ARK Technology nær sér í 300 milljóna fjármögnun

Jón Ágúst Þorsteinsson, stjórnarformaður Ark Technology
Jón Ágúst Þor­steins­son, stjórn­ar­for­maður Ark Technology Mynd: Marorka.com

Brunnur Vaxta­sjóður slhf., fjög­urra millj­arða króna fag­fjár­festa­sjóður í rekstri Lands­bréfa og SA Framtaks GP, hefur keypt hlut í Ark Technology ehf. Samhliða kaup­unum verður hlutafé aukið. Stofn­endur ARK munu einnig taka þátt í hluta­fjár­aukn­ing­unni og verða áfram stærstu hlut­hafar, en þeir eru Jón Ágúst Þor­steins­son og fjöl­skylda hans. Fjár­fest­inga­fé­lag þeirra á einnig hlut í Marorku, en Jón Þor­steinn er stofn­andi Marorku og stjórn­ar­for­maður þess.

Alls nemur fjár­mögnun félags­ins nú 300 millj­ónum króna. Fjár­fest­ing­unni er ætlað að styðja við frek­ari vöru­þróun, sölu- og mark­aðs­setn­ingu á vöru ARK.

Brunnur er í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða, Lands­bank­ans og nokk­urra fag­fjár­festa. Sjóð­ur­inn fjár­festir í íslenskum nýsköp­unar- og vaxta­fyr­ir­tækjum sem selja eða stefna á að selja vörur eða þjón­ustu á erlenda mark­aði.

ARK Technology fram­leiðir og selur umhverf­is­stjórn­un­ar­hug­bún­að­inn ARK Enter­prise og aðstoðar fyr­ir­tæki við inn­leið­ingu hans. Hug­bún­að­ur­inn mælir alla þætti meng­unar í virð­is­keðju fyr­ir­tækis og styður við árang­urstengda mark­miða­setn­ingu í umhverf­is­málum. Umhverf­is­frammi­staða rekstr­ar­ein­inga er reiknuð á grund­velli þeirra gagna sem ARK Enter­prise safnar úr virð­is­keðj­unni og geta stjórn­endur nálg­ast lykil­upp­lýs­ingar á not­enda­við­móti þess.

Í frétta­til­kynn­ingu frá ARK segir: „ARK Enter­prise styður því stjórn­endur við að fylgja eftir umhverf­is­mark­miðum fyr­ir­tæk­is­ins, hafa eft­ir­lit með mengun, nýta orku og aðföng betur, draga úr rekstr­ar­kostn­aði, auð­velda úrgangs­stjórnun og upp­fylla reglu­gerðir um meng­un­ar­mál á ein­faldan og skil­virkan hátt. ARK Enter­prise nýt­ist einnig hafn­ar­yf­ir­völdum, sveit­ar­fé­lögum og þjóð­ríkjum til að sporna við sívax­andi mengun lands og sjávar.

Við­skipta­vinir ARK leggja mik­inn metnað í að bæta sífellt umhverf­is­frammi­stöðu sína og nota til þess ARK Enter­prise. Einnig býr ARK að öfl­ugum stuðn­ingi Tækni­þró­un­ar­sjóðs, Rannís og NORA."

Jón Ágúst, stofn­andi og stjórn­ar­for­maður ARK Technology, seg­ist vera ánægður með að Brunnur Vaxta­sjóður hafi ákveðið að vinna með þeim að því að þróa fyr­ir­tækið áfram. „Nauð­syn­legt er að fyr­ir­tæki í grænni tækni vaxi og dafni svo hægt sé að takast á við þau mik­il­vægu verk­efni sem mann­kynið stendur frammi fyrir sökum lofts­lags­breyt­inga.“

Sigurður Arn­ljóts­son, fjár­fest­inga­stjóri Brunns Vaxta­sjóðs, er ekki síður ánægður með sam­starfið. „Fyr­ir­tæki á öllum sviðum leggja nú sífellt meiri áherslu á að lág­marka umhverf­is­á­hrif og hug­bún­aður ARK Tehcnology nýt­ist sér­stak­lega vel við það mik­il­væga verk­efni. Jón Ágúst Þor­steins­son stjórn­ar­for­maður ARK býr að ára­tuga reynslu, þekk­ingu og sam­böndum í þessum iðn­aði eftir að hafa byggt upp Marorku. Við hlökkum til að taka þátt í því með honum og ARK teym­inu í að byggja upp öfl­ugt hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár