Ísraelar búa sig undir að staða spítala verði erfiðari en nokkru sinni fyrr í faraldrinum

Samkvæmt nýrri spá ísra­el­skra yfir­valda er búist við því að fjöldi alvar­lega veikra inni á sjúkra­húsum lands­ins verði tvö­falt meiri eftir mánuð en þegar staðan var hvað verst, fyrr í far­aldr­inum. Til stendur að bæta við heil­brigð­is­starfs­mönnum.

Naftali Bennett, forsætisráðherra Ísraels.
Naftali Bennett, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels. Mynd: EPA

Rík­is­stjórn Ísraels býr sig undir að fjöldi inn­lagna á spít­ala vegna COVID-19 muni tvö­fald­ast á hverjum tíu dögum fram til 10. sept­em­ber. Ný spá um þróun mála gefur til kynna að þá verði 4.800 manns á spít­ölum lands­ins vegna kór­ónu­veirusmita og um helm­ingur þeirra verði alvar­lega veikur.

Ef svo færi væru það tvö­falt inn­lagnir vegna alvar­legra veik­inda en nokkru sinni fyrr í far­aldr­inum í Ísrael.

Þetta kemur fram í frétt á vef ísra­elska mið­ils­ins Haaretz. Þar segir einnig að heil­brigð­is­ráðu­neyti lands­ins hafi greint frá því í dag að þegar væru 400 manns alvar­lega veik inni á spít­ölum vegna COVID-19, þar af um 150 bólu­settir ein­stak­lingar.

Bólusetningar til bóta en staðan samt slæm

Bólu­setn­ingar hafa þó sam­kvæmt töl­unum frá Ísrael tví­mæla­laust sannað gildi sitt, enda eru hlut­falls­lega mun fleiri óbólu­settir en bólu­settir inni á spít­ölum lands­ins með alvar­leg veik­indi.

Samkvæmt annarri frétt Haaretz sem birt­ist í dag sýna töl­urnar að þeir sem eru yfir 60 ára aldri og óbólu­settir eru meira en fimm­falt lík­legri til þess að veikj­ast alvar­lega en fólk í sama ald­urs­hópi sem hefur látið bólu­setja sig, miðað við þró­un­ina til þessa.

[adspot]

Ísraelar eru búnir að bólu­setja til­tölu­lega hátt hlut­fall full­orð­inna með bólu­efni Pfizer, en þó öllu minna en Íslend­ingar. Þar, öfugt við hér, er nokkuð stór hópur lands­manna sem ekki virð­ist vilja bólu­setn­ingu. Nú geisar far­ald­ur­inn í Ísrael sem aldrei fyrr og þrátt fyrir að staðan sé vissu­lega breytt vegna bólu­setn­inga er útlit fyrir að álag á spít­al­ana verði meira en nokkru sinni.

Bæta burðargetu spítala og íhuga frekari takmarkanir

Í ljósi þess­arar nýju spár hefur rík­is­stjórn lands­ins lagt til að inn­viðir heil­brigð­is­kerf­is­ins til þess að geta tekið á móti fleiri sjúk­lingum. Til stendur að fjölga læknum, hjúkr­un­ar­fræð­ingum og öðrum starfs­mönnum spít­al­anna all­nokkuð til að geta tek­ist á við álagið. Læknar sem ræða við Haaretz segja að það sé nauð­syn­legt að bæta við fólki, en það muni þó ekki leysa vand­ann að bæta við 100 læknum í ágúst.

„Við þurfum sér­fræð­inga í gjör­gæslu­lækn­ingum og það tekur mörg ár að þjálfa þá,“ segir Zeev Feldman, for­maður sam­taka lækna sem starfa hjá hinu opin­bera, við Haaretz.

Naftali Bennett for­sæt­is­ráð­herra lands­ins viðr­aði í gær að hert yrði á sam­komu­tak­mörk­unum, þannig að ein­ungis 50 manns mættu koma saman inn­an­húss og 100 manns utandyra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár