Núllið er framtíðin

Fram­tíðin er til sýnis á bíla­sýn­ing­unni í Frank­furt.

Spilar blak við bílinn.
Spilar blak við bíl­inn.

Bíla­sýn­ingin í Frank­furt er í fullum gangi núna, í 67. sinn sem hún er haldin. Þjóð­verjar hafa lengi tekið bíla­iðn­að­inn alvar­lega enda ein af und­ir­stöðu­greinum þjóð­ar­innar og það er kannski til marks um stöðu grein­ar­innar að bæði Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, og Sheryl Sandberg, fram­kvæmda­stjóri hjá Facebook, fluttu ræður við opn­un­ina. Sagði Sandberg stolt frá því að Facebook væri eina fyr­ir­tækið í Silicon Valley sem væri ekki að þróa bíla.

Bíla­iðn­að­ur­inn hefur lík­leg­ast aldrei staðið frammi fyrir jafn­mik­illi óvissu og jafn­stórum spurn­ingum um fram­tíð­ina og akkúrat núna. Yfir­skrift sýn­ing­ar­innar er „Fram­tíðin er núna“ sem und­ir­strikar hversu mik­ill þrýst­ingur er á fram­leið­endur til þess að koma með lausnir á göt­urnar strax til að bregð­ast við lofts­lags­vand­anum og ekki síður tryggja að bíla­iðn­að­ur­inn í Þýska­landi verði áfram sam­keppn­is­hæfur og skapi störf í land­inu.

Spennandi nýjungar

Að vanda voru sýnd vænt­an­leg módel sem mörg hver eiga eftir að fylla þjóð­vegi lands­ins þegar á næsta ári eins og nýr Dacia Duster jeppi og smá­jepp­inn Kona frá Hyundai sem á eflaust eftir að veita honum harða sam­keppni. Kona mun í lok næsta árs koma á mark­að­inn sem raf­bíll með 500 km drægni sem verður áhuga­verður kostur fyrir íslenskar bíla­leigur sem vilja bjóða upp á umhverf­is­væna bíla á hag­kvæmu verði. Einnig voru kynntir nýir smá­jeppar frá Skoda, VW, Kia, Opel og Renault sem flestir eru vænt­an­legir sem tvinn­bílar.

Áberandi var fjöldi raf­magns­bíla sem sýndur var, ekki bara sem hug­mynda­bílar heldur sem bílar sem eru komnir eða alveg að koma á mark­að­inn. Sér­stak­lega athygli vöktu raf­bíl­arnir Urban frá Honda sem minnir á fyrsta Civic bíl­inn fyrir 40 árum síðan og BMW i5 sem er engum líkur. Sér­stak­lega vin­sælt var líka Buzz raf­brauðið frá VW sem skart­aði að sjálf­sögðu tveimur brim­brettum á toppnum en enn munu líða 5 ár þar til það kemur á mark­að­inn.

Kínverjar setja tóninn

Áberandi er hvernig Kín­verjar eru að setja auk­inn þrýst­ing á bíla­iðn­að­inn. Árum saman hefur fjöld­inn allur af íhlutum verið fram­leiddur í Kína en nú voru þrír kín­verskir fram­leið­endur að kynna bíla undir eigin merkjum. Wey sem er með lúxusjeppa af ýmsum stærðum með tvinn­vélum, Chery sem er með breiða línu af ódýrum hefð­bundnum bílum og síðan Thund­er­storm sem er að koma með stóran raf­knú­inn fólks­bíl á mark­að­inn sem kemst 650 km á raf­hleðsl­unni.

[adspot]

Kín­verjar hafa líka keypt gam­alt þýskt merki sem hefur legið í dvala í 50 ár og eru að koma með bíla sem líkj­ast Audi jepp­unum á markað auk þess að eiga Volvo bíla­fram­leið­and­ann sem til­kynnti þegar í síð­asta mán­uði að frá og með 2019 munu allir bílar vera með tvinn­vélum eða raf­mót­orum. Þýsku bíla­merkin hafa öll komið með yfir­lýs­ingar und­an­farna daga um að þau muni einnig bjóða alla bíla sína sem tvinn- eða raf­bíla þó þau fari mun hægar í sak­irnar.

Truflun á bílamarkaðnum

Heil sýn­ing­ar­höll var tekin undir sam­göngur fram­tíð­ar­innar, „New Mobility World“, þar sem fyr­ir­les­arar ræddu hvernig fólk mun ferð­ast um borgir fram­tíð­ar­innar og tækni­fyr­ir­tæki sýndu hvernig bílar aka sjálfir, eiga sam­skipti við mann­virki og sín á milli.

Bíla­iðn­að­ur­inn stendur á kross­götum. Bretland, Frakk­land og nú síð­ast Kína hafa ákveðið að banna dísil­bíla ýmist frá árunum 2030 eða 2040 og í raun er orðið ljóst að tími bensín- og dísil­véla er lið­inn. Raf­knúnir, sjálf­keyr­andi bílar eru orðin raun­veru­leiki og næsta áskorun er ein­fald­lega hvernig mark­að­ur­inn og iðn­að­ur­inn nær að aðlag­ast þessum breyt­ingum. Eða eins og skipu­leggj­endur sýn­ing­ar­innar orða það sjálfir, fram­tíðin er núna.

Meira að segja fljúg­andi bílar eru orðnir stað­reynd en hol­lenskur fram­leið­andi sýndi flug­bíl sinn á sýn­ing­unni sem er að fara í fram­leiðslu og er þegar búið að selja fyrstu 90 bíl­ana.

Framtíðarsýn núll

Mér hafa þótt sjálf­keyr­andi bílar leið­in­legir alveg síðan ég fór í gömlu bíl­ana í Tívolí í Kaup­manna­höfn í fyrsta skipti 5 ára gam­all og átt­aði mig á því að ég væri í raun­inni ekki að stýra sjálfur þó ég fengi að halda í stýrið. Hinir sjálf­keyr­andi bílar fram­tíð­ar­innar eru þó mun meira spenn­andi og akst­ur­sunn­endum til hugg­unar get ég sagt að vænt­an­lega er enn langt þangað til að bílar á einka­mark­aðnum verða ein­göngu sjálf­keyr­andi. Í stað þess verður stýrið eitt­hvað sem þú getur kallað fram með takka þegar þú þarft á því að halda og tekið yfir stjórn­ina, en notið þess ann­ars að spjalla, horfa á kvik­myndir eða vinna á meðan bíll­inn ekur inn­an­bæjar eða á þjóð­vegum við réttar aðstæður.

Sjálf­keyr­andi bílar eru samt sem áður mun nær en margur heldur enda fyrstu prufu­bíl­arnir komnir á göt­urnar og Mercedes Benz kynnti á sýn­ing­unni strætó í fullri stærð sem er sjálf­keyr­andi.

Mikið af þeim bún­aði sem þarf fyrir sjálf­keyr­andi bíla er þegar kom­inn inn í nýj­ustu mód­elin sem „akst­urs­að­stoð“ og má þar nefna Kia með sjálf­virka hraða­stýr­ingu og árekstr­ar­vörn sem hægir á bílnum ef umferð er hæg­ara á móti, sjálf­virkan umferð­ar­teppu­akstur (sem við Íslend­ingar þekkjum best frá rúnt­inum niður Laug­ar­veg­inn) og bíla sem leggja sjálfir í stæði eins og Ford hefur sett á mark­að­inn.

Gervi­greindin mun hámarka afköst og lág­marka áhættu í sam­göngum fram­tíð­ar­innar. Tæknin er til­búin þó reglu­verkið og mark­að­ur­inn séu kannski ekki and­lega búin undir þessa breyt­ingu enn. Mark­miðin eru ein­föld, og kannski í fyrsta sinn sem þau hljóma raun­hæf. Fram­tíð­ar­sýn núll. Núll slys. Núll mengun. Núll umferð­ar­teppa.

Hvað ætlar Ísland að gera?

Ísland hefur á und­an­förnum árum dreg­ist langt aftur úr öðrum þjóðum þegar kemur að raf­bíla­væð­ingu en hefur þó verið að taka við sér á und­an­förnum mán­uðum. Með alla þá ódýru inn­lendu orku sem Ísland býr yfir myndi maður ætla að stjórn­völdum væri mjög í mun að auka hlut­fall raf­bíla en drægni bíl­anna hefur gert þá óhent­uga nema fyrir borg­arakstur. Aukið fram­boð af lang­drægum raf­bílum, hrað­virk­ari hleðslu­stöðvar og snerti­laus hleðsla gera það hins vegar að verkum að raf­bílar eru nú orðnir raun­hæfur kostur, líka fyrir íslenskar aðstæður. Það verður því spenn­andi að sjá hvernig bæði mark­að­ur­inn, bíla­leig­urnar og stjórn­völd munu taka undir þær breyt­ingar sem nú þegar eru að umbylta bíla­iðn­að­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár