44 smit um helgina – Breytingar orðið í niðurstöðum landamæraskimanna

„Atburðir helg­ar­innar eru vissu­lega von­brigði og við höfum fengið nú stað­fest svo um munar að breska afbrigðið er til staðar í sam­fé­lag­inu,“ segir Alma Möller land­læknir.

Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason og Alma Möller á upplýsingafundi dagsins.
Víðir Reyn­is­son, Þórólfur Guðnason og Alma Möller á upp­lýs­inga­fundi dags­ins. Mynd: Almannavarnir

„Við höfum séð í auknum mæli að fólk er nei­kvætt í fyrri skimun en jákvætt í þeirri seinni. Hlut­fallið þar hefur breyst,“ sagði Alma Möller land­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag. „Höfum líka dæmi um það að fólk var búið að fara í sýna­töku og fá nei­kvætt þó að það væri með ein­kenni. Erum enn að læra á þetta nýja breska afbrigði og höfum jafn­vel á til­finn­ing­unni að fólk sé að grein­ast seinna.“

„Við erum búin að hamra á þessu á hverjum ein­asta degi í um eitt og hálft ár,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir er hann ítrek­aði – enn og aftur – mik­il­vægi þess að gæta að sér og sinna per­sónu­bundnum sótt­vörnum og fara í sýna­töku við minnstu ein­kenni.

Um helg­ina greindust 44 með kór­ónu­veiruna inn­an­lands þar af 27 í gær. Flestir þeirra voru í sótt­kví við grein­ingu en sá hópur var að uppi­stöðu aðeins búinn að vera í sótt­kví í 1-2 sól­ar­hringa. „Svo það er enn mögu­legt að þau hafi náð að smita útfrá sér áður,“ sagði Þórólfur. „Það getur skipt veru­legu máli.“

[adspot]

Um er að ræða tvær hóp­sýk­ingar, báðar af völdum breska afbrigðis veirunnar. Báðar má rekja til landamær­anna.

Sú stærri teng­ist leik­skól­anum Jörva þar sem 36 hafa greinst, þar af fjórtán börn, sextán starfs­menn og sex með fjöl­skyldu­tengsl við leik­skól­ann.

[links]Hin hóp­sýk­ingin teng­ist fyr­ir­tæki og hafa átta manns greinst í kringum hana.

Báðar þessar hóp­sýk­ingar tengj­ast ein­stak­lingum sem hafa farið óvar­lega í sótt­kví eftir kom­una til lands­ins að sögn Þórólfs. Einnig má rekja sýk­ing­arnar til þess að fólk hafi komið veikt til vinnu, ekki haldið sig til hlés og ekki farið í sýna­töku þrátt fyrir ein­kenni.

„Þessar hóp­sýk­ingar sýna í raun hvernig einn ein­stak­lingur getur sett af stað stóra hóp­sýk­ingu og jafn­vel heila bylgju,“ sagði Þórólfur. „Þessi hópsmit sýna einnig mik­il­vægi þess að bíða ekki með að fara í sýna­töku við minnstu ein­kenni.“

Ef smit greinast víðar þarf harðari aðgerðir

Hann sagði þessa reynslu sýna mik­il­vægi þess að tryggja landa­mærin sem best og sjá til þess að fólk sem hingað kemur haldi sótt­kví og ein­angrun. Þórólfur sagði á þess­ari stundu ekki ljóst hvort að grípa þurfi til harð­ari aðgerða inn­an­lands. Smitin má rekja til mann­eskju sem kom til lands­ins áður en hert­ari aðgerðir tóku gildi á landa­mær­unum. „Ef við förum hins vegar að sjá og greina smit ann­ars staðar, þá er lík­legt að við þurfum að gípa til harð­ari aðgerða.“

Í dag verða víð­tækar skimanir í kringum hóp­sýk­ing­arnar tvær. Einnig eru fyr­ir­hug­aðar til­vilj­un­ar­kenndar skimanir í sam­fé­lag­inu. Þetta verður að öllum lík­indum gert í sam­vinnu við Íslenska erfða­grein­ingu.

„Atburðir helg­ar­innar eru vissu­lega von­brigði og við höfum fengið nú stað­fest svo um munar að breska afbrigðið er til staðar í sam­fé­lag­inu. Megum ekki láta þetta slá okkur út af lag­inu heldur gera betur,“ sagði Alma. „Við höfum séð í auknum mæli að fólk er nei­kvætt í fyrri skimun en jákvætt í þeirri seinni. Hlut­fallið þar hefur breyst. Höfum líka dæmi um það að fólk var búið að fara í sýna­töku og fá nei­kvætt þó að það væri með ein­kenni. Erum enn að læra á þetta nýja breska afbrigði og höfum jafn­vel á til­finn­ing­unni að fólk sé að grein­ast seinna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár