Lilja: Brexit býður upp á ný bandalög fyrir Ísland

Evr­ópu­mál eru umfjöll­un­ar­efni sjón­varps­þátt­ar­ins Kjarnans á Hring­braut í kvöld. Þar verður staðan greind og rýnt í þá þróun sem er framundan, sér­stak­lega út frá hags­munum Íslands. Gestur þátt­ar­ins er Lilja Alfreðs­dóttir, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra.

Er Evr­ópu­sam­bandið brenn­andi hús? Hver er Evr­ópu­stefna Íslands? Hverjar eru helstu ógn­irnar sem steðja að Evrópu? Hvernig mun rík­is­stjórnin leysa ágrein­ing sinn um Evr­ópu­mál? Og hvað mun Brexit eig­in­lega þýða, bæði fyrir Ísland og Evr­ópu­sam­bandið?

Evr­ópu­mál eru við­fangs­efni sjón­varps­þátt­ar­ins Kjarnans sem er á dag­skrá Hring­brautar í kvöld klukkan 21. Þar fara Þórður Snær Júl­í­us­son og Þórunn Elísabet Boga­dóttir yfir stöðu mála og svara ofan­greindum spurn­ingum með vísun í stað­reyndir. Eitt helsta vanda­mál Evr­ópu­um­ræðu hér­lendis er enda það að hún fer fram á for­sendum öfga á sitt hvorum end­anum. Þ.e. ann­ars vegar þeirra sem líta á Evr­ópu­sam­bandið sem alls­herj­ar­lausn á öllum vanda­málum, og hins vegar þeirra sem mega helst ekki heyra á það minnst.

[adspot]

Í síð­ari hluta þátt­ar­ins verður rætt við Lilju Alfreðs­dóttur, þing­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, um Evr­ópu­málin. Hún seg­ist meðal ann­ars sjá tæki­færi í Brexit, sem felist meðal ann­ars í því að Ísland geti myndað banda­lög með Bretum, Dönum og öðrum í Norður-Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

evrópumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár