Fangelsismálastjóri: Rangar fullyrðingar - Notkun á orðinu mannréttindabrot algjört virðingarleysi

Páll Winkel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar, segir notkun Ingi­bjargar Krist­jáns­dóttur, eig­in­konu Ólafs Ólafs­sonar, fanga á Kvía­bryggju, á hug­tak­inu „mann­rétt­inda­brot“ vera í „besta falli skiln­ings­leysi og algert virð­ing­ar­leysi við fólk sem raun­veru­lega hefur orðið fyrir mann­rétt­inda­brotum af hálfu yfir­valda hér á land sem ann­ars staðar.“

Ingi­björg Krist­jáns­dóttir, eig­in­kona Ólafs Ólafs­sonar, segir Pál Winkel, for­stjóra Fang­els­is­mála­stofn­unar, brjóta á rétt­indum fanga eins og eig­in­manns hennar. Hún sakar hann einnig um að tjá sig opin­ber­lega um einka­mál útrás­ar­vík­inga og banka­manna sem sitja í fang­els­inu að Kvía­bryggju og fara með ósann­indi um þá. Þetta segir hún í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í gær.

„Fram­ganga Páls er sér­lega ósmekk­leg í ljósi þess að hann veit manna best að frels­is­svipt­ingin ein og sér er mönnum nógu erfið þó mann­rétt­indi þeirra séu ekki brotin sam­hliða“ segir Ingi­björg. Þetta hafi verið gert á kostnað skjól­stæð­inga Páls, „fanga sem eiga sér fáa málsvara í þjóð­fé­lagi hat­urs og hefnigirni, fanga sem Páll veit að er óheim­ilt að tjá sig í fjöl­miðlum. Fang­arnir eru því varn­ar­lausir gegn aðför for­stjóra Fang­els­is­mála­stofn­unar.“

Páll segir full­yrð­ingar Ingi­bjargar, um hin ýmsu mál sem snúa að fang­els­is­mála­yf­ir­völdum og honum sjálfum, vera rangar.

„Ég hélt fyrst þegar ég las þessa grein að um grín væri að ræða. Konan, sem kveðst maki refsi­fanga, sakar mig um ýmis brot eins og gengur og sakar mig m.a. ann­ars um nafn­grein­ingu ónafn­greindra fanga. Ég er vanur athuga­semdum frá Afstöðu, félagi fanga, þar sem ég þarf oft að svara fyrir ummæli og gjörðir mínar. Það er góður og eðli­legur sam­skipta­máti minn við full­trúa fanga. Sam­skipti mín við Afstöðu eru góð þrátt fyrir að við séum, eðli máls sam­kvæmt, ekki sam­mála um alla hluti. Ef ég ætti að svara öllum aðstand­endum fanga, hverjum um sig, gerði ég ekki annað enda skipta þeir hund­ruðum. Ég get því ekki eytt miklum tíma í svona athuga­semdir aðstand­enda eða almanna­tengsla­fyr­ir­tækja. Mér finnst þó rétt að svara einu atriði bréfs­ins efn­is­lega. Notkun kon­unnar á hug­tak­inu „mann­rétt­inda­brot“ er í besta falli skiln­ings­leysi og algert virð­ing­ar­leysi við fólk sem raun­veru­lega hefur orðið fyrir mann­rétt­inda­brotum af hálfu yfir­valda hér á landi sem ann­ars staðar. Að öðru leyti ekki er annað um skrifin að segja en að full­yrð­ingar makans eru rangar,“ sagði Páll í sam­tali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár