Veiðigjöldin lækka og lækka

Á árunum eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins hafa stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins gengið í gegnum bestu rekstr­arár sín í sög­unni. Á und­an­förnum árum hafa veiði­gjöldin lækkað tölu­vert.

Fiski­stofa birti nýlega sam­an­tekt um veiði­gjöld á fisk­veiði­ár­inu 2014/2015 sem lauk í lok ágúst síð­ast­liðnum og hefur stofn­unin sett saman fróð­lega upp­lýs­inga­síðu um veiði­gjöldin. Veiði­gjöld eru lögð á hvert úthlutað þorskígildiskíló og eru þau mishá eftir ein­stökum teg­undum.

Talsvert hefur verið dregið úr álagn­ingu veiði­gjalds, aðal­lega sér­staks veiði­gjalds, á síð­ustu tveimur fisk­veiði­árum eftir að þau voru hækkuð tals­vert á fisk­veiði­ár­inu 2012/2013.

Mikil lækkun

Á síð­asta fisk­veiði­ári námu sam­an­lögð veiði­gjöld 7,7 millj­örðum króna sam­an­borið við 9,2 millj­arða á fyrra fisk­veiði­ári og 12,8 millj­arða á fisk­veiði­ár­inu 2012/2013. Nemur lækk­unin því rúm­lega fimm millj­örðum á tveimur árum.

Álagt almennt veiði­gjald hefur breyst lítið á síð­ustu tveimur fisk­veiði­árum og hefur numið í kringum 4,5 millj­örðum króna. Helsta skýr­ing á lækk­andi veiði­gjöldum er sú að sér­stök veiði­gjöld hafa lækkað umtals­vert. Þetta á bæði við um sér­stök veiði­gjöld vegna upp­sjáv­ar­veiða ann­ars vegar og vegna botn- og skel­fisk­veiða hins vegar. Á móti kemur að sér­stakur afsláttur af veiði­gjöldum sam­kvæmt reglum þar að lút­andi var um hálfum millj­arði lægri á fisk­veiði­ár­inu 2014/2015 en á árinu á undan.

HB Grandi greiðir mest

Á síð­asta greiddi stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins, HB Grandi, hæstu veiði­gjöldin eins og árið á undan. Eins og sést í töfl­unni lækk­uðu veiði­gjöld HB Granda um átján pró­sent. Veiði­gjöld allra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lækk­uðu um sextán pró­sent á síð­asta fisk­veiði­ári. Síld­ar­vinnslan greiddi lít­il­lega meira í veiði­gjöld á síð­asta fisk­veiði­ári og skýrist það af því að félagið keypti tals­vert af afla­heim­ildum á tíma­bil­inu.

Afkoma sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hefur verið með ágætum á síð­ustu árum. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Hagstofu Íslands hefur hagn­aður fyrir afskriftir og fjár­magnsliði (EBITDA) verið hár allt fram til árs­ins 2013 (tölur ná ekki lengra).

Afkoma HB Granda á árinu 2014 og á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2015 hefur auk þess verið með ágætum og gefur það góða vís­bend­ingu um afkomu í grein­inni í heild þar sem HB Grandi á um tólf pró­sent af útgefnum afla­heim­ildum í öllum helstu teg­undum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár