Fyrrverandi varaformaður VG telur daga Sigríðar sem ráðherra senn talda

Björn Valur Gíslason segir að þess megi vænta að staða Sigríðar Á. Andersen verði rædd á flokks­ráðs­fundi Vinstri grænna um næstu helgi. Flokk­ur­inn þurfi að taka á stöð­unni með ein­hverjum hætti „ef ekki á illa að fara.“

Björn Valur Gíslason var varaformaður Vinstri grænna þar til í október 2017.
Björn Valur Gíslason var vara­for­maður Vinstri grænna þar til í októ­ber 2017. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Björn Valur Gísla­son, fyrr­ver­andi þing­maður og vara­for­maður Vinstri grænna (VG), segir að það sé ekki óvar­legt að ætla að dagar Sigríðar Á. Andersen í emb­ætti dóms­mála­ráð­herra séu senn taldir.

Í nýrri stöðu­upp­færslu á heima­síðu sinni segir Björn Valur að trú­verð­ug­leiki Sigríðar sé veru­lega lask­aður og að fátt bendi til þess að hann muni lag­ast í bráð. „Vinstri græn halda flokks­ráðs­fund um næstu helgi í Reykja­vík en flokks­ráð er æðsta stofnun hreyf­ing­ar­innar milli lands­funda. Það má vænta þess að staða dóms­mála­ráð­herra verði rædd á fund­inum og kæmi mér ekki á óvart flokks­ráð taki afstöðu til þess hvort ráð­herr­ann njóti trausts flokks­manna eða ekki. Um annað eins hefur nú verið ályktað á fundum flokks­ins. Vinstri græn eru að lenda í nokk­urri klemmu vegna stöðu dóms­mála­ráð­herr­ans og munu þurfa að taka á því með ein­hverjum hætti ef ekki á illa að fara.“

Björn Valur lét af emb­ætti vara­for­manns Vinstri grænna í októ­ber síð­ast­liðnum.

Umboðsmaður sendi bréf

Ástæðan fyrir stöðu Sigríðar er ákvörðun hennar um að víkja frá hæfn­is­mati dóm­­­nefndar um skipun 15 dóm­­­ara í Lands­rétt í lok maí 2017. Hún ákvað að til­nefna fjóra ein­stak­linga dóm­ara sem nefndin hafði ekki metið á meðal 15 hæf­ustu og þar af leið­andi að skipa ekki fjóra aðra sem nefndin hafði talið á meðal þeirra hæf­ustu. Alþingi sam­þykkti þetta í byrjun júní 2017.

Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu í des­em­ber að Sig­ríður hafi brotið gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún ákvað að fara gegn áliti dóm­nefnd­ar­inn­ar. Í gær birti Stundin svo gögn sem sýna að sér­fræð­ingar stjórn­ar­ráðs­ins höfðu varað ráð­herr­ann við því að svona gæti far­ið.

Í fréttum RÚV í kvöld var greint frá því Umboðs­maður Alþing­is hafi ritað bréf til dóms­mála­ráð­herra 8. janú­ar síð­ast­lið­inn þar sem hann óskaði eft­ir upp­lýs­ing­um vegna skip­un­ar henn­ar á dómur­um í Lands­rétti. Þetta gerði hann til að und­ir­búa sig fyr­ir fund sem hann var boð­aður á hjá stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþing­is 18. janú­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár