Verkfalli sjómanna aflýst með samþykktum samningi

Sjómenn sam­þykktu nýjan kjara­samn­ing naum­lega í atkvæða­greiðslu í dag. Rétt rúmur helm­ingur atkvæð­is­bærra greiddu atkvæði. Verk­falli sjó­manna hefur verið aflýst.

Úr höfninni í Stykkishólmi.
Úr höfn­inni í Stykk­is­hólmi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sjómenn hafa sam­þykkt nýjan kjara­samn­ing í atkvæða­greiðslu í dag, naum­lega þó. Talningu lauk í Karp­hús­inu í Reykja­vík á níunda tím­anum í kvöld. Tveggja mán­aða verk­falli sjó­manna er því aflýst og skip halda til veiða.

Kjara­samn­ing­ur­inn var sam­þykktur með 52,4 pró­sent atkvæða á móti 46,9 pró­sent atkvæða þeirra sem höfn­uðu samn­ingnum. For­ystu­menn sjó­manna­sam­taka höfðu ekki treyst sér til að spá fyrir um úrslit atkvæða­greiðsl­unnar enda aug­ljós­lega mjótt á munum.

1.189 greiddu atkvæði, eða rétt rúmur helm­ingur þeirra sem voru á kjör­skrá. 623 greiddu atkvæði með nýja samn­ingnum en 558 gegn honum.

Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef mbl.is. Þar segir einnig að kjör­sókn hafi verið mis­mun­andi eftir því hvar menn greiddu atkvæði; kjör­sókn hafi verið allt frá 10 pró­sent upp í 70 pró­sent.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur sagst hafa verið til­búin með lög á verk­fall sjó­manna fyrir helgi og til­búin til að beita þeim ef hún teldi þörf á því. Samn­ingar tók­ust með sjó­mönnum og útgerð­ar­mönnum aðfara­nótt laug­ar­dags og hefur nýr kjara­samn­ingur verið í kynn­ingu innan sjó­manna­fé­laga um allt land síðan á laug­ar­dags­morgun. Atkvæða­greiðslan fór svo fram í dag og atkvæðin talin í kvöld.

Í dag var víða unnið að und­ir­bún­ingi skipa í höfnum lands­ins enda liggur á að halda til veiða. Loðnu­ver­tíð­inni fer senn að ljúka, en það liggur kannski meira á að hefja veiðar eftir meira en tveggja mán­aða stopp.

Verk­fall­inu var aflýst eftir að nið­ur­staða atkvæða­greiðsl­unnar var ljós, jafn­vel þó samn­ing­ur­inn hafi verið und­ir­rit­aður í fyrri nótt.

Kjarninn greindi frá því fyrr í þessum mán­uði að tekju­tap ríkis og sveit­ar­fé­laga af sjó­manna­verk­fall­inu væri gróft áætlað um 3,5 millj­arðar króna. Það væri hins vegar að miklu leyti aft­ur­kræft tap, og inn­heimt­ist nú þegar sjó­menn halda aftur til vinnu.

Gögn benda til þess að fram­leiðsla og útflutn­ingur á ferskum bol­fiskaf­urðum hafi dreg­ist saman um 40 til 55 pró­sent á þeim tíma sem verk­fall sjó­manna hafði stað­ið fram til 10. febr­úar. Útflutn­ings­tekjur höfðu minnkað um 3,5 til 5 millj­arða króna á þeim tíma sem verk­fallið hafði þá staðið, og að nokkru leyti er þetta tap sem verður ekki bætt með nýt­ingu kvóta seinna. Í fersk­fisk­fram­leiðslu eru mestar áhyggjur af mörk­uðum fyrir íslenskar afurð­ir, og hætt­unni á því að missa hluta mark­að­ar­ins ann­að.

Fréttin var upp­færð kl. 21:14.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár