjóð­leg tækni­fyr­ir­tæki frá Reykja­vík, væri það alveg raun­munur á fjölda þeirra sem eru að vinna í hátækni­iðn­aði á Íslandi, jafn­vel 10-15 pró­sent eða eitt­hvað,“ segir Kristinn. Þannig væri ekki ólík­legt að ný og mögu­lega verð­mæt hátækni­fyr­ir­tæki yrðu til á Íslandi, ef erlendir sér­fræð­ingar myndu byrja að flæða til lands­ins til búsetu.

Kristinn telur að kostir þess að flytja til Íslands séu ótví­ræðir, hér sé gott heil­brigð­is­kerfi, jöfn­uður, góður aðgangur að skólum, frið­sælt og stutt í nátt­úr­una. Þetta þurfi íslensk stjórn­völd að aug­lýsa af krafti og koma til skila til mik­ils fjölda fólks sem starfar í hátækni­geir­anum ytra.

„Þannig að þú ert kannski ein­hver grein­andi sem vinnur fyrir Goldman Sachs og hugsar: Á ég að vera hérna að borga 700 þús­und kall á mán­uði fyrir stúd­íó­í­búð í New York, eða á ég að vera bara á Þingeyri?“ segir Kristinn, sem telur að fólk sem er að koma sér frá stór­borgum gæti örugg­lega vel hugsað sér að búa um allt land, ekki ein­ungis í Reykja­vík.

Stórborgarlífið hefur ef til vill misst nokkurn sjarma í hugum margra eftir að kórónuveirufaraldurinn fór að geisa. Þá gæti það heillað einhverja að flytja til Íslands í staðinn.
Stór­borg­ar­lífið hefur ef til vill misst nokkurn sjarma í hugum margra eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn fór að geisa. Þá gæti það heillað ein­hverja að flytja til Íslands í stað­inn.

Hann segir að svona átak í að lokka erlenda sér­fræð­inga til Íslands gæti jafn­vel orðið eins konar „krútt­leg byggða­stefna“, þar sem smærri bæir gætu blómstrað við komu ein­ungis lít­ils fjölda sér­fræð­inga sem myndu kjósa að setj­ast þar að tíma­bundið hið minnsta og vinna fyrir fyr­ir­tæki sem hefur gefið grænt ljós á fjar­vinnu.

„Þú þarft ekk­ert marga ein­stak­linga til að það verði að veru­leika fyrir þessar brot­hættu byggðir,“ segir Kristinn og nefnir sér­stak­lega Þingeyri sem dæmi, en þar starfar frum­kvöðla­mið­stöðin Blá­bank­inn, sem hefur meðal ann­ars opnað dyr sínar fyrir staf­rænum flökk­urum svoköll­uðum, fólki sem vill ferð­ast en vinna í leið­inni.

„Hver segir að það þurfi að vera áburð­ar­verk­smiðja eða eitt­hvað? Af hverju má það ekki bara vera eitt­hvað kúl sam­vinnu­setur á Þingeyri þar sem eru 30 for­rit­arar sem vinna fyrir 10 mis­mun­andi fyr­ir­tæki og allt í einu meikar sens að vera með bar og kvik­mynda­hús á Þingeyri, af því að það eru allt í einu 30 nýjar fjöl­skyldur með yfir með­al­lagi háar tekjur til þess að eyða komnar í bæinn?“ segir Kristinn.

Telur að það þurfi að strauja yfir nokkrar hindranir

Eins og staðan er í dag er örð­ugt fyrir erlenda sér­fræð­inga, utan EES, að fá dval­ar­leyfi á Íslandi og eig­in­lega bara svo gott sem ómögu­legt fyrir þá sem ekki hafa atvinnu­til­boð frá íslensku fyr­ir­tæki. Kristinn segir að það sé vænt­an­lega þetta sem stjórn­völd þurfi að taka til skoð­unar við útfærsl­una, eigi að ráð­ast í sókn í erlent fjar­vinnu­fólk. Annað séu svo skatta­málin, sem einnig þurfi að setj­ast yfir og útfæra á ein­hvern hátt.

Kristinn segir að verk­efni stjórn­valda á næst­unni ætti í raun­inni.að vera að „strauja yfir allt“ í kerf­unum sem kemur í veg fyrir að for­rit­ari, sem starfar til dæmis fyrir Twitter í San Fransiskó, geti á ein­faldan máta flutt til Íslands og verið hér í sex mán­uði, tólf mán­uði eða þrjú ár og haldið áfram að vinna Twitter-vinn­una sína og þiggja Twitter-launin sín, en verja þeim í íslenska hag­kerf­inu og auðga um leið frum­kvöðla­sen­una á Íslandi með reynslu sinni og þekk­ingu.

„Það ætti að vera hægt og svo þarf bara kynna þetta sem konsept fyrir umheim­inum með mark­aðsátaki og selja þetta,“ segir Kristinn Árni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið undanfarið ár