Segir „skrúðgöngur þjóðernispopúlista á atkvæðaveiðum“ lélega nýtingu á tíma og peningum

Þing­maður Pírata gagn­rýnir Mið­flokk­inn harð­lega fyrir að hafa „sóað rúm­lega 12 klukku­tímum af tíma þings­ins í for­sendu­laust og bein­línis heimsku­legt mál­þóf“.

Smári McCarthy, þingmaður Pírata.
Smári McCarthy, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Smári McCarthy, þing­maður Pírata, vandar Mið­flokknum ekki kveðj­urnar á Facebook-síðu sinni í dag. „Mið­flokk­ur­inn hefur sóað rúm­lega 12 klukku­tímum af tíma þings­ins í for­sendu­laust og bein­línis heimsku­legt mál­þóf um mál sem snýst aðal­lega um að veita 23.7 millj­ónum króna til stuðn­ings fjöl­menn­ing­ar­set­urs á Ísafirði,“ skrifar þing­mað­ur­inn.

Mið­flokks­menn hafa á síð­ustu dögum haldið uppi mál­þófi en þeir hafa lýst yfir áhyggjum af stjórn­ar­frum­varpi sem snýr að því að útvíkka hlut­verk Fjöl­menn­ing­ar­set­urs og auka fjár­fram­lög til stofn­un­ar­innar. Þeir ótt­ast meðal ann­ars að laga­breyt­ingin fjölgi inn­flytj­endum á Íslandi.

[adspot]

Áætlar að málþófið hafi kostað um 30 milljónir

Smári segir að tími þings­ins sé ekki ókeypis, enda margt fólk sem vinni þar. Ætla megi að mál­þóf Mið­flokks­manna hafi kostað þingið ein­hvers staðar í kringum 30 millj­ónir króna en hann byggir á tölum úr fjár­auka­lögum sem hann segir að hafi verið teknar saman eftir „fyrra heimsku­lega mál­þóf sömu manna“. Það hafi kallað á 40 milljón króna auka­fjár­veit­ingu vegna 3.000 auka­legra yfir­vinnu­stunda á þing­inu.

„Fyrir utan það hvað þetta er skelfi­lega léleg póli­tík hjá þeim, þá eru svona skrúð­göngur þjóð­ern­ispopúlista á atkvæða­veiðum léleg nýt­ing á tíma og pen­ingum,“ skrifar hann.

Skömm að tala málið niður

Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, gagn­rýndi einnig Mið­flokk­inn í gær undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær. „Við eigum að sýna þann þroska að geta gert þetta með almenni­legum hætti og gera það sem best, við sem rík þjóð, en snúa þessu máli ekki á hvolf, að þarna sé ein­hver stór­hætta á ferð­inni, að við séum að opna fyrir óheftan flutn­ing fólks hingað víðs vegar úr heim­inum. Við erum að sam­ræma þessa þjón­ustu, vinna þetta af okkar bestu getu og eigum að gera það. Ég tel það vera skömm að tala þetta mál niður.“

[links]Lilja Rafney gaf lítið fyrir þessa orð­ræðu Mið­flokks­manna í máli sínu á þingi í dag. „Ég verð að við­ur­kenna það að sú mikla umræða sem hér hefur farið fram und­an­far­inn sól­ar­hring um mál­efni inn­flytj­enda gengur fram af mér. Þetta er gott mál sem er verið að leggja fram með yfir­gnæf­andi stuðn­ingi hér á Alþingi. En það virð­ist vera að einn flokkur ákveði að leggja þetta mál upp þannig að það sé rétt að sá ótta og tor­tryggni gagn­vart því við almenn­ing í land­inu. Þarna er verið að gera eitt­hvað sem er ekki gott í sam­hengi hlut­anna,“ sagði hún.

Benti hún á að staða hæl­is­leit­enda og flótta­manna væri alþjóða­vandi og við sem þjóð bærum sið­ferð­is­legar skyldur til að taka okkar skerf og gera það sem við getum til að hafa þessi mál í sem bestu lagi hér heima.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár