Samstarf Þórólfs og Kára „langoftast“ og „næstum því alltaf“ ánægjulegt

Mun meira máli skiptir hvernig við hegðum okkur heldur en af hvaða afbrigði veiran er, segir Kári Stef­áns­son for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar. Sótt­varna­læknir segir þátt fyr­ir­tæk­is­ins í bar­átt­unni gegn COVID-19 hafa skipt sköpum.

Kári Stefánsson (t.v.) og Þórólfur Guðnason.
Kári Stef­áns­son (t.v.) og Þórólfur Guðnason. Mynd: EPA

„Við erum að haga okkur öðru­vísi, það er það sem er að hafa mestu áhrifin,“ sagði Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, um hverju við væri að búast af hinu breska afbrigði kór­ónu­veirunnar í sam­fé­lag­inu nú. Kári var spurður út í þetta í lok mál­þings­ins Varið land – hvað höfum við lært af COVID-19? sem fram fór í dag á vegum ÍE. Á mál­þing­inu, sem var streymt í beinni á Facebook, var farið yfir nið­ur­stöður rann­sókna sem fyr­ir­tækið hefur unnið að frá því að far­ald­ur­inn kom upp, m.a. þær sem tengj­ast rað­grein­ingum og mótefna­mæl­ingum og nú lang­vinnum áhrifum sjúk­dóms­ins á heilsu þeirra sem veikt­ust.

[adspot]

„Ekki gleyma því að þessi sjúk­dómur er að mörgu leyti hegð­un­ar­sjúk­dómur,“ sagði Kári. Hvernig mað­ur­inn hagar sér skipti miklu meira máli heldur en af hvaða afbrigði veiran sé. Und­an­farnar vikur hafi smit lekið yfir landa­mærin og „fólki gengur mis­vel að fara eftir sótt­kví,“ sagði Kári. „Við verðum ein­hvern veg­inn að finna leið til að takast á við það. Takast á við það án þess að mis­bjóða fólki sem við setjum í sótt­kví. Þessar aðferðir sem Þórólfur [Guðnason] og hans fólk hefur sett saman þær duga til þess að hemja þetta svo fremi sem við förum að þeim ráðum sem við fáum.“

[links]Það var Þórólfur sótt­varna­læknir sem hafði loka­orðin á mál­þing­inu. Hann byrj­aði á því að rifja upp orð Kára frá því í upp­hafi far­ald­urs­ins. „Hann sagði að nálg­ast þyrfti svona far­aldur eins og vís­inda­verk­efni. Það þyrfti að spyrja ákveð­inna spurn­inga sem reynt yrði að svar með vís­inda­legum aðferðum. Þetta held ég að hafi verið alveg hár­rétt hjá honum.“

Hann sagði að með þeim hætti þyrfti að und­ir­búa sig fyrir far­aldra fram­tíð­ar­innar. „Hvernig ætlum við að fást við þá? Því þeir koma aftur. Heims­far­aldur inflú­ensu á eftir að koma aftur. Við eigum eftir að fá nýjar veirur. Þá þurfum við að vera í stakk búin til að taka á þessu á vís­inda­legan máta. Svara spurn­ingum og grípa til réttra aðgerða.“

Þórólfur þakk­aði að lokum Íslenskri erfða­grein­ingu fyrir þeirra þátt og þeirra vinnu í bar­átt­unni gegn COVID-19. „Þetta hefur verið algjör­lega ómet­an­legt og mjög ánægju­legt sam­starf,“ sagði Þórólfur og bætti svo við á léttum nótum: „Svona langoft­ast. Og næstum því alltaf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár