Steingrímur: Verið að gera sömu örlaga-mistök og fyrir hrun

Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður VG og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, segir að stöðugir tekju­stofnar rík­is­ins hafi verið veiktir um fimm­tíu til sex­tíu millj­arða króna síð­ast­liðin þrjú ár. Þetta valdi því að „raun­veru­legur rekstur rík­is­ins er rétt við núllið og hag­sveiflu­leið­rétt er ríkið rekið með halla.“

Stein­grímur segir þetta í aðsendri grein hér á Kjarn­anum. Hann segir að afkoman nú bygg­ist í of miklum mæli á óvenju háum arð­greiðslum, tekjum af spenntum vinnu­mark­aði og vax­andi eyðslu eða veltu í hag­kerf­inu. „Slíkar tekjur gufa hratt upp ef á móti blæs. Verið er að gera sömu „örlaga-mis­tökin“ og gerð voru á þenslu­ár­unum fyrir hrun. Hinn stöðugi tekju­grunnur rík­is­ins er veiktur og það leyfa menn sér í skjóli hverf­ulla froðu­tekna af þensl­unni. Þetta hátta­lag er ósjálf­bært og óstöðugt þegar horft er til lengri tíma. Hag­stjórn­ar­lega er þetta ráðslag jafn galið nú og það reynd­ist þá (sbr. nið­ur­stöðu Rann­sókn­ar­nefndar Alþing­is). Skatta­lækk­anir við svona aðstæður eru; sprek á bál­ið, olía á eld­inn.“

Stein­grímur gagn­rýnir Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í grein­inni. Hann segir Bjarna hafa tekið óstinnt upp og mót­mælt tali um þrengri stöðu rík­is­fjár­mála en haldið var. „Upp­lýs­ing­arnar um þetta koma þó beint frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu sjálfu sem góð­fús­lega mætti til funda við við­ræðu­hóp um efna­hags­mál, rík­is­fjár­mál o.fl. í nefndum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum.“

Nið­ur­staðan hafi verið sú að þrátt fyrir að tekjur séu áætl­aðar 16 millj­örðum meiri á næsta ári en áður var talið vanti næstum 20 millj­arða upp á að útgjöld sem síð­asta rík­is­stjórn sam­þykkti verði fjár­mögnuð. Þetta sé vegna þess að búið sé að lög­festa útgjalda­aukn­ingu í almanna­trygg­inga­kerf­inu upp á ell­efu millj­arða, og 13,2 millj­arða vanti í sam­göngu­mál sem búið sé að sam­þykkja. 1,5 millj­arð vantar til að hægt sé að setja þak á heil­brigðis­kostnað, sem sam­kvæmt nýjum lögum á að vera 50 þús­und. Þá segir Stein­grímur að það vanti millj­arð til að fjár­magna ákvarð­anir frá­far­andi rík­is­stjórnar í nýsköp­un­ar­málum, og fjóra millj­arða vegna auk­inna líf­eyr­is­út­gjalda. Þá vanti fimm millj­arða til að öryrkjar fái sam­bæri­lega bót sinna mála og aldr­aðir.

Stein­grímur segir að aug­ljóst sé að ekki verði hægt að mæta vænt­ingum allra um aukið fé í heil­brigð­is­kerf­inu og mennta­kerf­inu. „Allra síst nú rétt eftir kosn­ingar þar sem sumir flokkar lof­uðu stór­auknum útgjöldum. Gallinn er bara sá að fæstir þeirra höfðu fyrir því að segja hvernig þeir hygð­ust afla til þess tekna og reyn­ast svo ekki hafa neinn vilja til þess.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár