Fólk velti fyrir sér hvort kjarnorkusprengja hefði sprungið

Meira en 50 manns eru látnir eftir tvær gríð­ar­lega stórar spreng­ingar í iðn­að­ar­hverfi í borg­inni Tianjin í Kína í gær. Meðal þeirra látnu eru 12 slökkiliðs­menn. Að minnsta kosti 700 eru slas­aðir þar af 71 alvar­lega, að sögn borg­ar­yf­ir­valda í Tianjin. Slökkvi­liðið í Tianjin sakna enn 18 slökkvi­liðs­manna.

Spreng­ing­arnar voru svo stórar að þær sáust á gervi­tungla­myndum og þær sendu högg­bylgju um alla borg­ina svo rúður brotn­uðu í húsum í margra kíló­metra rad­íus. Myndbönd af spreng­ing­unum sem gengu um netheima í nótt sýna risa­stóra eld­hnetti við spreng­ing­arnar. Þær voru jafn­framt nógu öfl­ugar til að mæl­ast á jarð­skjálfta­mælum, að sögn jarð­vís­inda­stof­unar Banda­ríkj­anna.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Fjöl­margir eru slas­aðir eftir spreng­ing­arnar og eldana í Tianjin. Margir urðu fyrir gler­brotum úr rúðum sem splundr­uð­ust við högg spreng­ing­anna. (Mynd: EPA)[/caption]

Tianjin er fjórða stærsta borg Kína en þar er stærsta mann­gerða höfn í Kína, fimmta stærsta í heimi sé miðað við umfang þess sem þar fer í gegn. Spreng­ingin varð á geymslu­svæði hafn­ar­innar og flugu flutn­ingagámar um eins og eld­spítu­stokkar, nýir bílar á leið til vænt­an­legra kaup­enda brunnu og geymslu­rými brunnu til kaldra kola. Meðal þess sem hefur orðið eld­inum og spreng­ing­unum að bráð eru sprengi­efni, ýmis­konar eit­ur­efni og annað hættu­legt heilsu fólks.

„Ég hélt fyrst að þetta hefði verið jarð­skjálfti,“ sagði Guan Xiang, sem býr sjö kíló­metrum frá spreng­ing­unum í Tianjin. Hann sagð­ist svo hafa séð sveppa­ský stíga til him­ins fyrir ofan eld­tung­urnar og spurt sig hvort kjarn­orku­sprengja hafi sprungið. Stærð fyrstu spreng­ing­ar­innar var á við þrjú tonn af TNT en sú seinni mun stærri eða á við 21 tonn af TNT.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Gríð­ar­legt magn nýrra bíla sem biðu flutn­ings um allan heim brunnu til kaldra kola á hafn­ar­bakk­anum í Tianjin eftir spreng­ing­arnar. (Mynd: EPA)[/caption]

Orsök spreng­ing­anna er talin vera eldur sem varð í nokkrum flutn­ingagámum, að sögn frétta­stof­unnar Xinhua. Hins vegar er ekki hægt að full­yrða um orsök­ina. Í kjöl­far spreng­ing­anna hafa eldar læst sig í mann­virki og vörur á mun stærra svæði. Vegna þess hversu hratt vörur fara í gegnum svæðið er erfitt að áætla hvar mesta hættan er. Þá er einnig hættu­legt að nálg­ast eldana vegna sprengi­hættu. Slökkvi­liðs­menn berj­ast enn við elda á fjórum stöðum við höfn­ina í Tianjin.

Slys í tengslum við aukna fram­leiðslu og vöru­flutn­inga Kínverja hafa orðið æ oftar und­an­farin ár, í takt við gríð­ar­lega hraðan vöxt kíversks efna­hags­lífs.

Gríðarleg eyðilegging


https://www.youtube.com/watch?v=XZa48XG7NNM

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár