Þórólfur um samninginn við Pfizer: „Þetta er hið sanna“

Sótt var að sótt­varna­lækni á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag um hver raun­veru­leg staða á samn­inga­við­ræðum við lyfja­fyr­ir­tækið Pfizer væri. Hann varð­ist fim­lega en gaf upp það sem er í hendi.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Margar flökku­sögur hafa verið á kreiki um rann­sókn­ar­verk­efni íslenskra yfir­valda við lyfja­fyr­ir­tækið Pfizer, sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Sumar væru skemmti­legar en aðrar ekki. „Hið sanna er“ að „við höfum ekki fengið nein samn­ings­drög frá Pfizer,“ sagði hann og því lægi ekki fyrir hvort af verk­efn­inu verður, hvenær bólu­efni myndi þá koma og hversu mikið. „Ég get full­vissað alla um að réttar upp­lýs­ingar verða gefnar um leið og þetta liggur fyrir.“

Frétta­menn höfðu engu að síður mestan áhuga á að fá botn í flökku­sög­urnar. Þórólfur var meðal ann­ars spurður um þær sögu­sagnir að Pfizer gerði kröfu um að ef öll íslenska þjóðin yrði bólu­sett yrðu landa­mærin opnuð til að sjá hver áhrif hjarð­ó­næmis heillar þjóðar gætu verið. Þórólfur sagð­ist hvorki geta svarað þessu ját­andi eða neit­andi þar sem samn­ings­drögin lægju ekki fyrir. Hann sagði að fyrst yrði að sjá drögin til að sjá hvort að þar væru sett fram skil­yrði sem væru „ásætt­an­leg fyrir okkur. Ýmsir þættir eru ásætt­an­legir fyrir okkur en aðrir ekki.“

[adspot]

Yfirvöld hafa, sagði Þórólfur, hingað til komið fram með stað­reyndir sem lægju á borð­inu en ekki óljós skila­boð. Slíkt verður að sögn Þórólfs áfram við­haft hvað varðar samn­inga­við­ræður við Pfizer. „Við höfum komið með ákveðna til­lögu til Pfizer, hún er til með­höndl­unar þar og þeir eru að koma með drög að samn­ingi sem er ekki kom­inn og þá er ekki meira um það að segja í sjálfu sér.“ Þegar þar að komi „þurfum við að skoða þau samn­ings­til­boð sem þar eru, hvort þau séu ásætt­an­leg fyrir okkur og íslenska þjóð – og eftir það verður þetta bara til­kynnt: Já eða nei.“

En færi svo að allt bólu­efnið kæmi í þess­ari viku – hvað myndi ger­ast? „Ja, þá yrði bara bólu­sett,“ svar­aði Þórólfur að bragði. „Það er bara ekk­ert flókn­ara en það.“

[links]Heilsu­gæsla höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur lengi haft til­búnar ýmsar sviðs­myndir, eftir því hversu mikið bólu­efni mun koma á hverjum tíma. Sagði hann fréttir helg­ar­innar af því að verið væri að und­ir­búa bólu­setn­ingar í Laug­ar­dalnum hafa verið túlk­aðar sem skref að fjölda­bólu­setn­ingu en að þar hefði verið að „skoða sviðs­myndir sem hafa verið í gangi frá upp­hafi“.

62 greinst með breska afbrigðið

Hvað varðar þróun far­ald­urs­ins inn­an­lands sagði sótt­varna­læknir að hún væri góð. Einn greind­ist með veiruna í gær og sá var í sótt­kví við grein­ingu. Síð­ast­liðna viku hafa fimm greinst inn­an­lands og þar af voru þrír í sótt­kví. Þeir sem greindust utan sótt­kvíar voru allir með gömul smit.

Síð­ast­liðna viku hafa fimmtán greinst jákvæðir á landa­mær­unum í annað hvort fyrstu eða annarri sýna­töku en aðeins helm­ingur var með virkt smit.

62 hafa greinst með breska afbrigði veirunnar, þar af fjórtán inn­an­lands og voru þeir allir í nánum tengslum við þá sem greindust með afbrigðið á landa­mær­unum. Enginn hefur greinst með suð­ur­a­fríska afbrigðið eða það brasil­íska.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár